Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Side 11
DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983.
11
um samband þeirra Elvis. Hún hefur
ekki látiö móðan mása um hann og líf
hans, eins og svo margir vina hans
og kunningja eftir að hann var allur.
Þvert á móti. Hún hefur ekki viljað
vera í sviðsljósinu. Og enn síður
hefur hún reynt að græða á því að
hafa verið eiginkona Elvis. Hún erfði
ekkert eftir hann. Aftur á móti erfði
dóttir þeirra, Lisa Marie, næstum
allt.
En nú virðist sem Priscilla sé að
taka við sér. Loksins er hún nógu
sjálfstæð til að vera annaö og meira
en fyrrverandi konan hans Elvis.
Undanfarin ár hefur hún stundaö
nám við leikskóla í Los Angeles og nú
hefur hún fengið sitt fyrsta hlutverk í
kvikmynd. Henni hefur boðist fjöld-
inn allur af hlutverkum gegnum
tíðina, en aldrei fyrr hefur hún slegið
til.
,,Ég veit að þeir sem sjá mig núna
á hvíta tjaldinu munu líta mig mjög
gagnrýnum augum,” segir hún. „Og
Priscilla er mikil iþróttakona. Hér er
hún að læra að kafa.
ég veit líka aö margir munu segja
sem svo: Hún heldur að hún geti
leikið, bara af því að hún heitir
Presley. Þess vegna verð ég að
standa mig vel. Og þetta er tækifærið
til að sýna hvað í mér býr.
Hins vegar er ég ekki reynd leik-
kona, langt frá því. En ég hef alltaf
haft áhuga fyrir kvikmyndum. Þessi
mynd, sem ég er að leika í, heitir
„Comebaek” og það er Michael
Landon sem leikur á móti mér. Og ég
vona bara að mér takist vel upp.
Þegar Elvis var aö leika í kvik-
myndum var ég vön að fara meö
honum í upptökur, en mikið hefur
breyst síðan. Hann átti það til að láta
taka sama atriöiö upp 20 sinnum. I
mínu tilviki verður eitt skot að
nægja, fjárhagurinn leyfir ekki
meira. Og þetta hefur reynst mér
erfitt því ég vil hafa allt sem ég tek
mér fyrir hendur fullkomið.”
Það varást
við fyrstu sýn
I sex ár bjuggu þau Elvis og Pris-
cilla saman. Þau hittust þegar hún
var 14 ára gömul og það var ást við
fyrstu sýn. Elvis var alla tíö hræddur
um að missa Priscillu og vakti því
yfir hverju fótmáli hennar.
Afleiðingin varð sú að hún varð mjög
háö honum og gat ekkert gert eða
ákveðið nema hann væri með í
ráðum.
„Eg fékk aldrei tækifæri til að vera
sjálfstæð manneskja,” segir Pris-
eilla.
Elvis sá fyrir öllu og um allt. Hann
vakti yfir mér dag og nótt. Ég fékk
aldrei að fara neitt ein og við hittum
eiginlega aldrei fólk. En þessi
umhyggja hans var ekki af illum
hug. Þetta var hans máti að sýna
mér ást og virðingu. En þar kom að
éggatekkimeira.
Þeir voru margir sem ekki skildu
hvers vegna ég gafst upp á hjóna-
bandinu og lúxúslífinu. Ekki síst
vegna þess að okkur þótti vænt hvoru
um annað, en það var ekki um annað
að gera fyrir mig, ég vildi fá eitthvaö
annað og meira út úr lífinu.”
Rak verslun um tíma
Þótt hugur Priscillu hafi lengst af
hneigst til kvikmyndanna var það
ekki það fyrsta sem hún tók sér fyrir
hendur eftir skilnaðinn. Hún opnaði
litla verslun þar sem hún seldi föt
sem hún hannaði sjálf. Besta stoð
hennar og stytta á þeim árum var
Lisa dóttir hennar.
„Lisa Marie er fyrirmyndar
bam,” segir Priscilla. „Hún er orðin
14 ára en enn veit hún ekki hvað hún
vill. En hún hefur tímann fyrir sér og
ekki ætla ég aö hafa áhrif á hana í þá
átt.
Aftur á móti reyni ég að vernda
hana. Við vitum báðar að það er
alltaf til fólk sem vill vingast við
hana einungis af því að hún er
Presley. Eg reyni hvaö ég get að
vernda hana frá slíku fólki. Og ég
held aö aliir vinir hennar og
kunningjar sem hún umgengst núna
geri þaö.
Eg fylgist auðvitaö ekki meö
hverju fótmáli hennar. Og alls ekki
þegar ég er aö leika, þá kem ég henni
fyrir hjá foreldrum mínum. Faðir
hennar var stjama. Og hvaö verður
ef móðir hennar verður það líka?
Þaö er erfitt að vera bam þekktra
foreldra. Ég hef lært af reynslunni.
Og Lisa vonandi líka. Ég held aö ef
við leggjum okkur báöar f ram getum
við forðast gildmmar.”
„Varrósí
hnappagati Eivisl"
Priscilla er mikill íþróttaunnandi.
Hún stundar leikfimi af lífi og sál og
sund af kappi með meiru.
„Ég hugsa mikiö um útlitið enda
lærist manni það eftir tuttugu ár í
sviðsljósinu. Og rómantík er mér
mikils virði,” bætir Priscilla við.
Þessa stundina er vinur Priscillu
Michael nokkur Edwards, fyrrum
tískusýningarmaður en hyggur nú á
frama á hvíta tjaldinu. Þau hafa
verið saman í fjögur ár.
„Samband okkar er mjög gott,”
segir Priscilla. „Eg krefst mikils af
þeim sem ég er með. Eg var bara rós
í hnappagati Elvjs og ég ætla ekki að
verða það aftur i nokkurs manns
hnappagati,” segirhún.
FLOT
KRAFTUR
I
Nýi flotteinninn frá Hampiðjunní heítir KRAFTFLOT.
Fléttuð er kápa úr kraftþræðí
utan um flotköggla, bæði kulur og sívalnínga.
Um tvær gerðír Kraftflots er því að velja.
Teínninn er lípur í notkun,
hann hringast vel vegna lögunar flotanna og þolír
allt að 250 faðma dýpí.
Uppdríf hans er 5-6 kg og slítstyrkur 3 tonn*.
*Við hvetjum menn þó eindregið til að
hlífa teininum víð svo miklum átökum, því annars
geta flotin aflagast og misst við það nokkuð af flothæfi sínu.
HAMPIÐJAN