Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Síða 40
40
DV. FIMMTUDAGUR10. MARS1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Að lokinni sveiflu i Blómasalnum einn sunnudaginn fyrir stuttu. Talið frá vinstri: Olafur Stephensen, en hann sór um auglýsingar Flugleiða, Guð-
mundur Ingólfsson, Steinþór Steingrimsson, Sveinn Óli Jónsson og Friðrik Theódórsson.
„Á Trigger kemstu það. Áttatíu
hestöfí. . . " Mark og Peter viðra
Triggeri Sandringham.
Hott, hott...
Peter Phillips, sonur þeirra önnu
prinsessu og Mark Phillips, hefur feng-
iö sinn eigin hest aö gjöf. Og stráksi
var ekki í vandræðum meö aö gefa
hestinum nafn. Trigger var þaö, annað
kom ekki til greina.
Þegar þeir feðgar voru á ferð í
Sandringham nýlega viöraöi Peter aö
sjálfsögðu Trigger. Hestar þurfa jú
gott loft eins og aörir.
Ekki sást til Önnu meö þeim feög-
um. Menn hafa hallast að því, svona
meira í stríöni, aö kannski hafi hún
verið í útreiöatúr meö dótturinni ungu,
Zöru. Nægur er áhuginn, hestum aö
minnsta kosti, í fjölskyldunnL
Árstíðasveiflur
hjá djössurunum
— í Blómasalnum á Loftleiðum
„Sumariö erkomiö á Hótel Loftleiö-
um.” Já, þeir voru ekki í vandræðum
meö aö koma oröum og tónum aö hlut-
unum, djassararnir sem við rákumst á
einn sunnudaginn í Blómasalnum á
Hótel Loftleiðum.
Með sannar árstíða „sveiflur”, og
eins og aðrir víkingar höföu ekkert á
hornum sér, sögöust þeir hafa snurfus-
aö nótnaheftin og samiö við hljóöfærin,
um aö skemmta matargestum í
Blómasalnum með skemmtilegum
djasslögum.
Og hvernig getur fólk annað en trú-
aö fullyröingu þeirra djassara, þegar
þeir koma meö lög eins og ,,Sommer-
time” „Take five” „You’d besoniceto
came home too.” Þó getur verið vafa-
samt aö spila lög eins og „Autumn
leaves”, Haustlauf, í Blómasalnum,
þar sem blómin þar eru meö á nótun-
um og ekkert á því aö fara aö fella lauf-
in.
Aö sögn þeirra á Loftleiöum verða
djassaramir fram á vor í hádeginu á
sunnudögum. Þetta eru ýmsir kappar
sem spila, menn eins og Guömundur
Ingólfsson, Steinþór Steingrímsson,
Sveinn Oli Jónsson og Friðrik Theó-
dórsson, svo einhver jir séu nefndir.
Svo virðist sem tónarnir hafi góð
áhrif á matargesti því þeir tala óspart
viö brytann um borð í víkingaskipinu
og fá hjá honum „Brunch” mat, svo-
kallaöan JassBrunch. En slíkur matur
mun vera kalt borö meö ýmsu ívafi.
Sumir segja að djassararnir ættu að
semja „Takethree ” í skyndi, því þeir
spila frá 12.00 til 15.00 þessa sunnu-
daga, eöa alls í þrjá tima.
-JGH
Við mamma
erum líkar
Þær taka sig vel út mæðgumar
Taryn Power og Linda Christian.
Taryn er 29 ára gömul og er dóttir
Lindu og leikarans Tyrone Power.
Mamman, Linda, er aöeins 29 ár-
um eldri en dóttirin. En þrátt fyrir
þaö er hún svo ungleg aö vel væri
hægt aö líta á þær sem systur.
Taryn starfar sem leikkona í
borginni heilögu, Holiywood, en
mamman býr í Mexico. Aö sögn
reyna þær að hittast eins oft og
mögulegt er enda samkomulagið
gott.
Mæðgurnar myndariegu, Taryn
og Linda. Það er aðeins 29 ára
aldursmunur á þeim en þó segja
margir að þær gætu verið systur
svo vel heldur móðirin, Linda, sór.
»
Ekkert
mál
fyrír...
„Maöur verður aldrei of gamall til
að taka í lóðin,” sagöi hún Helen Zech-
meister við blaðamenn nýlega í Banda-
ríkjunum.
Og það em orð aö sönnu því Helen,
semer77áraaöaldri, er elsti keppnis-
maðurinn í lyftingum í Bandaríkjun-
um.
Helen býr í Kaliformu og lætur sig
ekki muna um það aö lyfta yfir hundr-
aðkflóum.
I lyftingakeppni, sem haldin var ný-
lega í Kaliforníu, setti Helen hvorki
meira né minna en tólf met í sínum
aldursflokkL
Hróöur Helenar hefur fariö víöa og
hún hefur meðal annars komiö fram í
bandaríska sjónvarpsþættinum —
„That’s Incredible”, — sem viö snúum
sem „Þetta er ótrúlegt”.
Já, Helen Zechmeister er ótrúleg
kona eöa hvaö finnst ykkur?