Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 7
DV. FIMMTUDAGUR 10. MARS1983. 7 jr Neytendur VERÐKÖNNUN Á AKRANESI Dagana 24. febrúar til 2. mars var svokölluð opin vika hjá nemendum Fjölbrautaskólans á Akranesi. Venjuleg stundaskrá var felld niður þessa viku og nemendur völdu sér ýmis frjáls verkefni sem þeir unnu ásamt kennurum. Tuttugu og þrír nemendur völdu sér þaö hópverkefni að gera verðkannanir í verslunum á Akranesi. Niðurstöður þessara verð- kannana hópsins hafa borist okkur og er þar margt forvitnilegt að finna. Hópurinn gerði verðkönnun í sex matvöruverslunum á Akranesi 24. febrúar, kannaði verð á vísitölu- brauðum i tveimur bakaríum sama dag, kannaöi síðan verðmerkingar í verslunargluggum og verð á hljóm- plötum. Jafnframt voru gerðar verð- kannanir á sportvörum og málningu og athugað verðlag í sjoppum. Að síðustu var einnig kannaö verölag á hárgreiöslustofum og hjá hárskerum og gerður verðsamanburður á klipp- ingum, permanenti, hárþvotti og annarri þjónustu sem veitt er á slikum stofum. Verðkannanir nem- endahópsins eru mjög vel unnar en það yfirgripsmiklar að erfitt er að birta allar niðurstöðumar og verður því stiklað á stóru. Mest vöruúrval í Einarsbúð I kaupfélaginu fengust 37 vöruteg- undir af 45 = 82,2%. I Einarsbúö fengust 40 af 45 = 88,8% og var þaö besta útkoman. Af 45 vörutegund- um fengust 36 í SS búðinni = 80,00%. I versluninni Laugarbakka fengust 28 af 45 vörutegundum sem er 62,2%. Verðkönnunin náði einnig til tveggja verslana Skagavers, þeirrar efri og rieöri, sem eru aögreindar á list- anum. SN er vörumarkaður og SE er útibú. I Skagaveri neðra fengust 38 af 45 vörutegundum = 84,4%. 1 efri versluninni fengust 34 af 45 = 77,7%. Þegar við lítum yfir vörulistann má sjá að mikill verðmunur er t.d. á flórsykri, tvö kíló kosta kr. 6,25 í Einarsbúð, en kr. 11,40 í kaupfélag- inu, mismunurinn er 45,17%. Annaö dæmi er Pama hrismjöl i 350 g pakka sem kostar kr. 13,00 í Skagaveri (SN), kostar kr. 21,40 í kaupfélaginu og er mismunurinn 39,25%. Royal lyftiduft (450 g) kostar kr. 8,90 í versluninni Laugarbakka en kr. 34,45 í SS búöinni og er mismunurinn á verði á þessari einu vörutegund 74,16%. Verðmunur á lægsta og hæsta kílóverði á eggjum er 46,18%, en kílóið kostar kr. 37,00 í Skagaveri (báðum verslununum) en kr. 68,75 í kaupfélaginu. Nemendurnir í Fjölbrautaskólan- um á Akranesi reiknuöu út hversu margar mínútur þyrfti til að vinna fyrir hverri vörutegund og höfðu meðalverð hverrar vöru til hliðsjón- ar. Einnig gera þeir samanburð sem er byggður á meöaltölum úr könnun sem gerð var 4. nóv. 1982. Kauptaxti er miðaður við 8. flokk A í samning- um Verkalýðsfélags Akraness á hverjum tíma. Meðalverð á Solgryn haframjöli (950 g) í þessari könnun nú var kr. 36,29.1. nóv. 1982 þurfti 40 mín. vinnutíma til aö vinna fyrir haframjölspakkanum. En 1. janúar 1983 var vinnutíminn kominn í 50,50 mínútur. Meðalverð á Nivea kremi (60 ml) var kr. 14,19 og vinnutími fyrra skiptið 22 mínútur en frá 1. jan. 19,74 minútur. Meðalverð á Royal vanillubúðingi (90 g) var í þessari könnun kr. 27,87 og tók 8 mínútur, eftir taxta frá 1. nóvember, að vinna fyrir búöingnum en frá 1. janúar var vinnutiminn kominn í 38,78 mínútur. Verð á vísitölu- brauðum of hátt I tveimur bakaríum á Akranesi, Harðarbakaríi og Brauð- og köku- gerðinni, var gerð verðkönnun á vísi- tölubrauöum. Verðið á brauöunum er tekið úr verðlista frá 23. febrúar 1983 og eru bæði bakaríin með sama verðlista. Mismunur á verði vísitölubrauð- anna er frá 9,9% til 19,1% meiri en leyfilegt verð er. Bakaríin tvö gefa út verðlista sem er töluvert yfir leyfi- legu verði (sjá lista). Maltbrauö kostar kr. 10,45 í bakaríunum en leyfilegt verð á maltbrauði er kr. 8,90, 14,8% dýrara en leyfilegt er. Sigtibrauð kostar einnig kr. 10,45 á Akranesi en leyfilegt verð er kr. 8,45 (19.1%dýrara). A verðlistanum sést að rúgbrauð (12 sneiðar) kosta kr. 14,10 en þar af er niðursneiðing á brauðinu kr. 3,00, sem dregið er frá og kostar rúg- brauðiö kr. 11,10, en á að kosta kr. 10,00. Mismunurinn á verði vísitölu- brauðanna getur hvorki legið í flutn- ingskostnaöi hráefnis né mismun- andiþyngd brauða. Hækkunin frá leyfilega verðinu vegna flutningskostnaðar getur orðið í mesta lagi 1—2% samkvæmt upplýsingum frá Verðlagsstofnun. Hér hefur aðeins veriö stiklað á stóru í þessari verðkönnun nemend- anna í Fjölbrautaskólanum á Akra- nesi. Ymislegt fleira er markvert í þessari könnun sem verður ef til vill vikið að síðar. En það er ánægjulegt að þessi hópur skuli hafa sýnt þessu verkefni áhuga og vel er verkið unn- ið. -ÞG Halldór á þvottaplani nýju stöðvarinnar. / baksýn má sjá mann bóna bilinn sinn. DV-mynd GVA. FERMINGARGJÖFIN I AR Rúm m/útvarpi, klukku, segulbandi, bókahillu og dýnu. Technics ■ Technics Z-25 Fermingarsettið í ár er Technics Z-25. Þaö þarf ekki mörg orö til að lýsa gæöum Technics Z-25, hún gerir þaö sjálf, en smá punktar saka ekki. Hún er 2 x 30 sin vött meö 50 vatta hátölurum. Kassettutæki meö sviöiö 20—17000 hz. Sterló útvarp meö FM, MW, LW. Klassaspilari meö beinum armi og aö sjálfsögöu skápur á hjólum meö glerloki og huró. Þú færð mikið fyrir peningana hjá Technics. m JAPIS hf. Technics ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.