Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Blaðsíða 4
4
DV. LAUGARDAGUR12. MARS 1983.
Hvaðer svona merkilegt við það... að vera flugfreyja? Hvað er svona merkilegt
Erna Hrólfsdóttir yfirflugfreyja sýnir væntanlegum flugfreyjum og flugþjóni hvernig raða skuli á bakka.
Þetta kannast allir við sem á annað borð bafa komið upp í flugvél. Eruð þið hins
vegar viss um hvernig á að gera? Ekki það? Kannski þau tvö eigi eftir að sýna
ykkur það í sumar þegar þið farið í sumarfríið til Spánar.
Fimm hundruð sóttu um átján stöður...
Það er ekki ofsögum sagt að flug-
freyjustarfið sé eitt vinsælasta starf
meðal kvenna. Karlmenn eru að byrja
að átta sig á f jölbreytni þessa starfs en
þó ekki nægilega mikiö til að hafa yfir-
höndina. Er Flugleiöir auglýstu eftir
flugfreyjum og flugþjónum nú nýlega
sóttu nær fimm þundruö manns um
átján stöður.
Að sjálfsögðu er mikill vandi að velja
hæfasta fólkiö og munu símar Flug-
leiða vera rauðglóandi á meðan á vali
stendur. Allir vilja koma sínu aö og á
það ekki síst við um mæður umsækj-
enda. Flugfreyjustarfið hefur verið
vafið ljóma allt frá fyrstu tíð. Ljóminn
hefur sennilega sest á starfið þegar
fyrstu flugvélarnar komu til landsins.
Þama var kjöriö tækifæri fyrir ungar
stúlkur að komast til annarra landa
sem ekki var á hvers manns færi í þá
daga.
Öfundaraugu beindust fljótlega að
þessari stétt. Flugfreyjumar fengu
tækifæri til aö kaupa í útlöndum þaö
sem ekki var hægt að fá hér á landi.
Þær skáru sig úr í klæðaburði og eftir
þeim var tekið. Það var því ekki að
ástæðulausu sem augu annarra beind-
ust að þeim. Flugfreyjur hafa sjálfsagt
þurft aö sitja með ýmsar gróusögur í
gegnum tíöina eins og því miöur viröist
vera um fólk sem er áberandi.
Á okkar tímum þykir það ekki lengur
furðu sæta að ferðast um gjörvallan
heim. Islendingar era mikið ferðafólk
og sjálfsagt varla til sá staður þar sem
Islendingur hefur ekki einhvem tíma
komið. Erna Hrólfsdóttir, sem er í
helgarviötali í blaöinu í dag, á einmitt
þá skýringu á þessu að ferðaeðiið sé í
okkur öllum af því við búum á eyju.
Þrátt fyrir að Islendingar ferðist nú
svo mikið sem raun ber vitni hefur
glansinn ekki farið af flugfreyjustarf-
inu. Starfið er ennþá vinsælt og verður
sjálfsagt alltaf. En hvað er það sem er
svo merkilegt viö þetta starf að fimm
hundruð ungmenni á svipuðum aldri
sækjast eftir að komast í það. Með
þessum greinum okkar, og ekki síst
viðtalinu við Ernu Hrólfsdóttur yfir-
flugfreyju, reynum við að gera lesend-
um grein fyrir hvernig starfið í raun óg
veru er. Svo getur hver og einn dæmt
um hvað er svona merkilegt.. .
Þar sem umsækjendurnir átján sitja
sex vikna námskeiö þessar vikurnar
litum við inn til þeirra og tókum þrjá
þeirra tali. -ELA
Gyða Þórhallsdóttir og Margrét Bjamadóttir flugfreyjur komnar til London en þaðan ætluðu þær til Þýskalands og
rifja upp þýskuna.
Til Þýskalands
að læra þýsku
■ og auðvelda §ér samstarfið við farþega frá Þýskalandi
,,Eg er að fara til Þýskalands í tvo
mánuöi. Þar ætla ég einungis að læra
þýsku og rifja upp það sem ég lærði í
skóla,” sagði Gyöa Þórhallsdóttir en
hún og Margrét Bjarnadóttir voru aö
halda utan til frekara náms. Þá er
einnig ein önnur flugfreyja í námi er-
lendis, í Frakklandi.
Flugfreyjurnar fara í námið á eigin
vegum. Gyöa ætlaði aö nota sumarfrí,
vetrarfrí og frí sem hún átti inni en
Margrét tók sér launalaust frí.
„Með því aö fara þetta gerum við
starfið okkur léttara. Eg lærði þýsku í
skóla en það er einhvem veginn þannig
að maöur lærir best í viðkomandi lönd-
um, auk þess er þetta mikil tilbreyting.
Það eru mjög margir Þjóðverjar sem
ferðast með okkur og þá er ekki verra
að geta rætt viö þá á þeirra eigin
tungu. Eg hef reyndar farið í svona
skóla áður. Eg fór til Spánar fyrir
fimm árum til að læra spænsku og fékk
mikið út úr þeirri ferö,” sagði Gyða.
Hún hefur starfað sem flugfreyja hjá
Flugleiðum í átján ár. En af hverju
valdi hún sér fiugfreyjustarfiö?
„Af því að mig langaði að ferðast. Eg
fór tíl Englands í skóla og þegar ég
kom heim langaðí mig að feröast
meira. Þegar ég byrjaði höfðu flug-
freyjur viðdvöl í Kaupmannahöfn,
London, Amsterdam og svo aftur í
Ameríkufluginu, New York, Chicago,
og Porto Roz. Nú er minna um þaö aö
maður dvelji á hverjum stað en píla-
grímaflugið bætir þaö upp. Ég hef far-
ið í það á hverju ári. Þannig hefur
maður séð staði eins og Nígeríu, Alsír
og Indónesíu, svo eitthvað sé nefnt,”
sagðiGy^a.
— Nú eruð þið tvær að fara í sama
skólann. Verðið þið þá ekki mikið
saman?
„Það era eingöngu útlendingar í
þessum skóla og við verðum ekki í
sama bekk. Viö ætlum að reyna að hitt-
ast sem minnst og helst ekki oftar en
einu sinni í viku þannig að við lærum
sem mest,” sagði Gyða Þórhallsdóttir.
i -ELA.
Það þarf að
halda hunn-
áttunni við...
— endurmenntnn i lugfreyja
stöðugtígang!
Ekki verður sagt um flugfreyjur að
þær séu ómenntaðar. Strangar kröfur
eru gerðar um menntun, kunnáttu og
ekki síst tungumálakunnáttu. Og í
starfi sínu veröa þær aö halda við
þeirri kunnóttu. Nýlega stóðu
Flugleiðir fyrir námskeiðí fyrir alla
sína starfsmenn sem á einhvern hátt
vinna viö flugið. Var þetta kallaö já-
kvæöisnámskeið og haldiö aö fyrir-
mynd SAS flugfélagsins. SAS hefur
einmitt verið mjög framarlega í öllu
námskeiöahaldi hvaö varöar flug-
starfsfólk.
Jákvæðisnámskeiöiö var haldið til að
gera starfsfólk Flugleiða jákvæðara eins
og nafnið á námskeiöinu gefur til
kynna og til aö benda á margt það sem
betur má fara í framkomu við
viðskiptavinina. Námskeíðið var
haldið fjórum sinnum, þanníg að allir
starfsmenn gætu sótt þaö og reyndist
áhuginn gífurlegur. Það vár starfs-
maður SAS sem sá um kennslu.
Flugfreyjur þurfa ennfremur aö
sitja upprifunarnámskeið í öryggis-
búnaöi flugvéla á hverju ári. Sem
betur fer kemur sjaldan fyrir að grípa
þurfi til hans en þaö er ekki síst þess
vegna sem nauðsynlegt er að rifja upp
öryggisbúnað og það sem honum við-
kemur. Farþeginn á alltaf að vera viss
um að flugfreyjan viti hvernig skuli
bregðast við ef eitthvaö kemur fyrir.
Flugfreyjur fara einnig sjálfar og á
eigin vegum í endurmenntun. Tvær
eru nú í Þýskalandi aö rifja upp þýsku-
kunnáttu og ein í Frakklandi. Viö
spjölluðum viö Gyðu Þórhallsdóttur
áður en hún lagði upp til Þýskalands og
fer spjall hennar hér áeftir.
-ELA.
Mynd þessi var tekin er jákvæðisnámskeiö fyrir starfsfólk Flugleiða stóð yfir á
Hótel Loftleiðum.