Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 39
DV. FIMMTUDAGUR10. MARS1983. 39 Fyrir skömmu birtí DV forsiöu- mynd frá hádegisleikfimi stúlkn- enna i fiskverkun Bæjarútgerdar Reykjavikur. Margir hafa spurst fyrir um þessa skemmtilegu nýbreytni og skruppum viö á staðinn til þess að rabba við upp- hafskonur leikfiminnar, þær Bryn- disi Axelsdóttur og Guðrúnu Þórðardóttur og þjálfarann sköru- loga, hana Aðalheiði Frantzdóttur, sem stendur lengst tíl hægri á myndinni og skipar fyrir af mikilli hörku enda kann hún ýmislegt fyrir sir i iþróttum og veit að góður árangur fæst ekki án fyrir- hmfnar. DV-myndir S. stækkaöi hópurinn ört og flestar vorum viö35.” „Þaö var þegar hún Alla var í burtu! ” sagði Bryndís og hló. „Þá hefurðu leyft þeim að slugsa!” sagði Aðalheiöur aö bragði. — En hvernig atvikaðist það að þú gerðist þjálfari hópsins, Aðalheiður? „Þær voru byrjaðar á þessu og ég fékk að vera með en þá sá ég að þær geröu nokkrar æfingarnar ekki alveg rétt og fór að segja þeim til,” sagði Aðalheiður og kveikti sér í vindlingi en ilmandi reykurinn bylgjaðist um loftið og kitlaði nasavængina. — Þú keyrir þær áfram af ansi mikilli hörku. „Það þýðir ekki annað. Annaðhvort verða menn að stunda svona lagaö svo aö um munar eöa láta það eiga sig. Þaö er klukkustundar hlé í hádeginu og það segir sig sjálft að menn verða slappir og kólna upp ef þeir bara setjast niöur og éta og hreyfa sig ekkert. En þessi leikfimi heldur öllum líkamanum vel heitum og liðugum, örvar blóðrásina, styrkir vöðvana og brennir fitunni,” sagðiAðalheiður. — Ertþúnokkuðí vöðvarækt? „Nei, ég er ekkert hneigð fyrir hana. Leikfimi eins og sú sem við stundum hér er yfrið nóg til þess að grenna sig, þú verður bæði liðugur, stæltur og vel á þigkominn.” — Hver, ég? varð mér á orði og vissi ekki sem snöggvast hvort hún ætti við mig eða Svenna ljósmyndara. En þá hlógu stelpumar dularfullar, spruttu á fætur og snöruöust fram því nú var hádegisstundin liðin og kominn fiskur á færibandiö. Það er æsispennandi handknatt- leiksleikur í beinni útsendingu í sjón- varpinu, þaö eru þrjár mínútur til leiksloka og íslensku strákamir eru búnir að vinna upp fimm marka for- skot Vestur-Þjóðverja og komnir einu marki yfir — „ótrúlegt en satt”, æpir Hermann Gunnarsson í útvarpinu, og ótrúlegt en satt verður þér að oröi þegar leiknum er lokið með íslenskum sigri og þér verður litið á finguma á sjálfum þér og uppgötvar að neglumar eru nagaðar upp í kvxku. Ljóta ástandið, en það er ekki gott við því að gera. Það er einn algengasti ósiður mannkynsins að naga á sér neglurnar, og þeir hálærðu vísinda- menn úti í heini, sem linnulaust em aö grafast eftir smæstu atriðum mann- legrar hegðunar, hafa uppgötvað vest- ur í Ameríku, að kringum30% háskóla- stúdenta þar naga á sér neglurnar í tíma og ótíma. Sem betur fer virðist þessi ávani dvína með aldrinum (eins og ýmislegt annað) og þegar komið er um fertugt naga aðeins 8% á sér neglurnar. Þeir hinir sömu vísindamenn sem fyrr er getið hafa dottið niður á injög svo heilladrjúga aðferð til þess að venja fólk af ósómanum, og þykir okk- ur dægradvölum ekki nema sann- gjamt að koma henni áleiðis til þeirra lesenda okkar, sem ekki geta stillt sig um að fá sér bita af og til. Aðferðin er þessi: berðu á þér lítið umslag hvert sem þú ferð og þegar freistingin ber þig ofurliði skaltu merkja kross utan á umslagið og stinga naglbitanum niður í það, í stað þess aö háma hann í þig. Skráðu síðan afrakstur hvers dags og búðu til línurit yfir framleiösluna. Haltu nöglunum ævinlega vel snyrtum og fægðum, þá hefurðu enga afsökun fyrir að naga þær. Berðu gjaman á þær bragðvond efni. Þegar þér hefur lánast að lifa af fyrstu heilu vikuna án þess að fá þér snarl af eigin fingrum, þá haltu upp á daginn á einhvern viðeigandi hátt: farðu í handsnyrtingu ef þú átt kost á því, skrepptu á fjölskylduhátíð á Broadway eða bjóddu sjálfum þér upp á herlegar krásir á flottum veitinga- stað. Vísindamennimir heita þér góöum árangri ef þú beitir þessari úthugsuöu aðferð. Hvorki meira né minna en 99,5% allra sem reyna hana venja sig af ósiðnum og skarta æ síðan fögrum nöglum og fínpússuðum. stínga naglbitanum ofan lþað, i stað þess að háma hann iþig. „Halla ykkur meira „Aftur nú eins langt og þiö getiö,” kallaði rauðhærða snarfenglega stúlk- an og renndi hvössum augum yfir hóp- inn til þess að gá hvort nokkur væri að slugsa. „Halla ykkur vel aftur, já, einn og tveirogþrírogfjórir.. .” „Ææææææ, hún slítur á okkur lær- in!” veinaði ein stúlkan en alls voru þær 19 taldist mér til, stúlkurnar í Bæjarútgerð Reykjavíkur, sem koma saman hálftíma í hádeginu til þess að stæla líkamann og kasta burt vöðva- bólgunum. ....og fimm og sex og sjö og kyrrar og upp og aftur, halla ykkur meira aft- ur og ekkert hangs! ” „Æ, Alla mín, ekki svona hörð!” En Aðalheiður Frantzdóttir sýndi enga miskunnsemi, „næst eru það brjóstæfingarnar,” sagði hún og þá hlógu allar, spenntu saman olnbogana fjrir framan sig og hnykktu brjóstun- um, þessu marglofaöa stolti kven- þjóöarinnar, og þá var ekki alveg frítt „Þá eru það brjóstæfingarnar stelpur, " sagði Aðalheiður llengst tíi hœgri) og þá hiógu þær allar, spenntu saman olnbogana fyrir framan sig og hnykktu brjóst- unum, þessu marglofaða stoltí kvenþjóðarinnar." ■-----> Forvígiskonur hádegisleikfiminnar, frá vinstri: Guðrún Þórðardóttír, Aðal- heiður Frantzdóttir og Bryndis Axelsdóttír. O V-myndir S. við að fáeinir vinnufélagar af „sterk- ,,Svona,komiðþiðnúmeð, strákar,” ara” kyninu slæddust á vettvang til kallaði ein, „verið ekki svona feimn- þessaðmissa ekkiaf neinu. ir.” i — Er þessi hádegisleikfimi líka fyrir stráka, spuröi ég. „Hún er fyrir alla sem vilja vera meö okkur,” sagði Bryndís Axelsdótt- ir, en hún er reyndar upphafskona há- degisleikfiminnar ásamt Guðrúnu Þórðardóttur. „Við byrjuðum á þessu fyrir 6 vik- um,” sagðiGuðrún. — Bara 6 vikum? Og strax orðnar svona grannar? „Við erum nú í megrun líka,” sagöi Bryndis, „við sáum að þetta gat ekki gengiö svona lengur, við vorum orðnar svo þybbnar. Við erum báðar með bam og höfum ekki tima til þess að fara í líkamsrækt á kvöldin svo að þetta var eina leiðin — að nota hádegið til leikfimisiðkana.” — Og þið finniö svona mikinn mun á ykkur? „Je minn, já. Þetta er allt annað, við erum orðnar miklu harðari og stinn- ari,” sagðiGuörún. „Það er mjög ein- hæf hreyfing í því sem ég vinn héma og heldur bara fáeinum vöðvum í þjálfun. Fyrst héldu stelpurnar að þetta væri bara fyrir einhverja litla klíku en við sögöum að allir mættu vera með og þá DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Ertu naglbítur?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.