Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1983, Blaðsíða 11
DV. LAUGARDAGUR12. FEBRÚAR1983.
' LtíW- -WTVST. -■ •• ..A^.—-1..
. - " -1 áieJPHÍII
Japanski vatnaapinn er núlifandi apategund sem lilir í og við vatn rétt eins og vatnatilgátan gerir ráð fyrir að maðurinn hafi gert í fyrndinni. Eins og sést á þessum tveúnur myndum er iapanski vatnaapinn
mjög þróaður af apa að vera. Gengur til að mynda uppréttur í f jörunni.
H
um milljóiifr ára í vatni. t»adan haf i leid þeirra legi
á tveimur f étum át á slétturnar
eykur upprétt staða apans möguleika
hans á því að nota framlimina — hend-
urnar — við fæðunám og beitingu verk-
færa. Sérstaklega kemur gott snerti-
skyn og fíngerðar fingrahreyfingar sér
vel við að grafa upp smádýr úr botni.
Þessi aðlögun að vatnalífi felur í
raun í sér breytingar sem eftir full-
komnun í sléttulífinu einkenna
manninn. Hann var algjörlega hættur
að nota hendumar sem ganglimi og
gat því notað þær einhliða til ýmiss
konar föndurs og vel að merkja — not-
að vopn. Með öðrum orðum: vatnatil-
gátan brúar bilið milli skógarins og
sléttunnar sem ætíð hefur staðið
öðmm kenningum um framþróun
mannsins fyrir þrifum.
Hárleysi mannsins
iíkt og hárleysi
vatnaspendýra
Eitt það atriði sem aöskilur manninn
greinilega frá öðrum prímötum er hár-
leysið. Hárleysið einkennir aftur á
móti mörg vatnaspendýr. Feldur er
góð einangrun á landi er glatar þeim
eiginleika aðmestu leyti í vatni. I vatni
hefur hárið marga ókosti; það íþyngir
dýrinu og veitir viðnám við hreyfing-
um þess, ekki síst þegar um hreyfingu
eins og froskasund mannsins er að
ræða. Þróun hárleysis hjá manninum
má því skýra sem afleiðingu nefndra
þátta. Ef hárvöxtur líkama okkar er
skoöaöur kemur í ljós að hann er helst
að finna á þeim stööum þar sem
viðnáms hársins gætir hvað minnst við
sund, til dæmis þar sem þaö lagar sig
að straumlínulögun líkamans.
Höfuðhárið hefur nokkra sérstöðu. I
vatninu hefur það hugsanlega komið
manninum vel sem vöm gegn sólar-
geislum þar sem höfuðið hefur langoft-
ast staðiö upp úr vatninu. Einnig má
segja sér að hárið hafi verið gott tak
fyrir börnin til þess að berast ekki frá
foreldrunum.
En nú kynni einhver að benda á að
sum spendýr bundin vatni em kaf-
loðin, til dæmis otrar, ísbimir og
loöselir. Af hverju era þessi dýr ekki
hárlaus fyrst það er „gott”? Því er til
að svara aö á þeim svæðum sem þessi
dýr búa er loftslag mun kaldara en
gert er ráð fyrir í vatnatilgátunni og
þar sem þau eyða talsverðum tíma á
landi eru kostir feldsins ótvíræðir og
vega þyngra en ókostir fyrirferðar
hans í vatninu.
Hárleysi annarra landspendýra en
mannsins er freistandi að skýra á þann
hátt að forfeður þeirra hafi dvalið lengi
í vatni. Fílar em til að mynda af sama
ættbálki og sækýr sem era hárlaus
vatnadýr.
Vatnatilgátan hefur að því er virðist
einu viöunandi skýringuna á hárleysi
mannsins sem fram hefur komið. I
ríkjandi kenningum eru valkraftar
sem teljast stuöla að því mjög óljósir
ef einhverjir era tilnefndir. Það er til
dæmis athyglisvert að á öllum teikn-
ingum (og nú síöasta kvikmynd) af
frammanninum eins og menn virðast
hugsa sér hann fyrir daga Neander-
dalsmannsins er hann kafloöinn og
jafnvel Neanderdalsmaðurinn líka líkt
og hárleysi komi fyrst fram hjá Cro-
. '
Þetta gæti verið arfur frá vatnatimabili mannsins, þeirra ármilljóna þegar hann bjó í og við vötn sem leiddi meðal annars
til uppréttrar stöðu hans.
Magnonmanninum. Það er eins og ver-
ið sé að gefa í skyn að hárið hverfi
smám saman þegar menn fara að
ganga í fötum.
Konurnar meira
ívatni
Það dylst engum að rök fyrir vatna-
tilgátunni er enn frekar að finna í út-
litseinkennum konunnar en karlsins.
Tilgátan er meö skýringar á útlitsmun
kynjanna á reiðum höndum. Ástæður
hans eru hugsanlega þær að framkon-
an hafi að öllu jöfnu verið meira í vatn-
inu en karlinn og því aðlagast því betur
eða þá að síðari tíma aðlögun haf i kom-
ið hér við sögu til dæmis haft meiri
áhrif á útlit karlsins en konunnar og
hún hafi þannig haldið uppranalegum
aölögunareinkennum vatnalífsins bet-
ur.
I f yrsta lagi f elst þessi munur í því að
karlinn er mun hærðari en konan, sem
aftur á móti er meö mun meira og jafn-
ara fitulag undir húö sem gerir hana
líka straumlínulagaðri en karlmann-
inn.
I öðru lagi hafa konur mun sterkara
hár á höfði en karlar og þær veröa
mjög sjaldan sköllóttar. Mjög ung börn
hafa verið háðari því að halda sér í hár
móðurinnar en hár föðurins þar sem
þau þurftu á brjóstamjólkinni að
halda. Sterkt höfuðhár móður hefur
þannig stuðlað að auknu öryggi af-
kvæmanna á viðkvæmu stigi og tryggt
þannig betur afkomu þeirra. Gæti með
þessu verið komin skýring á því hvers
vegna hár kvenna þykknar um með-
göngutímann.
I þriðja lagi er ljóst að konur eru með
mun feitari þjóhnappa er karlar.
Vatnatilgátan gerir ráð fyrir að á
þessu tímabili hafi menn eytt tals-
verðum tíma í fjöranni, sitjandi að
snæðingi, við fæðuleit og fleira. Eðli-
legt er að álíta að konan hafi átt auð-
veldara með að gefa bami brjóst sitj-
andi í fjöruborðinu heldur en úti í vatn-
inu. Fjaran hefur augljóslega verið
frekar óþægilegt undirlag til setu, ekki
síst með bam í fanginu. Þar sem menn
era með mun feitari þjóhnappa en aðr-
ir prímatar er freistandi að skýra
þetta einkenni sem aðlögun að því að
gera setuna í f jörunni þægilegri. Rass-
stórar mæður hafa verið mun ending-
arbetri að gefa börnum brjóst og
tryggja þannig afkomu þeirra betur en
ella. Munur kynjanna í þessum efnum
er því samkvæmt þessu augljós.
(Bavíanar hafa óvenju feita þjó-
hnappa af öpum að vera en þeir éta
einmitt sitjandi á rassinum).
I f jóröa lagi má nefna útvöxt kven-
brjósta, einkenni sem enginn api sýnir.
Brjóstavöxtmn má skilja sem aðlögun
að því að gera brjóstmylkingum auð-
veldara að ná til næringarinnar sem er
þeim lífsnauðsynleg. Apaböm halda
sér í feld móðurinnar og nálgast þann-
ig spenann. Vatnakonan varð aftur á
móti hárlaus. En þar sem hún situr í
fjöruborðinu meö bamið í kjöltunni
leystist vandinn ef brjóstin vaxa út og
leita niður. Bamið þarf þá ekki að
teygja sig og konan þarf ekki að halda
því upp að brjóstinu. Mjúkur vefur
brjóstsins gefur baminu líka tækifæri
til þess að grípa um það og beina því
rétta leið.
Hokkur dæmi
tilgamans
Mörg atriði í viðbót við þau sem áður
era nefnd hafa verið grafin upp vatna-
tilgátunni til stuðnings. Við nefnum
hér nokkur dæmi til gamans.
Lögun nefsins er mjög sérstök hjá
mönnum. Nefið er eins konar yfirbygg-
ing yfir nasaholumar og beinir opun-
um niður. Þetta kemur sér einstaklega
vel viö sund og köfun þar sem vatnið
mundi að ööru kosti þrýstast inn í
öndunarveginn. Þetta gæti því vel hafa
þróast á vatnatímabili mannsins en
svona aðlögun finnst ekki hjá öðrum
prímötum. Þama kemur það þó til
greina að þetta sé skiljanleg afleiðing
af breytingu á lögun höfuðkúpunnar.
Það er athyglisvert að hjá mönnum
má sjá tilhneigingu til samvaxtar
húðar milli fingra og táa eins og sund-
fit. Milli þumal- og vísifingurs er til
dæmis greinilegur húðvöxtur sem sést
ekki hjá núlifandi öpum. Gæti veriö um
aðlögun að sundi að ræða?
Þaö er alkunna að við köfun sjávar-
spendýra hægist hjartslátturinn sem
er aðlögun til súrefnissparnaðar. Svip-
aða eiginleika má greina hjá perlu-
köfurum sem nota engan köfunarút-
búnað.
Sú aðferð hefur verið reynd aö láta
konur fæða böm sín í vatni og þykir
þaö gott bæöi fyrir börnin og mæðurn-
. Þetta gæti verið arfur frá vatna-
mabilinu.
Fleira mætti tína til en hér verður
.átið staðar numiö.
Tilgangur þessarar greinar var fynst
og fremst sá að benda á vatnatilgátuna
sem athyglisverða hugmynd, sem
ástæða sé til aö skoða í fuilri alvöra.
Það er alls ekki meiningin að kynna
hana sem einu lausnina á gátunni um
þróun mannsins. Allar þær hugmyndir
sem fram hafa komið hafa eitthvað til
síns máls en þættirnir sem taka þarf
tillit til eru svo ótrúlega margir að nær
ógerlegt er að skoða innbyrðis vægi
þeirra í þróun mannsins. Það ber lika
að hafa í huga að sköran milli hug- I
mynda er mikil og vafasamt er því aö. |
skilja þær skýrt í sundur. Hér hafa að
sjálfsögðu aðeins verið nefnd nokkur
atriöi og sum frekar til gamans en um
alvarleg rök að vatnatilgátunni sé að
ræða.
THboðsverð
THboðsverð
SEGULBAND
OG ÚTVARP MEÐ FM-AM
Tækið er með innbyggðum
tónjafnara og
45 v kraftmagnara.
Verðáðurkr. 11.144.-
Verðnúkr. 7.244.-
Ef þú kaupir hljómfiutningstæki i bilinn hjá okkur frá 812—2212 veitum við
50% afslátt á isetningu.
VELKOMIIM
Sendum
í póstkröfu
um allt
land.
D
ÍXdQlO
ARMULA 38 (Selmúla megini - 105 REYKJAVIK
SIMAR: 31133 83177- POSTHÓLF 1366