Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Page 18
18 DV. FIMMTUDAGUR3. FEBRUAR1983. Viðskipti Viöskipti Viöskipti Viðskipti Stjómvöld sitja fast við sinn keip í vaxtamálum: Bankarnir verða enn að skera niður útlán — hafa sáralítið eigið fé og eru flestir reknir með tapi, að sögn Jónasar Haralz bankastjóra Undanfarin nokkur ár hefur þaö veriö fastur viöburður aö einhvem tíma haustsins kallar bankastjóri' Seölabankans alla bankastjóra viö- skiptabankanna á sinn fund, tilkynnir þeim að þeir veröi aö beita auknu að- haldi í útlánum og setur svonefnt „þak” á útlán. Síöastliðið haust átti þetta sér staö tvisvar, með skömmu millibili. Margir sem þá reyndu aö fá lán en tókst ekki vonuðust til aö eitthvað liökaöist til eftir áramót, eins og oft- ast hefur verið. En nú berast þær fréttir aö seðlabankastjórn hafi þeg- ar í ársbyrjun kallaö bankastjóra viðskiptabankanna á sinn fund og fyrirskipaö enn frekara aöhald, þótt þaö hafi ekki verið gert opinbert enn. Jafnframt liggur í loftinu aö um hver mánaöamót verði viöskiptabankarn- ir aö skila Seðlabankanum full- komnu uppgjöri á borö viö ársupp- g jör, a .m .k. fy rst um sinn. Mun þetta m.a. stafa af því aö nú er komið í ljós aö útlán innlánsstofn- ana jukust um liðlega 73,2% fyrstu 11 mánuöi síöasta árs, en innlán um aö- eins 33% á sama tíma. Veröbólgan, á kvaröa lánskjaravísitölu, var á þessu tímabili um 55%. Lán til ein- staklinga voru nokkum veginn í takt við veröbólguna og þótti þó hart á dalnum á þeim vettvangi áriö þar áöur. Lán til húsbygginga héldu ekki í viö verðbólguna. Utlán til fyrir- tækja jukust um 83,2% (veröbólgan 55%). Utlán til sjávarútvegs, iönaöar og verslunar jukust á bilinu 93 til 97%. Þetta og fleiri atriði hafa leitt til þess aö þaö litla sem bankarnir lána þessa dagana þurfa þeir aö fá lánaö meö refsivöxtum í Seölabankanum og lána út meö tapi. Þetta er almennt enekki algilt. Jónas H. Haralz bankastjóri sagöi nýverið á ráöstefnu Verslunarráðs Islands að meginvandamál innláns- stofnana sé aö innlán hafi brugöist vegna vaxtastefnunnar á undanförn- um árum. Því hafi grundvöllur bank- anna látiö undan og séu þeir því ekki í stakk búnir aö fullnægja þörfum viðskiptavina sinna. Hann gat þess í sama erindi aö flestir bankar væru Innlán hafa brugðist vegna vaxtastefn- unnar á undanfömum áram, segir Jónas Haralz, bankastjóri Landsbank- ans. nú reknir meö tapi. Hann sér ekki fyrir breytingu til batnaöar á þjón- ustu bankanna nema stjórnvöld breyti um vaxtastefnu. Glöggir bankamenn sjá hins vegar engar blikur á lofti um þaö, heldur þvert á móti þar sem hið opinbera hefur mjög reynt aö vinna aö skerð- ingu vaxtamismunar aö undanfömu. Þar aö auki var lagöur sérstakur veltuskattur á bankana í fyrra, sem kostar þá samtals um 50 milljónir, og verður sá skattur vafalitiö innheimt- urí ár. 100 stærstu fyrirtækin í Frjálsri verslun: SÍS STÆRST EN HELDUR VARLA í VIÐ VERDBÓLGU N A — Sölumiðstöðin í öðru sæti með aðeins 28% veltuaukningu árið 1981 miðað við árið á undan Samband islenskra samvinnu- félaga trónir enn einu sinni í efsta sæti listans um stærstu fyrirtækin á fslandi en hann var birtur á síðasta tölublaði tímaritsins Frjálsrar verslunar. Velta SÍS í krónum talið árið 1981 var 2.383,4 milljónir króna og hafði þá aukist um 45% frá árinu á undan. StS gerðl því ekki meira en að halda í við verðbólguna og tæplega þó. I efetu sætum listans um stærstu fyrirtæki eru gamalkunnug nöfn í efetu tíu sætunum. 1 öðru sæti er, eins og í fyrra, Sölumiðstöö' hraöfrystihúsanna SH. Athyglisvert er þar aö velta þessa stærsta útflutningsfyrirtækis landsins hefur aðeins aukist um 28% í krónum talið á árinu 1981. Með því verður SH aöeins hálfdrættingur upp í verð- bólgu á sama tímabili. Islenska álfélagið hf. fellur úr fjórða sæti listans í fyrra niður í hið tiunda. Aukning veltu í krónum er aöeins um 16%. Aðeins eitt annað af 100 stærstu fyrirtækjum á Islandi hefur minni hlutfallslega aukningu veltu sinnar. Rekstrarerfiöleikar Islenska álfélagsins koma mjög skýrt fram á listanum. Auk mikillar raunverulegrar minnkunar veltu í krónum talið kemur einnig fram að íslenska álfélagið hf. tapaði 208 milljónum króna á rekstrinum 1981. Veltuaukning er þó engan veginn einhlítur mælikvarði á velgengni fyrirtækja. Staða Islenska jám- blendifyrirtækisins í Hvalfirði ber því ljósast vitni. Á lista Frjálsrar verslunar um 100 stærstu fyrirtækin er Jámblendið í fimmtugasta sæti. Veltuaukning þess er 77% eða rúm- lega verðbólgan á sama tíma. Rekstrarhalli fyrirtækisins árið 1981 var 64,4 miiljónir króna en það er rúmlega 43% af heildarveltu fyrir- tækisins. 100 stærstu fyrirtækin: ÍSLENSKA UMBODS- SALAN OG ARNAR- FLUG MEÐ RUM- LEGA 400% VELTUAUKNINGU Sveiflur í útflutningi koma ljóslega fram í lista Frjálsrar verslunar um stærstu fyrirtæki. Þannig eykst velta Samlags skreiðarframleiðenda um 119% á árinu 1981 miðað við fyrra ár. og Islenska umboðssalan hf. jók veltu sína á sama tíma um hvorki meira né minna en 474%. Nam hún 295,3 milljónum króna árið 1981. Var hún að mestu fólgin í útflutningi skreiðar. Ekkert annaö fyrirtæki, sem talið er á listanum um 100 stærstu fyrirtækin, eykur veltu sína jafnmikið og Islenska umboössalan hf. I öðru sæti með veltuaukningu er hinsvegar,,spútnikinn”í íslenskum flugmálum, Arnarflug hf. Félagið er í 45. sæti listans með veltu upp á 157,4 milljónir króna áriö 1981. Árið áður hafði það ekki komist á blað. Veltuaukning Amarflugs var 415%. Nokkur önnur fýrirtæki náðu því árið 1981 að auka veltu sína um níu- tíu af hundraöi eða meira. Sölusam- band ísl. fiskframleiðenda er alveg á mörkunum með 89% veltuaukningu. Síldarvinnslan hf. á Neskaupstað er meö 127% aukningu, Hekla hf. Reykjavík 93%, Hraðfrystihús Eski- fjarðar hf. 174%, Hafekip hf. 93%, Bæjarútgerö Hafnarfjaröar 93%, Veltir hf. Reykjavík 139%, Kaupfél. Húnvetninga og systurfélag þess, Sölufél. Austur-Húnvetninga, 95%, Víkur hf. — Saltsalan hf. 99%, Freyja hf. Suöureyri 91 %. Sér um allan erilinn við innflutning I gegnum árin hefur Þorkell verðútreikninga og reyndar allt til Guönason veitt því athygli, í tollaút- þess að aka vörunni til þeirra ef því reikningum fyrir ýmis stórfyrirtæki, er að skipta. I þessu er falið allt snatt að í fjölmörgum tilvikum standa í bönkum, tolli, hjá skipafélögum, deildarstjórar, sölustjórar og jafnvel flugfélögum og verðlagsskrifstofu. forstjórar í þessum málum enda Segir Þorkell að þjónustan sé eink- krefjast þau sérþekkingar og um hugsuð fyrir smærri fyrirtæki reynslu. sem ekki hafa sérstakan mann eða I ljósi þeirrar ályktunar að þessi menn til að annast þessi störf enda störf tækju of mikið af dýrmætum sýni reynslan, það sem af er, að tíma þeirra frá stjómunarstörfum í þaö séu helstu viðskiptavinirnir. fyrirtækjum sínum, stofnaði hann í haust þjónustufyrirtæki á þessu Tollflokkun er afar vandasamt sviöi, sem hann nefnir Skjöl sf., og er verk en þar kemur 17 ára reynsla þaðtilhúsa að Austurstræti 14,Póst- Þorkels á þessu sviði til góða, auk hússtrætismegin. fullkominna hjálpartækja, s.s. Hér er um aö ræða tölvuvædda Brussel tariffinn, og stöðugra upp- þjónustu við innflytjendur á sviði lýsinga frá aðalstöðvum Efnahags- tollaflokkunar, tollskýrslugeröar, bandalags Evrópu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.