Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1983, Qupperneq 23
DV. LAUG ARDAGUR12. FEBRUAR1983
23
nefndar hefur verið spáð mikilli vel-
gengni á árinu, hvort sem þeir spá-
dómar rætast eður ei. Flestar hljóm-
sveitanna eru nánast óskrifaö blað;
þær hafa sumar aöeins gefið út eina
eða tvær smáskífur eins og Tear For
Fears og Blue Zoo. Samt var til dæmis
sú fyrrnefnda kosin ein efnilegasta
hljómsveitin í vinsældakosningum um
áramót. Sumum þætti ein smáskífa of
htiðsýnishorn til þess að byggja á....
Það þarf sosum engar fluggáfaöar
völvur til þess aö benda okkur á að
rokkuð danstónlist eigi eftir að láta
mikið að sér kveða; strax á síöasta ári
fór að bera á þessháttar tónlist með
lögum eins og „I Ran” með A Flock Of
Seagull, „Living On the Ceiling” með
Blancmagne, „Cry Boy Cry” meö Blue
Zoo og „Mad World” með Tears For
Fears svo eftirminnilegustu lögin séu
nefnd. Þessi þróun virðist ætla aö
halda áfram því lög af þessu tagi eru
nú oröin býsna áberandi á breska list-
anum: írska hljómsveitin U2 stefnir
hátt með lagið sitt „New Year’s Day”
og Echo & the Bunnymen er komin inn
á topp tíu með lagið „The Cutter’,
hvort tveggja harðsoöið dansrokk þar
sem rækilega er hrist saman greini-
legum áhrifum frá Simple Minds,
David Bowie, og Joy Division.
Tölvurokkið sýnist líka ætla að verða
eitthvað rokkaöra á þessu ári; ný
hljómsveit KajaGooGoo er til að
mynda búin aö hasla sér völl ofarlega
á breska smáskifulistanum með lagið
„Too Shy” sem er gott dæmi um
rokkaða svuntuþeysatónlist. Þegar
hefur þessi hljómsveit verið kölluð
„nýja Duran Duran” og það ekki alveg
út í bláinn því hún starfar sumpart
undir verndarvæng risanna, hljóm-
borðsleikari Durananna Nick Rhodes
var með puttana nærri við gerð 2ja
laga plötunnar og upptökustjórinn er
Colin Thurston, sem hefur liðsinnt
Duran Duran bæði vel og lengi.
Hljómsveituniun sem hér hafa veriö
Þó það sé ekki á færi nema flinkustu
spákellinga að sjá inní framtíðina,
segja fyrir um ferðalög, bréf og þess-
háttar, má spá því að danstónlistin á
þessu nýbyrjaða ári verði obboðlítið
groddalegri en við höfum átt að
venjast siðustu misserin. Völva
rokksins, sem við erum i sambandi við,
hermir að fönkið verði áfram i upp-
sveiflu en rokkuð danstónlist að hætti
Simple Minds og fleiri sveita af betri
gerðinni muni einnig gera háværa
kröfu um eftirtekt.
Mávarnir
Ef ég má segja mitt álit: A Flock Of
Seagull er hljómsveit sem ég hef trú á.
Hún kemur frá Liverpool og er ein
fárra breska hljómsveita sem slær
fyrst í gegn utan heimalandsins. Bæði
Bandaríkjamenn og Ástralir létu
mikið með hana í fyrra og fyrsta stóra
platan seldist vel, einnig smáskífurnar
með „I Ran” og „Message”. Það var
ekki fyrr en undir lok ársins 1982 að
Bretar tóku við sér og smáskífan með
laginu „Wishing If I Had A Photograph
Of You” komst ofarlega á blað heima í
Bretlandi.
U2
Annarri hljómsveit er vert að gefa
sérstakan gaum: U2 heitir hún og
kemur frá Irlandi. Hljómsveitin hefur
starfað í ein þrjú ár og gefið út þrjár
breiðskífur, „Boy,” „October” og
„War” en sú plata kom út núna á
dögunum. U2 hefur ekki verið mjög
áberandi síðustu misserin, einkanlega
vegna þess að hljómsveitina hefur sár-
lega skort „hit”-lag, en nú virðist ætla
að verða stór breyting á því „New
Year’s Day” er þessa dagana að slá í
gegn. Fyrirliði U2 er söngvarinn Bono,
aðrir í hljómsveitinni eru Larry
Mullen á trommur, Adam Clayton á
bassa og the Edge á gítar og hljóm-
borð. Ef að líkum lætur verður 1983
gott ár fyrir U2 og myndin litla hér til
hliðar er af plötuumslagi 2ja laga plöt-
unnar sem áður er getiö.
-Gsal
tí* Íi«R**w
Halrcut íh
r saman
Nick Heyward, söngvari Haircut 100, hefur tilkynnt
afsögn sína úr hljómsveitinni og þykir það eðlilega
nokkrum tiöindum sæta. Raunar hefur verið vitaö um
skeið að ósætti hefur verið innan hljómsveitarinnar,
sem meðal annars lýsti sér í sífelldum drætti á útkomu
nýrrar breiðskífu og frestun á stórum hluta hljómleika-
ferðalags, en samt kemur úrsögn söngvarans á óvart.
Haircut var talin ein efnilegasta hljómsveitin í Bret-
landi fyrir réttu ári en nú er framtíð hennar óráðin þó
■ekki þyki ósennilegt, að minnsta kosti fyrst um sinn, aö
Mark Fox taki við sönghlutverkinu og hljómsveitin
haldi áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Nick Heyward hyggur á sólóferil og samkvæmt
fregnum frá Bretlandi er að vænta smáskífu frá honum
áður en þessi mánuöur er allur. Breiðskífan, sem var
nær fullunnin, hefur á hinn bóginn verið færð í geymslu
og mun aö líkindum ekki koma út í fyrirsjáanlegri
framtíð. Fyrirhugaðir sjónvarpsþættir í anda Monkees
eru trúlega líka fyrir bí. . . .
hjá Echo & tl
Bunnyincn
: Breska rokksveitin Echo & the Bunnymen, sem til stóð að kæmi
hingað til lands í hljómleikaferð snemma á þessu ári, hefur eins og
kunnugt er frestað þeirri för þangað til síðar i árinu. Hljómsveitin á
nú vaxandi vinsældum aö fagna í Bretlandi, smáskífan meö laginu
„The Cutter” inn á topp tíu og breiðskífa nýkomin út. Plötuumslögin,
bæði á breiðskífunni og sináskífunni, sýna hljómsveitina við Gull-
foss, en Echo & the Bunnymen komu hingað til lands á laun snemma
í vetur og fóru auövitað eins og aðrir túrhestar austur fyrir fjall aö
skoöa Gullfoss og Geysi. Stóia platan heitir „Porcupine” og hefur
fengið blíðar viðtökur í breskú pressunni eins og raunar við var að
búast af einni athyglisverðustu rokksveit Liverpool.
Thln lizzy hættir
Irska hljómsveitin Thin Lizzy mun síðar í þessum
mánuði fara í vísitasíuferð um Bretland og kveðja
aðdáendur sína. Tilkynnt var fyrir nokkru að hljóm-
sveitin væri að kveðja þennan heim eftir tíu ára stars-
feril og að siðasta platan kæmi út í þessum mánuöi
undir nafninu „Thundre And Lightning”. Onnur írsk
hljómsveit hefur lagt upp laupana, sú heitir Stiff Little
Fingers en á móti kemur að Peter, Paul og Mary hafa
ákveðið að taka aftur lagið saman og ekki ósennilegt að
það verði „Leaving On the Jet Plane”........
Afram er haldið að gefa út 2ja laga plötur Bítlanna. I janúar var
lagið „Please Please Me” gefið út á nýjan leik í tilefni af því að
tuttugu ár eru liðin frá því það var gefið út upphaflega. Ekkert frétt-
ist enn af nýrri breiðskífu Paul McCartneys, en það styttist óöum i
fertugsafmæli Harrisons, sem er, eins og alþjóð veit, 25. febrúar.
Nick Heyward