Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 8
8 DV. FIMMTUDAGUR10. MARS1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Olía frá borstöövum í Norðursjó á borð við þessa hefur gert strik i útreikninga OPEC-ráðherranna. Armenar ráðast enn á Tyrkjadiplómat Samkomulag um olíu- verö i sjónmáli hjá OPEC Ahmed Yamani, oliuráðherra Saudi Arabíu, sagði í London í gærkvöldi að hann væri bjartsýnn á að samkomulag næðist um olíuverö OPECs í lok vik- unnar. Viðræöur olíuráðherranna stóðu langt fram eftir kvöldi í gær. Hefur kvisast að menn séu ásáttir um $5 lækkun á olíunni, en eftir sé að ákveöa framleiöslukvótana og hvemig menn skipti markaðnum á milli sín. Ef af þessu verður mun hið opinbera lágmarksverð OPEC-olíu verða $29 og afstýrt verður verðlækkanastríðinu, sem var í uppsiglingu meöal olíufram- leiðsluríkja. Sum þeirra hafa undir- boðiö félaga sína til þess að auka hlut sinn í markaðnum. Heyrst hefur að Nígería fái aö selja gæöaolíu sína á $30 fatið, á meðan aðrir olíuútflytjendur í Afríku ætli að selja sína oliu á $30,50 fatiö. I dag taka ráðherramir til viö aö semja um markaðsskiptinguna. Niðurstöður OPEC-viðræðnanna í London þykja nokkuð háöar því hvað olíuframleiðendur í Norðursjó, Bretar og Norðmenn, ætli að gera. Þeir lækkuðu sína olíu á dögunum um þrjá dollara. Lækki þeir hana enn munu olíuráðherrar OPEC koma að nýju saman til þess aö ræöa frekari aðgerðir samtakanna. Samkomulag mun hafa náðst um að minnka heildarframleiðslu OPEC- ríkja um að minnsta kosti milljón tunnur á dag (eöa niður í 17,5 milljónir oh'ufata) til þess að verja verðið á markaðnum. Embættismaður Reagans víkur út afhneyksli Forstööumaður umhverfisvemdar- ráðs Bandarikjanna sagði af sér í gær- kvöldi og þykir þá létt af Reagan Bandaríkjaforseta nokkru fargi vegna hneykslis sem orðað hefur verið við ráðið. Anne Burford hefur verið sökuö um það í þinginu að hafa beitt ráðinu póli- tískt fyrir sig og misnotað fjármuni þess. Sagði hún Reagan forseta að hún væri stolt af starfi sínu í ráðinu en segði af sér vegna deilu sem gerði henni ókleift að gegna því. I uppsögninni vék hún ekki að ávirð- ingum um að óreiða væri á $1,6 millj- arða sjóði sem ráðið hefur til að hrinda í framkvæmd áætlunum um hreinsun eiturúrgangsefna á 400 stöðum í Bandaríkjunum. Starfsmenn ráðsins, sem leiddir hafa verið fram til vitnis í þinginu um starfshætti þess hafa verið sakaðir um að bera ljúgvitni. Einkan- lega varðandi s jóöinn. Sex þingnefndir hafa verið settar á laggimar til þess aö rannsaka starfs- hætti umhverfisverndarráðs. Vitni hafa gefið sig fram sem sáu hann flýja tilræðisstaðinn í Alfa Romeo-bifreið, en henni ók kona. Bíll- inn fannst síðar yfirgefinn í úthverfi Belgrad. Tilræðismennirnir höfðu notað tæki- færið, þegar sendiherrabílhnn nam staðar á rauðum umferðarljósum í miðbæ höfuðborgarinnar, og hafið skothríð á bílinn. Tvö skot hæfðu sendi- herrann. „Réttlætisvíkingamir” eru taldir bera ábyrgð á fimmtán árásum á Tyrki síðan 1975. Þeir saka Tyrki um morð á 1,5 milljón Armenum 1915. Um 100 þúsund selir hafa nú safnast í St. Lawrenceflóa til að kæpa. Selveiðin frestast Um 100 þúsund sehr hafa safnast í St. Lawrenceflóa í Kanada til þess að kæpa en hin umdeilda selveiði Kanada- manna er þó ekki hafin ennþá. Selskinn em nú alveg horfin af markaði í Evrópu eftir að EBE setti bann viö innflutningi á kópaskinnum. — Kanadískir selfangarar bíða eftir því að selkóparnir stækki. Kópamir fæðast í mjólkurhárum, sem byrjar að dökkna eftir tíu daga. Um 300 selveiðimenn hafa heimild- arbréf upp á að þeir megi veiða í fló- anum. Sútarar hafa boðist til þess að kaupa um 60 þúsund skinn af fuhorön- um selum þetta árið. — Er búist við að veiðin dragist saman um helming frá því sem vant er. Við Nýfundnaland, þar sem eru önn- ur mestu selveiöimið í heimi, er nú haf- ís og ógæftir. Stærri selfangarar, sem sækja þaðan lengra, leggja ekki upp fyrr en í lok mánaðarins. Júgóslavneska lögreglan leitar nú dyrum og dyngjum annars tilræöis- mannanna sem í gærmorgun særðu alvarlega í fyrirsát sendiherra Tyrklands í Belgrad. Viö allar útgönguleiðir úr borginni voru lögreglumenn á vappi. Á vegum, flugvöllum og járnbrautarstöðvum. Naumast var þverfótað í umferðinni fyrir lögreglubUum í eftirUti. Yfirvöld segjast hafa handsamaö hinn tUræðismanninn. Sendiherrann, Gahp Balkar, liggur mUh heims og helju en hann var skorinn upp í gær vegna sára sinna. Ein kúlan haföi komist inn í heUa. Einn júgóslavneskur námsmaður lét lífið þegar hann reyndi aö koma í veg fyrir árásina. Júgóslavneskur ofursti (kominn á eUUaun) særðist alvarlega þegar hann lenti í miðri kúlnahríð tilræðismannanna og lögreglunnar. Samtök, semkalla sig „Réttlætisvík- inga” og leita hefnda fyrir þjóðar- morð á Armenum, segjast hafa staöið aö þessu tilræði. Tilræöismaðurinn sem handsam- aður var heitir Haroutiony Krikor Levonian og er 23 ára. Hann bar á sér vegabréf frá Líbanon. Hann er sagöur alvarlega særöur eftir skotbardagann við lögregluna. — Lögreglan telur að félagi hans beri sömuleiðis líbanskt vegabréf í nafni Alexanders E1 Bekiyan. Er nákvæm lýsing gefin á honum. hermenn komu tU þess að handtaka hann, hefur farið huldu höföi síðan fyrir helgi en skaut í gær upp kolhnum í nágrannaríkinu Botswana. Bots- wana-yfirvöld sögðu að Nkomo yrði þar til bráöabirgöa á meðan hann mæti kringumstæöur íheimalandinu. Yfirvöld í Harare (Zimbabwe) sögðu í gærkvöldi að Nkomo hefði flúið land- veginn í dularklæöum. Nkomo sakar Mugabe, forsætisráð- herra og fyrrum samherja í skæru- hernaði þjóðemissinna blökkumanna, um að hafa mælt svo fyrir að hann, Nkomo, skuli drepinn. Mugabe hefur vísað þeim ásökunum á bug. Mikið hefur borið á ofbeldis- og hryðjuverkum í Zimbabwe undan- fama mánuði og hefur stjómin kennt um leifum Zipra-skæruliöaflokks Nkomos. Er Nkomo sakaður um að standa að baki ólgunni. Nkomo ber stjómarherflokkum á brýn að fara með morðum á óbreyttum borgumm í Matabelelandi, þar sem hann og ZAPU hafa átt mest ítök. En stjómin heldur því fram, að skæruliðar dulbúist sem stjómarhsrmenn og ræni, rupli og myrði í héraðinu. Ýmsir vestrænir fréttamenn í Zimbabwe segjast hafa orðið varir við að fjöldamorð hafi veriö framin í þorpum í dreifbýlinu og að innfæddir haldi því fram að stjórnarherinn hafi verið þar að verki. Upplýsingaráðherrann kunngerði í gærkvöldi að stjómin mundi taka hart á þeim erlendum fréttaritumm sem breiddu út óhróöur um stjórnina. Háttsettir foringjar í stjórnarand- stöðuarmi Joshua Nkomo hafa hótað að víkja honum úr forystu ZAPU- flokksins ef hann ekki snúi heim aftur úr s jálfskaparútlegð sinni. Hin opinbera fréttastofa, Ziana, í Zimbabwe hefur eftir tveim ónafn- greindum foringjum ZAPU-samtak- anna að miðstjórn flokksins muni senn krefjast þess að Nkomo snúi annað- hvort heim eða láti af forystu samtak- anna. Nkomo, sem slapp naumlega af heimili sínu fyrir helgi þegar stjórnar- Bænar- skjalið var skrifað með eigin blóði Átta árum eftir aö Víetnamstríð- ið skildi þau að hefur víetnömsk fjölskylda ein í Montreal loks sam- einast að nýju vegna þess aö móðir- in skrifaði ráðherrum bænarbréf með eigin blóði. Ngan-Ha Vo-Nguyen og Viet Thu, eiginmaður hennar, voru bæði háttsett í stjórn S-Víetnams þegar þau flúðu tÚ Kanada 1975. Skildu þau böm sín sex eftir hjá ömm- unni. Öll viðleitni til þess að fá börnin til Kanada reyndist árangurslaus þar til þau hjónin skrifuðu bréf til innflytjendaráðherra Kanada. Fyrir blek notuðu þau eigið blóö, sem þau kreistu úr fingurgómun- um. Á dögunum komu börnin sex til foreldra sinna og tveggja systkina sem fæðst höföu í Kanada. Foreldr- amir segja að fjölskyldan sé þó ekki enn búin að ná fullri tölu. Þau ætla að eignast fleiri böm. Nkomo flúdi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.