Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 3
DV. FIMMTUDAGUR10. MARS1983. 3 Þjóðminja- safni íslands gefinn sögu- legur bátur Ásbjörn Sigurjónsson á Álafossi af- henti í gær Þjóðminjasafni Islands að gjöf kappróðrarbát þann er föðurbróð- ir hans, Einar Pétursson, reri út á Reykjavíkurhöfn árið 1913 með blá- hvítan fána við hún. Danska varöskip- iö Islands Falk lá þá í höfninni og lét kafteinn þess handtaka Einar og gera fánann upptækan. Vakti mál þetta mikinn úlfaþyt og varð til þess að þrýsta þjóöinni saman um íslenskan sérfána. Þór Magnússon þjóöminjavöröur tók við bátnum í gær og þakkaði hina höfðinglegu gjöf. Á safnið nú bæði bát- inn og fánann en fánann gaf Sigurjón Pétursson, faðir Ásbjörns, Þjóðminja- safninu árið 1922. Sigurjón var einnig eigandi bátsins en gaf hann Ásbirni syni sínum 1936. Hefur báturinn alla tíð verið í góðri hirðu og er í sinni upprunalegu mynd, nema hvað hann hefur verið málaður. Ætlunin er að skafa málninguna af bátnum og gera hann eins og hann var 1913. Tilefni þess að báturinn var afhentur í gær er þaö að Sigurjón, faöir Ás- bjöms, hefði orðiö 95 ára gamall þenn- an dag. Þá eru í sumar 70 ár liðin frá þeim atburðum er gera bát þennan að hluta Islandssögunnar. Báturinn og bláhvíti fáninn verða til sýnis í anddyri Þjóðminjasafns Islands næstuvikur. -SþS Tvær Flugleiðaþotur áfram hjá arabísku félagi Flugleiðir hafa endurnýjað leigu- ar fyrirFIugleiðir, sérstaklega með til- leigt þotumar til eins ár,” sagði samning við Saudi Arabian Airlines liti til þess aö margar þotur standa Siguröur. um tvær DC-6 þotur til eins árs. Flug- óhreyfðar í heiminum í dag,” sagði Þoturnartværeruleigðaránáhafna. vélarnar TF-FLC og TF-FLE verða í Sigurður Helgason „yngri”, fram- Þær hafa veriö hjá arabíska flugfélag- leigu hjá arabíska flugfélaginu til 1. kvæmdastjóri fjármálasviðs Flug- inu undanfarin tvö ár, aðallega í flugi mars 1984. leiöa, í samtali viöDV. milli Evrópu og Saudi Arabíu. „Þetta em mjög hagstæðir samning- „Við erum mjög heppnir að geta -KMU - FERÐATÆKIN / gerð hljómflutningstækja hefur veikleikinn hjá mörgum framleiðendum verið i gerð segul- banda. En AIWA er ekkiiþeim hópi. Segulböndin frá AIWA hafa alls staðar fengið frábæra dóma. Þessi staðreynd er eitt af mörgu sem gerir AIWA ferðatækin svo eftirsóknarverð. öll ferðatækin frá AIWA eru með FM-MW- LW-SW. Gefandi: Asbjörn Sigurjónsson frá Álafossi og með honum sonur hans, Sigurjón Ásbjörnsson. Móttakandi: Þór Magnússon þjóðminjavörður. DV-mynd: GVA Bjarni Pétursson, fyrrverandi forstöðumaður íFesti íGrindavík: „Var ekki vikið úr starfi” — bæjarstjóri að klóra yfir eigin mistök „Eiríkur Alexandersson, bæjarstjóri í Grindavík, vegur ómaklega að mér í DV í gær í forsíöufrétt,” sagði Bjarni Pétursson, íyrrverandi forstöðumaöur félagsheimilisins Festar í Grindavík, er hann hafði samband við blaðið. „Vegna ummæla bæjarstjórans sé ég mig tilneyddan aö svara þessum óhróðri. Hann segir að mér hafi verið vikið úr starfi, sem er ekki rétt. Hinn 21. október síðastliðinn sagöi ég upp störfum hjá Félagsheimilinu Festi er bæjarstjórinn kom til mín vegna verslunarreksturs sem eiginkona min var í þann veginn að hefja. Sagði hann þá að leyfi til reksturs verslunarinnar fengist ekki nema ég segði upp störfum sem ég geröi þá þegar. Eölilegur upp- sagnartími hefði átt aö vera 3 mánuðir en bæjarstjóri og forseti bæjarstjórn- ar, arftaki minn í starfi, óskuöu eftir því viö mig að ég sæti til 1. mars. Oreiðu í bókhaldi má kannski til sanns vegar færa en með stórfréttauppslætti tel ég bæjarstjóra, sem einnig er stjórn- arformaður í Félagsheimilinu Festi, vera að frýja sig ábyrgð gagnvart al- menningi en þau 2 1/2 ár, sem ég rak Festi, voru aðeins haldnir 3 stjórnar- fundir, þar af 1 sem ég boöaði til vegna kjara minna. Einnig gerði ég tilraun til fundarboöunar fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar síðastliðið vor en þá sáu aöeLns 2 fulltrúar sér fært að mæta. Á fundi stjórnar eigendafélags Félags- heimilisins Festar nú fyrir skömmu upplýsti bæjarstjóri, aðspuröur, að vegna gruns um að „bókhald væri ekki tilbúiö” sæi hann ekki ástæöu til aö halda fund. Hvenær, ef ekki þá? Eg hætti sjálfviljugur störfum 31. janúar síðastliöinn í Félagsheimilinu Festi vegna þess að bæjarstjórinn, sem þá haföi tekið við prókúru, neitaði að greiða mér laun á þeim forsendum að ég heföi greitt mér laun fyrir yfir- vinnu en ég var ráðinn samkvæmt samningum BSRB og virðist mér sem bæjarstjóri, þrátt fyrir 12 ára starf sem slíkur, hafi ekki enn skilið samn- inga BSRB. Eftir bæjarstjórnarkosn- ingarnar síöastliðið vor lenti ég í þeirri aðstöðu að vera í samningaviðræöum um myndun meirihluta bæjarstjórnar. Ég og þeir, sem sátu sömu megin borðs og ég, gerðum að kröfu að nýr bæjar- stjóri yrði ráðinn. Eftir það þekki ég ekki bæjarstjóra sem sama mann og áður. Öll framkoma hans gagnvart mér gjörbreyttist. Ég tel því undirrót þess- ara rógskrifa pólitíska og einnig aö bæjarstjóri sé að reyna að klóra yfir eigin mistök.” JBH Athugasemd: Frétt DV í gær var unnin algerlega aö frumkvæði blaðs- ins. Bjarni staðfestir sjálfur fréttina, sem var um bókhaldsóreiðu. Staðsetn- ing fréttarinnar í blaðinu er að sjálf- sögðu blaösins en ekki bæjarstjóra. -Fréttastj. Fermingargjöfin í ár AIWA ferðatæki D i • i Kaaio i r ARMULA 38 iSelmúla megin) » 105REYKJAVIK SIMAR: 31133 83177- POSTHOLF 1366 VERÐLÆKKUN Vegna hagstæðra samninga við ATOMIC og CABER getum við boðið ótrúlega hagstætt verð á ATOMIC skíðum og CABER skíðaskóm. ARC Carbon Bionic ARC Bionic Team SL ARC Bionic Team RS ARC Excellent Var 6.640,00 6.450,00 6.450,00 3.790,00 Var Nú 4.650,- 4.515,- 4.515,- 2.653,- Nú Hér er þó aðeins um mjög takmarkað magn að ræða. ATOMIC SKÍÐI Var Nú MID Bionic MID Dominator MID Supreme MID Sport 5.950,00 4.165,- ARC Worldcup 140—175 2.350,00 1.645,- 5.277,00 3.695,- ARC Worldcup 120—130 2.285,00 1.599,- 3.550,00 2.485,- ARC Pro 160—170 1.997,00 1.397,- 2.710,00 1.895,- ARC Pro 140—150 ARC Pro 120—130 1.847,00 1.696,00 1.295,- 1.187,- CABER SKÍÐASKOR Var Nú Gold 2 4.470,00 2.680,- Sideral 4.265,00 2.560,- Equipe 3.678,00 2.250,- Impulse 3.115,00 1.865,- Equipe Jr. 2.355,00 1.415,- Targa 2.030,00 1.215,- Mirage 1.641,00 985,- Devil 1.405,00 845,- Alfetta 1.245,00 745,- Pioneer 1.065,00 640,- gengi03031983. SPOBTVAl ILAUGAVEGI 116, VIÐ HLEMMTORC- SÍMAR 14390 26690

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.