Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Qupperneq 40
KLETTA kjúklingur í KVÖLDMATINN HEILDSÖLUSÍMI 21194 AUGLÝSINGAR ! SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI ll RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 Frjálst, óháö dagblað FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1983. Ópal á Banda- ríkjamarkað? Sælgætisgerðin Ópal í Reykjavik kann aö hefja útflutning á sælgæti tU Bandaríkjanna í nánustu framtíð ef samningar nást við þarlenda söluað- iia. Einar Olafsson, forstjóri Opals, sagði í samtali við DV að málið væri enn á umræðustigi og kvaðst hann ekki vita hvernig mál myndu þróast. Athuganir standa nú yfir í Banda- ríkjunum, að sögn Einars, og veltur algerlega á niðurstöðum þeirra hvort útflutningur getur haflst eöa hvenær. Málið hefur verið í deiglunni frá því í ágúst síðastliönum og sagði Einar að undirbúningsvinna af þessu tagi væri geysimikil. Hann sagðist ekki treysta sér tU að spá um niðurstöðu að svo komnu máli. Kæmist máUð hins vegar í höfn yrði það kunngjört opinberlega. -PÁ Skert gjaldskrárhækkun Reykjavíkurveitna: „Kemur niður á framkvæmdum” — segir Davíð Oddsson borgarstjori , ,Þetta kemur sér mjög bagalega,” sagði Davíð Oddsson borgarstjóri, í viðtaU við DV, þegar hann var spurð- ur um viðbrögð viö ákvöröun iðnað- arráðuneytisins um gjaldskrárliækk- un tU Hitaveitunnar og Rafmagns- veitunnar. „Að vísu fær Hitaveitan 7,2% hækkun umfram hækkun bygg- ingavísitölu, en það er þó mun minna entil stóð.” Davíö sagði einnig að það hefði valdið vonbrigðum að Rafmagns- veitan fékk enga hækkun umfram vísitölu. „Þar er skírskotað tU þess að hækkun Landsvirkjunar hafi verið svo mikil að við verðum að bíða þar tU sú hækkunarbylgja sé Uðin hjá. Þau rök duga okkur auðvitaö lítiö.” „Þetta mun koma beint fram í niðurskurði á . framkvæmdum,” sagöi Davíð að lokum. „Það kemur sér iUa, sérlega varðandi Hita- veituna, sem er að nálgast hættu- punktinn. Sá niðurskurður mun koma niður bæði á borunum, sem eru löngu orðnar nauðsynlegar, og á fyrirbyggjandi viðhaldi, sem hefur setiðáhakanum.” óbg Bráðabirgðalögin bíða mánudags: „Hvalurinn gleypti mann” — segir forseti neðri deildar „Það var hvalurinn sem gleypti mann í gær,” sagði Sverrir Her- mannsson, forseti neðri deildar Alþingis í morgun. Bráðabirgðalögin urðu að víkja fyrir umræðunni um hvalinn á Alþingi í gær og verða ekki tekin fyrir í neöri deild fyrr en á mánudag, samkvæmt ákvörðun for- seta. Forsætisráðherra hafði óskað eftir því á fundi með forsetum þings- ins að bráöabirgðalögin yrðu tekin til umfjöllunar aö loknum fundi Sam- einaðs þings í gær. „Þaö er ekki deildadagur í dag,” sagöi Sverrir um ástæðu þessa. ,jSteingrímur Hermannsson sjávar- útvegsráðherra lagði á það ofurkapp að ná fram olíusjóði fiskiskipa, en um það var samkomulag. Hitt málið var ekki útrætt og getur tekið lengri tíma. Menn eru síðan ekki viðlátnir á föstudögum, þurfa að fara út á land ogannað.” -JH BMW stolið Nýjum BMV-bíl var stolið af verk- stæði Kristins Guðnasonar, Suður- landsbraut 6, í nótt. Bíllinn er ófund- inn. Rúða í verkstæðinu var brotin í mél og síðan farið inn. Einnig voru hurðir og fleiri rúður. brotnar. Þá var einnig farið í fyrirtækin Bílaskálann og Raf- brautogrótaðþartil. -JGH LOKI Sjón varpsútsendingin virtist hvaireki fyrir krat- ana. Krossanesið á strandstað við höfnina i Breiðdalsvik i gærdag. OV-mynd: Guðmundur T. Arason. Þannig greiddu þingmenn atkvæði Þrír alþýðuflokksmenn, fjórir framsókn- armenn, tólf sjálfstæöismenn, níu alþýðu- bandalagsmenn og Vilmundur Gylfason mynduðu þann 29-þingmanna meirihluta sem lagðist gegn því að hvalveiðibanninu yrði mótmælt. I hópnum sem vildi að banninu yrði mót- mælt voru sex alþýðuflokksmenn, þrettán framsóknarmenn og níu sjálfstæðismenn. Eftirtaldir þingmenn sögðu „já” við þeirri tillögu meirihluta utanríkismála- nefndar að banni Alþjóðahvalveiðiráðsins yrði ekki mótmælt: Albert Guðmundsson, Arni Gunnarsson, Birgir Isleifur Gunnars- son, Eggert Haukdai, Egill Jónsson, Eyjólf- ur Konráð Jónsson, Friðrik Sophusson, Garðar Sigurösson, Geir Gunnarsson, Guð- mundur Bjarnason, Guðmundur J. Guð- mundsson, Guðmundur Karlsson, Guðrún Helgadóttir, Halldór Ásgrímsson, Helgi Seljan, Hjörleifur Guttormsson, Jón Bald- vin Hannibalsson, Karvel Pálmason, Lárus Jónsson, Olafur Ragnar Grímsson, Páll Pétursson, Pétur Sigurðsson, Salome Þorkelsdóttir, Sigurlaug Bjarnadóttir, Skúli Alexandersson, Stefán Jónsson, Svavar Gestsson, Sverrir Hermannsson, Vilmundur Gylfason. Þessir vildu að banninu yrði mótmælt: Jón Helgason, Alexander Stefánsson, Davíð Aðalsteinsson, Eiður Guðnason, Friðjón Þórðarson, Geir Hallgrimsson, Guðmundur G. Þórarinsson, Gunnar Thoroddsen, Hall- dór Blöndal, Ingólfur Guðnason, Ingvar Gíslason, Jóhann Einvarðsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Jósef H. Þorgeirsson, Karl Steinar Guðnason, Kjartan Jóhannsson, Magnús H. Magnússon, Matthias A. Mathiesen, Olafur G. Einarsson, Olafur Jó- hannesson, Olafur Þ. Þórðarson, Pálmi Jónsson, Sighvatur Björgvinsson, Stefán Valgeirsson, Steingrímur Hermannsson, Steinþór Gestsson, Tómas Árnason, Þórar- inn Sigurjónsson. Þrír þingmenn voru ekki viðstaddir at- kvæðagreiðsluna, þeir Ragnar Arnalds, Stefán Guðmundsson og Þorvaldur Garðar Kristjánsson. -KMU Krossanesið strandaði Skuttogarinn Krossanes SU 4 strand- aði í höfninni í Breiðdalsvík um klukkan hálf sjö í gærmorgun. Skipiö náöist á flot aftur í gærkvöldi og er ó- skemmt. Krossanesið var að fara frá bryggju í ofsaroki þegar strandið varð. Stóð beint á bryggjuna. Togarinn náði sér aldrei almennilega frá bryggjunni og tók að reka upp í fjöru,þar sem hann svo strandaði. Skipiö náðist á flot um klukkan sjö í gærkvöldi. Höfðu skipverjar fest tog- vír í bryggjuna og notuðu síðan spilið til að ná skipinu á flot. Það var skoðaö í gærkvöldi, en engar skemmdir urðu á þvi. Það hélt síðan á veiðarínótt. -JGH Kjördæmamálið: Þingmenn vænta niðurstöðu „Ég vænti úrslita í kjördæmamálinu nú um helgina. Frumvarp um það getur vonandi legiö fyrir í byrjun næstu viku,” sagði forystumaður í liði stjómarandstæðinga Sjálfstæðis- flokksins í viðtali við DV í morgun. Hann sagði að enn væri þó óráðiö hvernig breytingamar yrðu og færi það nokkuð eftir því hvort Framsókn stæði að málinu eða ekki. Fundir og makk um kjördæmamáliö munu ein- kenna pólitíkina nú fyrir og um helgina. Framsókn er ókyrr í ríkisstjóminni. Margir álíta að framsóknarmenn vilji fá sem hraðasta afgreiðslu bráða- birgðalaganna og síðan þingrof, verði þau felld. Framsókn mundi samkvæmt þessu vilja þingrof áður en niöurstaða fæst í kjördæmamálinu. Alþýðubandalagið mun fýrir hvem mun vilja fá niðurstöðu í kjördæma- málinu fyrir þingrof. Sjálfstæðismenr í stjórnarandstöðu og alþýðuflokks- menn munu yfirleitt nokkuð svipaðrar skoðunar. Gunnar Thoroddsen for- sætisráðherra er talinn leggja áherslu á breytingar í kjördæmamálinu áður en stjómin fer frá. Þessa dagana reynir á hvort tekst að fá Framsókn með í breytingar sem hinir telji nægi- legar. -HH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.