Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Síða 5
DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983.
5
ai> vora flug'freyja?
Örugg-
lega ekkl
leikara-
skapur
„Ég haföi áhuga á fjölbreyttu og
lifandi starfi og haföi mikinn áhuga á
aö fá þetta starf,” sagöi Þórdís Erla
Ágústsdóttir 21 árs. Hún varö stúd-
ent um jólin úr Menntaskólanum við
Hamrahlíð en hefur undanfariö
starfaöá útsölumarkaði.
,,Ég held aö þetta starf gefi manni
kost á að kynnast mörgu fólki. ”
— Var inntökuprófið erfitt?
„Ekkert sérstaklega en þó erfið-
ara en ég bjóst viö og haföi heyrt um
prófiöífyrra.”
— Hvemig hefur þér fundist aö
vera á námskeiðinu?
„Mjög skemmtilegt. Kannski erfitt
þegar maöur er búinn að vera í vinnu
allan daginn og er þreyttur. Ég er
líka í ýmsu félagsstarfi og það er
eiginlega ekki mikiö eftir af sólar-
hringnum.
Þaö er nauösynlegt aö hafa nám-
skeiðiö því þaö á aö vera alvara í
þessu starfi, ekki neinn leikara-
skapur.”
— Hefur þú oft ferðast meö flug-
vél?
„Já, nokkuð oft. Eg hef þá tekið
eftir flugfreyjunum en ég held aö ég
hafi ekki verið svokallaður erfiöur
farþegi.”
— Heldur þú aö flugfreyjustarfiö
sé erfitt?
„Eg býst viö aö þaö sé erfitt. Þetta
er mikiil þeytingur og örugglega
enginn leikur enda lít ég ekki á flug-
freyjustarfiðsemslíkt.” -ELA
Jafnrétti
ábáða
bóga
„Eg sótti eiginlega bara um af for-
vitni. Eg hef gaman af að feröast og
svo kemur inn í þetta líka aö vinnu-
tíminn er ekki þessi hefðbundni frá
9—5. Annars hefur verið mjög gam-
an á þessu námskeiði,” sagöi Gunn-
laugur Gunnlaugsson, verður tvítug-
ur í vor, er hann var spurður hvers
vegna hann hefði sótt um.
„Annars finnst mér dálítið skrýtiö
aö ekki skuli vera fleiri karlmenn.
Viö erum aðeins tveir af átján. Að
vísu vorum viö þrír en einn hætti og
stelpa kom í staöinn.
Þetta starf gefur manni gott tæki-
færi til aö ferðast og þetta er aöeins
byrjunin hjá mér því ég er ákveðinn í
aðfaraíflugnám.”
Nú ert þú í Menntaskólanum viö
Sund. Er ekki erfitt að sitja nám-
skeiðið með skólanum?
„Það er svolítiö strembið. Annars
hef ég heillast af þessu. Viö erum aö
vísu rétt að fara í gang, höfura fariö
inn á björgunarstarf flugfreyja og
flugþjóna og reglur og umgengni,”
sagðiGunnlaugur.
— Er flugfreyjustarfiö ekki
kvennastarf?
„AUs ekki, alls ekki. Þetta var
kallaö kvennastarf en jafnréttið
veröuraöveraábáöabóga.” -ELA
Langar
meira að
verða
hlaðfreyja
„Eg er í Kennaraháskólanum en
sótti um þetta starf sem sumar-
vinnu,” sagði Anna Olafsdóttir 20
ára. ,,Eg hef áður unniö á sumrin viö
þjónustustörf á hótelum en ég tel aö
ég fái mikla tilbreytingu út úr flug-
freyjustarfinu. Ætli þaö hafi ekki
veriö ferðaáhuginn sem rak mig til
aö sækja um þetta starf,” sagöi
Anna.
Hún sagði aö prófiö sem þau hefðu
þurft að taka heföi verið nokkurs
konar þekkingarpróf. „Viö þurftum
að svara spumingum um almenn
atriöi, til dæmis hver væri íþrótta-
maður ársins og þess háttar. Síðan
áttum viö að þýða íslenska grein yfir
á eins mörg tungumál og viö gátum.
Þegar útkoman var séö fórum viö í
viðtal og síöan var vabö úr þeún sem
komuíþaö.”
— Er margt sem þiö læriö á þessu
námskeiöi?
„Já, námskeiöiö stendur yfir í sex
vikur, á hverju kvöldi, og við lærum
sitt af hverju. Til dæmis um öryggis-
búnað, þjónustulund, lítilsháttar í
veöurfræði og margt, margt fleira.”
— Er ekki erfitt að sitja nám-
skeiöiö jafnframt skólanum?
„Jú, annars er þetta alit svo nýtt
og skemmtilegt sem við erum aö
gera hér. Þetta er samt strangt og
viö verðum aö mæta á hverju
kvöldL”
— Langar þig aö gera flugfreyju-
starfiö aðævistarfi?
„Eg veit ekki. Mig hefur alltaf
langaö til aö vera hlaðfreyja, jafnvel
meira en flugfreyja, en þaö er ekki
svo auövelt að komast í það starf,”
sagöi Anna. Hún var búsett um ára-
bil bæði í Belgíu og Frakklandi og
talar frönskuna eins og Frakkar.
-ELA
Texti: Elín Albertsdéttir
Myndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson
og Gunnar V. Andrésson
%
FERMINGARGJOFIN
í ÁR
Rúm m/útvarpi, klukku,
segulbandi, bókahillu og dýnu.
EFNI: BEYKI VERÐ KR. 12.960,- ÁKLÆÐI: RÚSKINNSLÍKI
handa fermingarbarninu
SENCOR STEREO FERÐATÆKIN
Sencor S 4440 Kr. 5.695,-
Sencor S 4370 Kr. 5.540,-
Póstsendum
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN
Síðumúlo 2 — Simor 39090, verslun og 39091, verkstæði.