Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Qupperneq 15
DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983.
15
J ASS - JASS - JASS - JASS - JASS - JASS - JASS - JASS - JASS - J ASS - J ASS -
Slgurður I. Snorrason,
skðlastjðri FIH-skðlans:
Kominn
tími
til aö
stofna
iassdeitd
Sigurður/. Snorrason, skólastjóri FÍH-skólans.
Tónlistarskóli F.I.H. lætur ekki
mikiö yfir sér. Hann er í Brautarholti 4
og ekki víst að maður rambi á réttan
stað í fyrstu atrennu. Uppi á annarri
hæð í fjórlyftu steinhúsi finnum við
samt Sigurð I. Snorrason skólastjóra
og hann hefur lofað að gefa okkur
myndafi starfsemi skólans.
„Skólinn fór af stað haustið 1980 og
var gamall draumur Félags íslenskra
hljómlistarmanna. A sjötta áratugn-
um var reynt aö stofna skóla á vegum
félagsins og hann starfaði í eitt ár. Þá
voru allt aðrar aðstæður en nú eru.
Þessi skóli nýtur styrkja samkvæmt
lögum um tónlistarskóla þannig að riki
og sveitarfélög skipta á milli sín
greiðslum á launum kennara og skóla-
stjóra. Þá eru eftir hljóðfærakaupin,
sem við höfum veriö í vandræðum
með, og húsnæðiskostnaður en við
leigjum þetta húsnæði af rnenningar-
sjóði F.I JI. Því miöur höfum við ekki
fengið styéki til hljóðfærakaupa þó það
standi í lögum um tónlistarskóla. Það
gerir okkur dálítiö erfitt fyrir í
algjörlega nýjum skóla.”
Jassdeild
„Þegar farið var að huga að stofnun
skólans reyndum við að sjá út hvar
helst vantaði kennslu í tónlist. Því
lyktaöi þannig að við bjuggum til þrjár
deildir. Almenna deild, eins ogtíðkast í
öðrum tónlistarskólum, þar sem
nemendur geta stundað hefðbundið
klassískt nám, jassdeild, en hana var
virkilega kominn tími til að stofna, og
fullorðinsfræösludeild en þar töldum
við þörfina einnig brýna.
Hvað snertir jassdeildina þá hefur
þessi tegund tónlistar aldrei verið
kennd kerfisbundið hérlendis þó eitt-
hvað hafi verið kennt. Við sækjum
fyrirmyndina aöallega tQ bandarísks
tónlistarháskóla, Berklee College of
Music, í Boston. Núna er verið að gera
námsskrá fyrir flest hljóðfæri og unnið
að því að búa til jassnámsskrá til við-
bótar henni.
Nám í jassdeildinni er talsvert yfir-
gripsmeira en í almennu deildinni
enda er jassdeildin hrein og klár
framhaldsdeild. Sem dæmi, þá þarf
hver nemandi í jassdeild, auk þess að
mæta í einn spilatíma í viku, aö sækja
tvær klukkustundir í jasshreim, tvær
klukkustundir í jasshljómfræði og tvo
samspilstíma (hljómsveitartíma).
Jafnframt er svo kennd jasssaga.”
— En hvað um rokkið, hvers vegna
er ekki rokkdeild?
„Rokkið er náttúrlega ein grein út
frá jassi. Fólk getur ekki valið sér
ákveðinn anga af þessari braut heldur
verður það að ganga brautina alla.
Auðvitað er reynt að mæta óskum
nemenda. Ef einhverjir krakkar óska
eftir að vera í hljómsveit, sem að sjálf-
sögðu er undir handleiöslu kennara, og
spila þar jassrokk, þá er þeim leyft
það.”
Læra útsetningar
og tónsmíðar
„Það er raunar mikið af efni samið
hér í skólanum og nemendur læra
útsetningar og tónsmíðar sem strax
eru prófaðar, jafnvel í hljómfræðitím-
um.
I jassdeild eru nemendur á aldrinum
16 til 30 ára. Fók þarf að hafa grunn-
menntun þegar þaö byrjar í jassdeild-
inni þannig að þaö er ljóst aö þaö getur
ekki verið mjög ungt.”
— Hversu stór hluti dægurtónlistar-
manna heldurðu að stundi hér nám?
„Eg get nefnt það sem dæmi að þrír
meðlimir Mezzoforte eru nemendur
hér og tveir þeirra kenna einnig við
skólann. Þá hef ég orðiö var við mikinn
áhuga hjá reyndum mönnum í
bransanum og þeir hafa innritast í
skólann en þvi miður staldraö stutt við.
Eg vona að afrakstur af þessum
skóla fari að sjást í dægurtónlist og
stúdíóspUamennsku næstu árin. Eg
vona líka að þessi deild skólans eigi
eftir að hefja hina svokölluöu léttari
tónlist upp á æðra plan og að við eign-
umst ekki eingöngu stærri hóp hæfra
hljóðfæraleikara heldur einnig hóp tón-
smiöa og útsetjara.
Hér við skólann eru u.þ.b. 160
nemendur. Þeir skiptast þannig aö um
eitt hundrað eru í almennu deildinni en
um sextíu í jassdeild. Nokkrir í al-
mennu deildinni sitja þar til þess að
komast í jassdeildina en það er alls
ekki reglan. Með sæmilega rösklegu
áframhaldi ætti áhugasamur nemandi
að f ara létt með að ljúka tilskildu námi
fyrir jassdeildina á tveimur árum.
Talsvert margir íslenskir hljóðfæra-
leikarar stunda nú nám við Berklee
þannig að von er á nokkrum
tslendingum heim sem jafnvel nú
þegar hafa óskað eftir því að fá stöðu
við skólann og jafnvel sumir eru
komnir heim, eins og t.d. Bjöm
Thoroddsen, sem er meðal annars
menntaður í Bandaríkjunum.
Það er svo gífurlega mikið til af
hæfileikafólki. Jassbrautin kemur til
með aö virkja hæfileika þeirra sem
áhuga hafa á dægurtónlist betur en
hingað til hefur verið. Áður fyrr gat
þetta fólk ekki séö sér neina leið í al-
mennu tónlistarnámi. Hér í jassdeild
er grunnur að braut sem það vill
ganga. Það sér því einhvem tilgang í
hinu almenna námi.”
Fullorðins-
fræðsludeild
Hvemig starfar fullorðinsfræðslu-
deildin?
„Fullorðinsfræðsludeildin var, eins
og jassdeildin, stofnuð með það í huga
að koma til móts við þarfir eða fylla
upp í eyðu í tónlistarmenntakerfinu.
Fyrsta haustið fórum við af staö með
níu vikna námskeið en á það mættu
ekki nema 11 manns. Námiö tókst ann-
ars mjög vel og mæltist vel fyrir.
Þessi mannfæð dró úr okkur kjarkinn
þannig aö við gerðum ekkert haustið
’81. Síðasta haust fórum við aftur af
staö og auglýstum fullorðinsnámskeið
og fengum færan leiöbeinanda. Þá brá
svo við aö það sýndi þessu enginn
áhuga. Hugmyndin er samt ekki
gleymd og við eigum eftir að reyna
aftur. Þrátt fyrir dræma aðsókn hing-
að til held ég að grundvöllurinn og
þörfin séu fyrir hendi.”
Ellefu kontra-
bassaleikarar
— Hvaða hljóðfæri eru vinsælust?
„Það athyglisverðasta í því sam-
bandi er ef til vill það að hér stunda 11
nám á kontrabassa og er það mikil
aukning. Annars er gítarinn vinsælast-
ur, bæði í almennri deild og jassdeild.
Þá hefur píanóið sótt mjög á í jass-
deildinni.”
Þetta spjall hefur átt sér stað í eld-
húsi skólans þar sem hægt er aö hita
sér kaffi. A meðan það hefur staðið yfir
hafa borist tónar úr píanói einhvers
upprennandi tónsnillings. Stöku
bumba hefur verið barin og málmgjall
slegið. Síödegið er ekki hafið, en þá fer
hinum almenna tónlistamema og
sveif luketti að hitna í hamsi.
Það átti að vera jasskvöld það sama
kvöld í skólanum. Allir velkomnir.
-SGV.
TextisSigurdur G.Valgeirsson
Myndir: Gunnar V. Andrésson
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka Islands hf.
verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal,
Reykjavík, í dag laugardaginn 12. mars
1983 og hefst kl. 13.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður
lögð fram tillaga um heimild til bankaráðs um
útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar
til fundarins verða afhentir á fundarstað.
Ðankaráð Samvinnubanka Islands hf.
JASS - JASS - JASS - JASS - JASS - JASS - JASS -