Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Qupperneq 13
12
Tökum aö okkur aö annast fermingar,
brúökaupsveislur, árshátíöir og hvers kyns annan
mannfagnaö.
Sendum í heimahús, eftir því sem óskað er.
VEITINQAtíÚSIÐ
» ÖOUSíi ^*i[j
ÁKMÚIA 21
DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983.
\
jFL
GETUR GERT
GÆFUMUNINN
LYSIR
ÞEGAR ANNAÐ LJÓS BREGST
er nýtt efni, sem valdið hefur byltingu i oryggismalum.
hefur þann eiginleika að geta hlaðið sig upp af birtu/ljósi
meðan þess nýtur við en endurkastar síðan Ijósinu frá sér
(lýsir í myrkri), dæmi: Ef málað er 20% af lofti og veggjum í
herbergi, þá er vinnubjart fyrstu 30 mín. en greinanteg birta í
8 klst. eftir að Ijós bregst.
visar veginn til skjótrar útgöngu þegar skyndileg rafmagns-
bilun á sér stað á fjölmennum vinnustöðum, hótelum, spítöl-
um, skrifstofum, verslunum, frystihúsum, skipum, fjölbýlis-
húsum o.s.frv.
Utsölustaðir: JL-byggingavörur, Hringbraut 120 Rvk.
Liturinn, Siöumúla 15 Rvk.
P. Hjaltested, Suðurlandsbraut 12 Rvk.
Þ. Þorgrimsson og Co., Ármúla 16 Rvk.
Dropinn, Hafnargötu 80 Keflavik.
G.Á. Böðvarsson, Austurvegi 15 Selfossi.
Brimnes, Strandvegi Vestmannaeyjum.
Kaupfélag Vestmannaeyja, Vestmannaeyjum.
Kaupfélagið Fram, Neskaupstaö.
Kaupfélag N-Þingeyinga, Kópaskori.
Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík.
Einar Jóhannsson & Co., Siglufirði.
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga.
Pensillinn, Hafnarstræti 1 ísafirði.
Kaupfélag Stykkishólms, Stykkishólmi.
Litabúðin, Ólafsbraut, Ólafsvík.
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi.
fæst sem málning, limbönd og skilti
ED
DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983.
Er Rainier
furstiígift-
ingarhug-
leiðingum?
Ýmislegt bendir nú til að Rainier
fursti af Mónakó hyggi á hjónaband. Sú
útvalda er hin 36 ára gamla ameríska
leikkona, Cheryl Ladd. Hún leikur
aðalhlutverkið í nýrri kvikmynd um
Grace prinsessu, fyrrum eiginkonu
Rainiers, er lést í fyrrahaust, eins og
kunnugt er. Ladd og Rainier hafa hist
oft undanfarið vegna töku myndarinn-
ar, en sagan segir að hann hafi mikinn
áhuga á þessari ungu konu, ekki síst
þar sem hún þykir líkjast Grace mikið,
bæði í hátt og útliti.
Eftir hið sviplega fráfall Grace hefur
Rainier og lífið í furstadæminu ekki
verið svipur hjá sjón. Fjárhagur ríkis-
ins hefur dottið niður úr öllu valdi og
hið eina sem menn telja að geti bjarg-
að ríkinu sé áhugaverð kona við hlið
furstans.
_____________Tóm spilavíti_____________
Fjárhagur Mónakó byggist einkum á
þeim tekjum sem inn koma vegna
ferðamanna, en þeir hafa verið ófáir
þar til nú. Spilavítin, sem áður voru
sneisafull, eru nú nánast tóm. Ástæðan
er sögð sú að fræga fólkið, sem áður
heimsótti Mónakó, hafi verið vinir og
kunningjar Grace frá því í Hollywood.
Nú komi þeir ekki lengur. Og hinir
komu til að sjá fræga fólkið. Nú komi
þeir ekki lengur því að nú sé engan að
sjá. Af sömu ástæðu er talið að það eina
sem geti bjargað Mónakó frá falli sé
einmitt fræg kona við hlið furstans til
að vekja á ný áhuga á smáríkinu.
Ýmsar hafa verið nefndar í þessu sam-
bandi, svo sem Liz Taylor og Farah
Diba. En nú er sem sagt ný komin í
spilið.
Mónakóbúar vonast eftir örari
ferðamannastraumi i kjötfar
m yndarinnar
Rétt áður en Grace féll frá hafði
Rainier veitt samþykki sitt til kvik-
myndatökunnar svo og lagt blessun
sína yfir Cheryl Ladd. En það gerðu
ekki börn hans. Þau voru bæði á móti
kvikmyndatökunni svo og Ladd í aðal-
hlutverkinu.
Myndin var tekin upp í Mónakó. Hún
byrjar þar sem Grace er ung stúlka að
stíga sín fyrstu spor á hvíta tjaldinu og
endar skömmu eftir brúðkaup Grace
og Rainiers. Fyrir utan vangaveltur
um hugsanlegan samdrátt Rainiers og
Ladd hefur myndin litla umf jöllun hlot-
ið. Enda gerðu kvikmyndaframleiö-
endurnir sér far um að láta lítið fara
fyrir sér þar sem myndin var tekin upp
svo skömmu eftir dauða Grace.
Hvað sem öðru líður vonast menn eft-
ir, og ekki síst íbúar furstadæmisins,
að myndin veröi til þess að vekja á ný
áhuga fyrir Mónakó og auka ferða-
mannastrauminn.
Cheryi Ladd í hlutverki sínu í myndinni um iíf Grace Kelly. Laddþykir líkjast furstafrúnni ótrúlega mikiö bæði íhátt og
útliti. í hlutverki Rainers fursta er lan McShane.
Orion deck
vistarverur
á besta staö
í skipinu
Allir klefar með
gluggum; wc/sturtu
FERÐASKRIFSTOEA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstígl.Símar 28388 og28580
— og dvöl á Mallorca
í eínní og sömu ferdinni
Nú kemur ATLANTIK með enn eitt gtæsitilboðið. Að þessu sinni er það
skemmtisigling með lúxusskipinu MAXIM GORKI um austurhluta
Miðjarðarhafs.
Maxim Gorki, sem um þessar mundir er að skila af sér á fimmta tug
ánægðra Islendinga, eftir nær mánaðar siglingu um Suður-Ameríku og
Afriku, mun nú leggja leið sína frá Mallorca til ýmissa sögufrægra viðkomu-
staöa fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Flogið verður til Palma de Mallorca í beinu leiguflugi 12. apríl, þar sem
dvalið verður á hóteli i eina viku. Þann 19. apríl verður svo stigið á skipsf jöi
og siglt samdægurs af stað til eftirtalinna staða:
Sardiniu, Túnis, Möltu, Krítar, Tyrklands, Grikklands, Italíu (Róm) og
Genúa. Frá Genúa er svo haldið aftur til Mallorcá og dvalið í þrjár nætur.
Heim verður svo flogið í beinu leiguflugi þann 3. maí.
Efnt verður til skoðunarferða á öllum viðkomustöðum. Þetta er sérstakt
tækifæri og er framboð takmarkað.