Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Side 3
DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983.
3
lfl vað er svona merkilegt vid þad... að vera flugfreyja?
Eru flugfreujur
erfiáar eiginhonur?
Margir hafa haldið því fram aö erfitt sé aö vera eiginmaður/eiginkona flugliöa.
Þeir séu mikið aö heiman og sögusagnir hafa gengið um tíöa hjónaskilnaöi í þess-
ari stétt. Viö fullyrðum ekki um neitt slíkt hér enda nú á tímum flugvélar svo
fljótar í feröum aö jafnvel átta tíma vinnudagur næst ekki þótt flogið sé til Lond-
on og heim aftur. Flugliöar eru því ekki eins lengi aö heiman nú og fyrir nokkrum
árum.
Öneitanlega var þaö þó dálítið freistandi aö spyrja þrjá eiginmenn flugfreyja
hvort það væri svo erfitt aö vera í hjónabandi með konu í þessu starfi. Þeir voru
sammála um að svo væri ekki. Sennilega megum viö því láta sögusögnina sem
vind um eyru þjóta. . .
Bædi
kostir
og
gallar
„Ég mundi segja aö þaö heföi kosti
og galla. Aö mörgu leyti skerpir þaö
ástina þegar konan er aö heiman. Allt-
af gaman aö fá hana heim. I öðru lagi
bitnar starf hennar á fjölskyldulífinu,
sérstaklega á sumrin,” sagöi Jón
Olafsson, eiginmaður Ingigeröar
Eggertsdóttur flugfreyju. Þau eiga
tvær dætur, sex og átta ára.
„Stundum þarf aö koma börnunum
fyrir í pössun. Þaö getur bitnaö á eigin-
manninum þegar frúin er í vinnunni.
Annars frá henni séö þá held ég aö
starfiö sé spennandi til aö byrja meö,
þaö kemur starfsleiöi og kannski hætt
en þær þurfa alltaf aö byrja sem fyrst
aftur. Ætli þaö sé ekki einhver ævin-
týraþrá. Þetta er samhentur hópur á
erlendri grund og stendur mikiö sam-
an.”
— Ertu aldrei hræddur um hana, aö
eitthvaö komi fyrir?
„Jú, ekki get ég neitað því, en maður
reynir að hugsa ekki út í þaö,” sagði
Jón. Ingigerður hefur starfaö sem flug-
freyja í þrettán ár.
— En hvernig finnst þér aö flug-
freyjur eigi aö vera?
„Mér finnst almennt séö aö þær eigi
aö vera liprar, þægilegar og þolin-
móöar því farþegamir geta veriö mis-
jafnir eins og þeir eru margir. Eg hef
aldrei kynnst nema góöum flugfreyj-
um hjá Flugleiöum. Eg mundi gefa ís-
lenskum flugfreyjum hæstu einkunn,
þær gera meira heldur en þær geta og
hafa vald til. Þaö eru ótrúlegustu hlut-
ir sem þær þurfa að leysa.
Ég hef oft feröast meö erlendum
flugfélögum og ég líki ekki þjónustu
þeirra félaga um borö viö þjónustu í ís-
lenskum vélum. ’ ’ -ELA
Alveg
sáttur
við
þetta
„Þaö er ágætt ef samvinnan er góð.
Aö minnsta kosti er ég alveg sáttur við
þaö,” svaraði Haraldur Teitsson,
eiginmaöur Guörúnar Fanneyjar
Júlíusdóttur flugfreyju. Þau eiga einn
dreng.
— En hvernig finnst honum aö flug-
freyjureigi aövera?
„Mér finnst aldur og útlit ekki skipta
máh ef þær þjóna sínu starfi vel. Þær
þurfa að vera þægilegar í framkomu.
Eg held þaö fari bara eftir mann-
eskjunum hvernig þær svo eru,” sagöi
Haraldur. Guörún hefur starfaö sem
flugfreyja í ellefu ár.
— Ertu ekkert oröinn þreyttur á
ferðalögum hennar?
„Nei,allsekki.”
— En hvað er þaö sem er svona
spennandi viö starfið?
„Ætli þaö séu ekki ferðalögin, ég
býstviöþví.”
-ELA
Tilvalinn staður tiI oriofs hvort heidur ar fyrir böm aöa fullorOna. Sól-
skin öruggt, loftslag mllt. Þjónusta og hótel ágmt. Matarmiðar sem
hœgt er aO note á öllum veitingastöOum tH aO kaupa mat og vín.
AlþjóOlegir og búlgarskir ráttir. Langar og breiöar baOstrendur meO
hvitum sandi. Sjórinn tmr og hreinn. Skemmtanalif fjölbreytt. Skoðun-
arferöir um landið og sigling tii Istanbul. 80% uppbót á feröamanna-
gjaldeyri. Hótel og sumarhús á Gullnu ströndinni. LúxushóteiiO Varna á
Vináttuströndinni. Barnaafsláttur 2—12 ára. Sendum bmklinga og verO-
lista.
Ferðaskrífstofa
Kjartans Helgasonar
Gnoðarvogi 44 Reykjavík
Sími 86255
SVARTAHAFSSTRÖNDIN - BÚLGARÍA
ÁGÆTAR FERÐIR -
ÁGÆTT VERÐ
—- Opiö frá kl. 8—5 alla virka
daga og 8—12 al/a /augardaga.
Símsvarí al/a aöra tíma.
Ekki verri en konur
í öðrwm störfum
„Eg held aö það sé ekkert verra aö
vera kvæntur flugfreyju en konu í ööru
starfi. Þetta skiptir ekki miklu máli í
heimilislífinu. Eg held aö þaö sé ein-
mitt konunni nauðsynlegt aö komast
burt frá heimilinu og eiginmanninum.
Þarna fær hún líka tækifæri til aö
víkka sjóndeildarhringinn. Getur létt
af sér og verður þá ekki innilokuö,”
sagöi Baldur Jónsson, eiginmaöur
Ragnheiöar Brynjólfsdóttur flug-
freyju. Þau eiga átta ára gamlan son.
— En hvernig finnst Baldri aö flug-
freyjur eigi aö vera?
„Miðaö viö önnur flugfélög, sem ég
hef flogið meö, finnast mér íslenskar
flugfreyjur mjög glaölyndar og yfirleitt
óstressaðar. Manni líöur vel í flug-
vélum Flugleiöa. Maöur hefur tekið
eftir því að flugfreyjur í erlendum
vélum eru oft hrokafullar. Eg held aö
léttleikinn sé einn aöalkosturinn við
flugfreyjur.”
— Hvaö er svona spennandi og eftir-
sóknarvert viö þetta starf ?
„Þetta er fjölbreytt starf og ekki
vanabundinn starfstími frá 9—5. Þaö
er alltaf eitthvaö nýtt aö gerast. I
hvert skipti nýir farþegar og í þessu
starfi eru meiri möguleikar en í
mörgum störfum sem kvenfólk er í.”
— Er þaö þá ekki bara búningurinn
sem lokkar?
„Nei, af og frá. Ég veit náttúrlega
ekki um ungar stúlkur en ef ég tala um
mína konu þá veit ég aö svo er ekki. I
flugfreyjustarfmu séröu stúlkur sem
eru með allrahanda menntun og ég álit
þær ekki vera neinar tildurdúkkur.”
-ELA.
Sjá nakslu sián
Ótrúlega hagstæðir
greiðs/uskilmá/ar
Allt niður i 20%
útborgun
og eftirstöðvar a/lt að
8 mánuðum
• FLISAR • HREINLÆTISTÆKI •
• BLÖNDUNARTÆKI • BAÐHENGI •
• BADTEPPI • BAÐMOTTUR
• MÁLNINGARVÖRUR • VERKFÆRI •
• HARÐVIDUR • SPÓNN •
• SPÓNAPLÖTUR • GRINDAREFNI
• VIÐARÞILJUR V
• PARKETT • PANELL • EINANGRUN
• ÞAKJÁRN <• ÞAKRENNÚR •
'• SAUMUR • RÖR • FITTINGS O.FL., O.FL.
I
n
mánudaga — fimmtudaga kl. 8—18.
Föstudaga kl. 8—19. Laugardaga 9—12.
ITIibyggingavörOr)
Hrinabraut 190 — «tími 9RROO II
Hringbraut 120 — sími 28600
(aðkeyrsla frá Sólvallagötu).