Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1983, Blaðsíða 17
DV. LAUGARDAGUR12. FEBRÚAR1983.
17
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
Fiat Uno. Bíllinn virðist stœrrí en hann er i raun og veru. Framhlutinn minnir á Fiat Panda.
Uno ES er undraverk hvað viðkemur sparnaði. Það er meðal annars að þakka minitölvu sem
stýrir bensínstreyminu. Hjólkopparnir eiga að draga úr loftmótstöðu.
EIM
nýr f rá FIAT
Innrétting og mælaborð er íétt yfiríitum. Ljósum og rúðu-
þurrku er stýrt frá takkaborði sitt hvorum megin við
mælaborðið.
Að innan er billinn rúmgóður. Þetta er innrétting i þriggja
dyra útgáfunni.
Loks kom arftaki 127 bílsins frá
FIAT. Þessi nýi FIAT heitir Uno og
var nýlega kynntur fyrir blaðamönn-
um í Florida í Bandaríkjunum. Fyrir
hálfum mánuði var Uno kynntur á
ítalíu og á næstu mánuðum mun
hann veröa kynntur hjá
umboðsmönnum Fíat í öðrum
löndum.
Uno er samanrekinn en rúmgóöur
smábíll, meö þremur eða fimm dyr-
um. Aftursætið er framleggjanlegt,
vélin er þverstæð og bíllinn er fram-
hjóladrifinn. Hann er talinn vera sá
smábíll sem hvaö best kemur út
hvað loftmótstöðu viðkemur, loft-
mótstööustuðullinn er aðeins 0,34. Til
samanburðar er talan 0,30 hjá þeim
bíl sem best kemur út á þessu sviði,
AudilOO.
Þessi litla loftmótstaða gerir það
aö verkum aö spameytnin situr í
fyrirrúmi og samkvæmt tölum frá
Fiat á hann að komast 20 kílómetra á
einum lítra, miðaö við jafnan 90 km
hraða. Sérstakt „sparnaðarmódel”,
ES kemst 23 km á einum lítra.
Þessi ágæti loftmótstöðustuöull
næst vegna byggingarlags bílsins,
framhallandi framenda og háum
beinum afturhluta. Þakrennum hef-
ur veriö sleppt, rúðumar eru í línu
viö yfirbygginguna og sléttur botn-
inn hjálpar einnig til með því að
valda ekki lofthvirflum undir
bílnum.
Uno er 364 sentimetrar á lengd, sjö
sentimetrum minni en 127. Breiddin
er 154 eða sentimetra breiðari en
fyrirrennarinn. Bil milli öxla hefur
verið aukið um 10 sentimetra upp í
236 sentimetra. Farangursrýmiö er
gefið upp 225 lítrar. Fiat 127 var
viðurkenndur sem rúmgóður, en Uno
slær hann út hvað því viðkemur, en
samt er dálítið þröngt fyrir lang-
fætta aftur í.
Uno kemur á markað í sjö mis-
munandi gerðum og meö þrjár
mótorstærðir, 900, 1100 og 1300 rúm-
sentimetra sem gefa 45 , 55 og 70
hestöfl. Hvað útbúnaöi viðkemur
verða tvær útgáfur — standard og
super. Allar supergerðirnar verða
með fimm gíra kassa, þó ekki 45
gerðin sem býður fimm gíra kassa
semaukabúnað.
ES-geröin (ES stendur fyrir
spamaöargerð) verður aðeins fáan-
leg meö litla 45 hestafla vél og fimm
gíra kassa með sérlega háu gírhlut-
falli. Kveikjan er elektrónisk og
eyöslugrannur blöndungur.
Uno 45 og 70 verður einungis hægt
að fá sem þriggja dyra bíla, en 55
geröin verður bæði fáanleg með
þremur og fimm dyrum.
Undirvagninn er mikið breyttur
frá 127, sérstaklega að aftan, þar
sem afturhjólin, sem borin eru uppi
af langstæðum sveifluörmum, eru
samtengd meö þveröxli sem jafn-
framt gegnir því hlutverki að vera
jafnvægisstöng. Að framan er
Mcpherson upphengja. Hemlar eru
diskar að framan og skálar að aftan.
Handbremsan tekurá afturhjól.
Minni ryðsækni
FIAT hefur nú hafiö baráttu gegn
ryðinu með endurbótum, eins og
helstu keppinautamir hafa þegar
gert. Yfirbygging Uno er úr miklu
færri hlutum en 127. Þetta þýöir
færri samsetningarstaöi og suöur og
þar meö færri ryðsækna staði. Marg-
ir burðarhlutar eru opnir prófílar til
að hindra raka og ryð. Sam-
setningarstaðirnir eru zinkmeð-
höndlaðir fyrir suðu og síðan þéttir
með lagi af PVC plastefni. Öll yfir-
byggingin er síðan máluð með ryð-
varnarmálningu og að lokum er
þeim tómarúmum sem eftir eru
lokaömeövaxefni.
Við kynninguna í síöustu viku var
bílnum reynsluekið af fjölda blaða-
manna. Bíllinn er sagður hafa komiö
mjög vel út í reynsluakstri, bæði á
hraðbrautum og venjulegum vegum.
Hjólastærð er 13 tommur. Stýrið
svarar vel og jafnvægi er gott við
krappar beygjur. Vélargangur er
jafn og þýöur og ekki of mikill hávaði
inni í bílnum við hraðakstur, eins og
oft vill veröa á smábílum, helst smá-
hávaði frá hjólum á grófum vegi og
nokkurvindgnýr.
Margir keppinautar
Samkeppnin á smábílamarkaðn-
um eykst nú enn eftir tilkomu Fiat
UNO. Helstu keppinautar hans veröa
Opel Corsa, Nissan Nicra, VW Polo,
Citroen Visa og Ford Fiesta, en sá
síöastnefndi er reyndar væntanlegur
í nýrri útgáfu fljótlega. Hver þessara
bíla vinnur samkeppnina er ekki gott
um að segja en trúlegast verður
verðiö afgerandi þáttur. Hvaö Uno
kemur til með að kosta hér á landi
bíöur þar til hann lítur dagsins ljós á
íslenskum vegum, en hjá frændum
okkar Dönum hefur veriö giskaö á að
hann muni kosta um 70 þúsund
danskar krónur þegar hann kemur
þar á markaö meö vorinu, eða um
140 þúsund ísl.
Fiat 127 áfram til
Áfram verður haldið að framleiða
Fiat 127 og það í Brasilíu. I haust
kemur ný gerð af 127, Fiat 127 GL.
-JR (Politiken)
Hve gamall
er nýi bíll •
innþinn?
Hversu gamall er nýi bíllinn þinn
þegar þú færö hann í hendur? Þegar
við kaupum okkur splunkunýjan bíl þá
reiknum við meö að hann sé nýr, aldur-
inn sé lítið meiri en flutningurinn frá
verksmiðjunni hingað lands.
En þetta er öðru nær. Þúsundir bíla
bíöa í verksmiðjunum eftir því að
verða afgreiddar tO endanlegs sölu-
staðar og bíða siðan jafnvel aftur í
sölulandinu eftir lukkulegum
kaupanda.
En smáathugun getur hjálpað til að
finna út raunverulegan aldur bílsins
eða að minnsta kosti ákveðinna hluta í
honum.
Hjólbarðar, allflestir a.m.k. eru í
dag með svonefnt DoT númer, sett að
kröfu samgönguráðuneytis Banda-
ríkjanna (US Department of
Transport). Þetta númer sýnir vikuna
og árið sem hjólbaröinn var búinn til.
249 þýðir samkvæmt þessu 24. vikan
árið 1979.
Mjög margir bílar eru með rúðum
frá Triplex. Þessar rúður eru einnig
meö dagsetningu sem tekist hefur að
ráða. Undir orðinu Toughened eru
punktar sem sýna framleiðsluár.
Punktur undir stafnum T þýðir einn og
upp aö 9 undir D, og punktur á eftir
orðinu þýðir 0. Punktar yfir orðinu
þýða framleiðslumánuð ársins., Þareð
gler er að ölíum jafnaöi notað innan
fárra mánaða eftir framleiðslu þá
gefur þetta vísbendingu um aldur viö-
komandibíls.
Ýmsar aðrar merkingar svo sem á
rafhlutum bílsins gefa til kynna aldur
þeirra, svo sem á altemator, þar sem
merkingin 2/83 þýöir önnur vika árins
1983.
Það er betra að hafa augun hjá sér
þegar keyptur er nýr bíll, ekki síst í
landi eins og hjá okkur þar sem ýmsar
utanaökomandi ástæður hjálpa einnig
til að gera bílana jafnvel ennþá eldri
en þeir þyrftu að vera þegar þeir kom-
ast í hendur nýrra eigenda, sem halda
að þeir séu að fá, .splunkuný jan bíl”.
Öryggisbelt-
in þvælast
ekkifyrir
Öryggisbelti hafa löngum verið
mönnum erfiö, bæöi í notkun og
hvemig best sé að koma þeim fyrir í
bílnum, allt frá því að þau komu til
sögunnar fy rir um tuttugu ámm.
Lítið hefur orðið um verulegar
breytingar á frágangi þeirra þar til á
liönu ári er Mitsubishi kom fram með
endurbót á frágangi þeirra. Líkt og í
öðrum bílum er það einfalt nylonbelti
sem heldur ökumanni og farþega á
sínum stað. En þeir hjá Mitsubishi
festa öryggisbeltiö í Mitsubishi Starion
á hurðina sjálfa í staö dyrapóstsins.
Útkoman verður sú að engin belti eru
að þvælast fyrir þegar fariö er inn og
út úr bílnum. Sérstaklega er þetta
þægilegt fyrir aftursætisfarþega.
Beltin dragast inn í huröina þegar þau
eru ekki í notkun.
Melra um öryggisbeltin:
Lögbundin í Bretlandf og Vestur-Þýskalandi
Og meira um öryggisbeltin. Sífellt
fleiri lönd lögbinda notkun beltanna og
sektir falla þeim í skaut sem ekki nota
þau.
Nú hafa Bretland og Vestur-Þýska-
land bæst í tölu þeirra landa þar sem
ökumenn og farþegar í framsæti eiga
engan annan kost en að spenna beltin
því þar em þau lögbundin frá og með 1.
janúarsl.
Þeir óspenntu í Bretlandi eiga von á
allt að 1800 króna sekt fyrir að spenna
ekki beltin en í Þýskalandi er sektin
uml80krónur.