Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1983, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR12. FEBRUAR1983.
3
aö því unnu mikla vinnu og þó sérstak-
lega Mr. Lee. Og ekki má gleyma þeim
Olafi Friörikssyni og Oscari Clausen
sem hafa innt af höndum all erilsamt
og mikið starf í þágu Vaxmynda-
safnsins.
Safnið kom hingaö til lands fyrir einu
ári og haföi ég þá ekkert húsrúm fyrir
þaö en ég vil þakka Birni Olafssyni
ráöherra aö hann lét safniö fá húsnæöi
í Þjóðminjasafninu og Kristján
Eldjárn tók á móti því og er þaö í eins
góðri umsjá og frekast verður á kosiö.
Þaö eru tilmæli okkar gefenda að
safninu veröi vel haldiö viö og aukiö
eftir því sem ástæöur leyfa.”
Eins og þeir hafí
ungmeyjarhörund!
Talsvert var ritaö um vaxmynda-
safniö þegar þaö var sett upp. Viö
skulum grípa niöur í Morgunblaðið 20.
júlí, þar er þáttur sem nefnist „Úr dag-
lega lífinu” og lýsir safninu nokkuö
vel:
„Við skulum bregöa okkur í hús
Þjóöminjasafns við Melaveg og líta
inn í salinn, þar sem íslenskt vax-
myndasafn, gjöf Oskars Halldórs-
sonar, er til sýnis. Okkur bregöur í
brún, því þar stöndum viö augliti til
auglitis við þessa heiðursmenn, sem í
svip sýnast ljóslifandi. Hendur og
andlitssvipur mótaö í vax. Hæö líkam-
anna er sú sama og fyrirmyndarinnar,
vöxtur stældur sem best.
Þarna er Napóleon mikli, smár
vexti, í fagurgrænum frakka með
gullna axlaskúfa. Hann er í hvítu vesti
og buxum, gyrtur sveröi. Aftur á móti
er húfa og jakki Stalíns í ljósbláum lit,
en buxurnar eru dökkar meö rauðum
leggingum. Þarna er hann Hitler
sálugi í stálgráa einkennisbúningnum
sínum. Marteinn Luther er í efnis-
miklu hylki. Oskaplegt ljúfmennihefur
Edison veriö, ef dæma má af aðlaðandi
brosihans.
Aumingja Shakespeare fylgist víst
ekki vel meö fréttum, því aö varla væri
hann svona drjúgur á svip, eLhann
vissi, aö nú hefur hér um bil tekist aö
rýja hann skáldheiðrinum.
Þá sem hafa talið sér trú um að H. C.
Andersen hafi veriö lítill vexti, rekur
vafalaust í rogastans. Hann slagar
hvorki meira né minna en upp í
Kristján konung X., sem stendur við
hliðina á honum.
Islenskir stjómmálamenn og lista-
menn eru í fötum af sjálfum sér. I
þessum svörtu buxum hefur Jónas
sennilega biölaö til kjósenda sinna
norður í Þingeyjarsýslu á árunum.
Þarna eru mennimir, sem sátu
fyrsta ríkisráðsfund íslenska
lýöveldisins. Allir í sömu stellingum og
sömu röö og á fundinum.
I hópi þessara stórmenna er ein
kona, Anna Borg. Hún skartar
íslenskum þjóöbúningi.
Ef eitthvaö ætti aö setja út á líkönin
þá væri þaö helst, aö andlitin séu of
slétt og hrukkulaus.Það er engu líkara
en gömlu kariamir hafi ungmeyjar-
hömnd sumir hverjir.”
Næstá eftir Gu/lfossi
og Geysi!
I Vísi 19. júlí var heillöng hugleiðing
um safniö, þessa rausnargjöf:
„Vaxmyndasafniö, sem nú er opið
almenningi, á áreiöanlega eftir aö
auka hróður Reykjavíkur aö miklum
mun og veröa bæöi innlendu og erlendu
fólkitilmikillaránægju. .. .
Eg efast ekki um, aö brátt veröi eins
sjálfsagt aö sýna erlendum gestum
Vaxmyndasafniö eins og nú þykir
ómissandi aö fara meö þá aö Geysi,
Gullfossi og Þingvöllum. Á Þingvöllum
vita allir aö þeir standa á fomum og
nýjum sögustaö. Þótt sá staður sé
fagur og í miklum fomhelgiljóma, þá
krefst hann talsverðrar söguþekkingar
af þeim sem eiga aö njóta hans til
fulls. Vaxmyndasafniö er þannig
útbúið aö svipir þeir úr sögunni, sem
þar birtast njóta sín til fulls meö mjög
litlum skýringum.”
Má ekki þrengja
að safninu
Strax og safnið var sett upp, vissu
allir, aö þarna haföi því veriö komið
fyrir aöeins til bráöabirgða. Fljótlega
var því fariö aö skrifa um aö ekki
mætti þrengja að því. I Morgunblaðinu
20. júlísegir:
,,Safnið er til húsa í björtum sal og
vistlegum, eins og er. I ráði mun þó að
kúldra því í tvær litlar stofur uppi á
lofti þar sem menn veröa að smeygja
sér milli líkananna til aö velta þeim
Þan eru í
vaxm\iHÍa«iatninu
ISLENDINGAR:
1. Anna Borg Reumert, leikkona (1903—1963).
2. Davíö Stefánsson frá Fagraskógi, skáld og rithöfundur. (1895—1964).
3. Sigurður Nordal, dr. phil., prófessor, sendiherra (1886—1974).
4. Helgi Pjeturss., dr. phil. jaröfr. ogheimspekingur. (1872—1949).
5. Ásgeir Asgeirsson, forseti Islands. (1894—1972).
6. Hermann Jónasson.alþingismaöurográöherra. (1896—1976).
7. OlafurThors, alþingismaöur og ráöherra. (1892—1964).
8. Benedikt Sveinsson, alþingism., forsetin.d. Alþingis. (1877—1954).
9. Jónas Jónsson frá Hriflu, alþingismaöur og ráöherra. (1885-1968).
10. Olafur Friöriksson, stjórnmálam. og verkalýðsleiðtogi. (1886—1964).
11. VilhjálmurStefánsson.landkönnuðuríVesturh. (1879-1962).
12. Sveinn Björnsson, fyrstiforseti Islands. (1881—1952).
13. Björn Þórðarson, dr. juris, forsætisráöherra. (1879—1963).
14. Einar Arnórsson, dr. juris, ráöherra. (1880—1955).
15. Vilhjálmur Þór, bankastjóri og ráöherra. (1899—1972).
16. Björn Olafsson, alþingismaður og ráöherra. (1895—1974).
Nr. 12—16 sýna fyrsta ríkisráösfund lýðveldisins, haldinn á Þingvöllum 17.
júní 1944.
17: OskarTheodórOskarsson,sjómaöur. (1918—1941).
18: OskarHalldórsson, útgeröarmaöur. (1893—1953).
ERLEKDIR MENN:
19. WilliamShakespeare,ensktleikritaskáld. (1564—1616).
20. Thomas A. Edison, amerískur uppfinningamaður. (1847—1931).
21. Martin Luther, þýskursiöskiptafrömuöur. (1843—1546).
22. Hans Christian Andersen, danskt ævintýraskáld. (1805—1875).
23. RoaldAmundsen.norskurheimskautafari. (1872—1928).
24 Adolf Hitler, einræöisherra í Þýskalandi. (1889—1945).
25. Benito Mussolini, einræðisherra é Italíu. (1883—1945).
26. Chiang Kai-Shek, kínverskurstjómmálamaður. (1887—1975).
27. Napoleon Bonaparte, Frakkakeisari. (1769—1821).
28. JosephVissarionovichStalin.forsætisráöh. Rússa. (1879—1953).
29. Paul VonHindenburg, þýskur hershöföingi, (1847—1934).
30. Winston Churchill, forsætisráöherra Bretlands. (1874—1965).
31. Franklin Delano Roosevelt, forseti Bandar. (1882—1945).
32. Robert Baden-Powell, upphafsm. skátahreyfingarinnar. (1857—1941).
Auk þessa fólks voru tveir til viöbótar í safninu. Það voru Kristján tíundi,
Danakóngur, og Halldór Laxness. I báðum tilvikum voru myndirnar teknar
niöur þar sem hlutaðeigendur voru ekki nógu ánægöir meö myndirnar. Var
þaö gert fljótlega eftir aö safnið var sett upp.
Þekkir einhver þessa heiðursmenn? Þaö eru Marteinn Luther til vinstri og œvintýraskáldið H.C. Andersen tHhœgri.
Einhvern tima nata gleraugun
dottið af þessum og þeim þá bara
verið komið fyrir aftur utan á plast-
inul
ekki um koll. Er illt til þess aö vita ef
þetta bráöskemmtilega safn fær ekki
að njóta sín og veröur um leið svipt
öllum vaxtarmöguleikum.
Liggur í augum uppi aö gestir fá ekki
notið líkananna ef þeir þurfa að vera
með nefiö alveg ofan í þeim. Auk þess
sem birta í stofunum tveim kvaö vera
svo léleg aö byrgja veröi hana alveg
úti og notast viö rafmagnsljós.”
Og á öörum staö segir:
„Nú þegar ríkið hefur eignast
þennan myndarlega vísi er þess aö
vænta, aö því veröi fengið heppilegt
húsnæöi, ef til vill í Þjóðminjasafninu
nýja og síöan þarf aö auka viö það.
Mun safn þetta þá verða vinsælt meðal
almennings, semtil bæjarins kemur.”
Er Vaxmyndasafnið
fyrir?
En skríbentum þessum varð ekki aö
ósk sinni, né heldur hefur þaö verið
meining gefandans aö safniö yrði
einungis „fyrir” í ríkisbákninu. En
raunin viröist orðin sú. Þessi rúmu
fimmtán ár sem safnið stóö uppi, var
það ekkert endurnýjaö, utan mynd af
Oskari Halldórssyni sjálfum sem bætt
var viö safnið. Og nú er vaxmyndunum
staflað upp í geymslu á Þjóöminja-
safni. Flestar eru brúöurnar rykfalln-
ar og föt þeirra upplituö.
Einhvern veginn á Vaxmyndasafnið
annað og betra skilið.-KÞ tók saman úr
dagblööum.
ÚTBORGUN 20%,
EFTIRSTÖÐVAR
Á 9—10 MÁNUÐUM
KOMIÐ OG SKOÐIÐ
HÚSGAGNAVERSLUN
GUÐMUNDAR
SMIÐJUVEGI2 — KÓPAVOGI
SÍMI 45100