Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR10. MARS1983. SÆNSKA FANGELSISKERFIÐ STEFN- IR AÐ UPPBYGGILEGRIFANGAVIST — segir Peter Nilsson, einn yfirmanna þess kerfis Peter Nilsson, yfirmaöur eöa náms- stjóri kennslu og þjálfunar starfsfólks í sænskum fangelsum, er staddur hér um þessar mundir. Tilefniö er fundur yfir- manna kennslu starfsfólks viö fangels- iskerfi Noröurlandanna. Eitt viöfangs- efna fundarins er árleg samnorræn ráöstefna um þessi mál. Hún veröur haldin í Finnlandi í september. Island hefur tekið þátt í samstarfinu undan- farintvöár. Starfsbræður Peter Nilsson á hinum Noröurlöndunum munu nú koma hér hver af öðrum. Hann bar þó fyrstan aö garöi og var því beðinn aö segja dálítið frástarfisínu: „Sænska fangelsiskerfið er svo stórt aö eiginlega er ómögulegt að gera grein fyrir því í stuttu blaöaviötali. Ég skal þó reyna aö stikla á stóru í þeim efnum: Við þaö vinna um þaö bil átta þúsund manns, aö öllum starfsmönn- um töldum. Ef viö yfirleitt miöum all- ar tölumar viö ,,um þaö bil”, þá eru fangarnir fjögur þúsund og fimm hundruð. Skilorðsbundnir dómar nema síðan einum fimmtán þúsundum. Þessu sinna nítján ríkisfangelsi, sex- tíu héraösfangelsi, fimmtán gæslu- varðshaldsfangelsi og níutíu skilorös- eftirlitsstofnanir, hver meö eina tutt- ugustarfsmenn. Til þess aö geta rætt fangelsiskerfi okkar verö ég fyrst aö minnast á hvaöa markmiði viö viljum að það þjóni. Til- gangur þess er ekki aö vera refsikerfi heldur miðar aö því aö gera fangelsis- vistina eins uppbyggilega og minnst mannskemmandi og unnt er. Síöan reynum við aö auövelda fyrrverandi föngum aðlögun að samfélaginu; reyn- um að kenna þeim eitthvaö hagnýtt, svo sem iön, á meðan á fangavist stendur. Og að henni lokinni aöstoöum viö þá í sambandi viö húsnæði, vinnu og þess háttar. Vandað er til vals þeirra er fangels- isstörfum sinna. Þeir hljóta þjálfun með þaö fyrir augum aö vera færir um aö endurhæfa fangana. Þannig má nefna að sænskir fangaveröir hljóta meiri fræðslu í sálfræöi en almennur hjúkrunarfræðingur. Mikil áhersla er síðan lögö á kennslu í meðferð geö- sjúkra. Nýliðar eru valdir úr nágrenni hvers fangelsis. Að forvali loknu hljóta þeir tveggja vikna hagnýta þjálfun. Ef starf er laust eru þeir efnilegustu þá ráönir. Eftir fjögurra mánaöa starf eru þeir endurmetnir. Þaö mat er svo endurtekiö eftir átta mánaöa starf. Þegar fangavöröur hefur hlotið tveggja til þriggja ára starfsreynslu fer hann til Norrköping eða Stokk- hólms, þar sem hann enn hlýtur tólf vikna sérþjálfun, í meöal annars eftir- töldu: Sálfræöi, félagsfræöi, sjálfs- vörn og meðferð fanga yfirleitt. — Og enn eru stig í þjálfun fangavaröa ótal- in. Mikil áhersla er lögö á þátttöku fanga í hvers konar félagssamskipt- um. Margir þeirra, er lenda út á hálar brautir, hafa nefnilega aldrei kynnst venjulegum mannlegum samskiptum; kunna ekki aö þrífast í samfélagi. Hjá okkur þurfa fangaveröir aö hafa grundvallarmenntun sem samsvarar stúdentsprófi. Og fangaverðirnir okkar koma úr hinum fjölbreyttustu starfsgreinum, þótt viö höfum ekki síst áhuga á fólki meö „hagnýta” þekk- ingu, svo sem í hinum ýmsu iöngrein- um. Vegna samdráttar á vinnumarkaöi langskólagenginna manna er töluvert um slíkt fólk meðal fangavaröanna. Þar má meðal annarra nefna einn lækni og síðan marga félagsfræöinga, sálfræðinga, laganema, sjúkraliöa, og þar fram eftir götunum. Á árlegum ráöstefnum Noröurland- anna um þessi efni skiptumst viö á reynslu og hvers konar niöurstööum athugana. Arið ’81 var ráöstefnan haldin í Svíþjóö. Þá voru fíkniefnin á dagskrá og meðferð fíkniefnasjúkl- inga. Arið ’82 var þessi ráöstefna haldin í Danmörku. Umfjöllunarefniö þar var staöa refsikerfisins í þjóöfélaginu. Ráöstefnuefni þessa árs ræðst af undirbúningsfundinum er nú veröur í Reykjavík.” -FG. Peter NUsson, yfirmaður kennslu og þjálfunar starfsfólks í sænskum fangelsum. DV-mynd GVA. FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ lí LAUGARDALSHÖLL í KVÖLD 75 ára 1983 KL.20 Dagskrá: Fram — FH 1960—70 — handbolti old boys. Stjörnulið Ömars Ragnarssonar — Stjórn KSÍ + Albert Guðmundsson. Ironheads í fyrsta sinn á Islandi. old girls í handbolta. Vítakeppni áhorfenda, Val Brazy og Kristinn Jörundsson. Hljómlist: Pétur Kristjánsson. ÍÉhb yT’Jsi Ömar Albert Geir Þórhallur Ragnarsson, Guðmundsson, Hallsteinsson, (Laddi) Sigurðsson, Hermann Gunnarsson, Magnús Ölafsson, Ellert Schram. KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ FRAM.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.