Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Qupperneq 16
16
DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983.
JASS - J ASS - JASS - J ASS - JASS - JASS - JASS - JASS - JASS - JASS - JASS
„Það hefur ekki veríð hægt að læra þá músik, sem er kennd hér, áður,"
segir Friðrik Karísson, gitaríeikari í Mezzoforte, en hann er kennari og
nemandi FÍH-skólans. D V-m ynd GVA.
Friðrik Karlsson:
Skemmtilegt
og lærdóms-
rikt að keirna
„I»ctð vantaði soxófón
í lúðrasveitina99
smitaður a£ tónlistarbakteríunni fyrir lífstíð
Friörik Karlsson gítarleikari í
Mezzoforte sameinar það aö vera
kennari og nemandi viö FÍH skólann.
Hann hefur raunar komið víðar viö
sem kennari og nemandi því aö hann
er aö taka lokapróf frá Tónskóla Sigur-
sveins í klassískum gítarleik, en viö
þann skóla kennir hann einnig. I FÍH
skólanum er hann í einkatímum hjá
Bimi Thoroddsen í jassgítarleik og í
hljómfræði og útsetningum hjá Vil-
hjálmi Guöjónssyni.
Kveikjan að
endurreisn jasstónlistar
— Hvað er merkilegast við skólann?
„Þaö hefur ekki verið hægt aö læra
þá músík sem er kennd hér áöur. Þá
stuðlar skólinn aö uppgangi jasstón-
listar. Hann er kveikjan aö endurreisn
jasstónlistar hér á Islandi. Eftir aö
rokkið kom varö jassinn undir. Nú
koma hljóðfæraleikarar sem byrja á
jassi hér í skólanum og þaö hlýtur aö
valda grundvallarbreytingu. Skólinn
stuölar líka aö því aö þessi tónlist veröi
viðurkennd sem alvörutónlist en ekki
talin glamur. Þetta er líka eðlileg þró-
un. Þegar tónlist er búin aö vera til
nógu lengi er hægt aö pakka henni
saman, skilgreina og greina þannig aö
hægt er aö kenna hana.”
— Hvað um hinn almenna rokkspil-
ara?
„Þeir hafa verið aö koma hér inn,
sem er mjög jákvætt. Maður var hluti
af þessu sjálfur á sínum tíma.”
— Nú hefur þú kennt hér. Hvernig
hefur þér fundist það?
„Þaö er sérlega skemmtilegt og lær-
dómsríkt aö kenna.”
— Hvaða áhrif heldurðu að skólinn
eigieftiraðhafa?
„Hann á eftir að auka viöurkenningu
jasstóhlistar og vafalaust eiga eftir aö
útskrifast úr honum góðir jassleikar-
ar.”
I kennslustofum sem liggja upp aö
hljómleikasal skólans millilentu tón-
listarmennirnir eöa sveiflukettirnir
fy rir og eftir spilamennskuna.
Sigurður Long hefur verið í skólan-
um frá byrjun og er að læra á tenór-
saxófón. Hann spilar líka á alt- og
sópransaxófón, hafði raunar nýlokið
viö aö spila á sópran meö einni hljóm-
sveitinni. Hann vinnur í Hampiðjunni
með náminu í tónlistarskólanum.
Spuröur aö því hvort hann væri í
hljómsveit utan skólans sagöist hann
vera í hljómsveit meö Vilhjálmi Guö-
jóns, yfirkennara jassdeildar utan
hans. Reyndar væru allir meölimir
hennar í skólanum. Hann taldi sig eyða
4—5 tímum í tónlistina á dag, eöa nán-
ast öllum frítíma sínum. Hann hafði
ekki verið í tónlistamámi aö ráði áður
en hann byrjaði í skólanum. Þegar
skólinn hófst voru rýmri inntökuskil-
yröi en nú eru. Hann var ánægöur meö
skólann vegna þess aö hann gæfi
mönnum kost á því aö spila í hljóm-
sveitum og aö þar fengi maöur að spila
jass.
Hvað framhaldsnám varðaði,
sagðist hann því ekki fráhverfur.
íslenska
sjávarfönksambandið
Einar Bragason var þarna sveittur
eftir spilamennsku. Hann hefur líka
veriö frá upphafi í skólanum og er að
læra á flautu og sax. Hann stundar
nám í Fjölbrautaskóla Garöabæjar og
er búinn aö vera frá upphafi í skólan-
um. Hann sagðist spila í Tilraunaband-
inu, Gítarbandinu og big bandinu. Þá
væri hann í hljómsveit utan skólans
sem nefndist The Icelandic Seafunk
Corporation. Hann sagðist hyggja á
tóniistarnám í framtíðinni. „Þaö sem
maöur hefur mest hugsað um er Berk-
lee. Þó hefur maöur einnig velt því
fyrir sér aö fara annað ef maöur finnur
eitthvaö sambærilegt.”
Er tónlistarbakterían ættgeng?
„Ef einhver í f jölskyldunni spilar, þá
hefur þaö hvetjandi áhrif.”
Hvers vegna valdir þú saxófón?
„Eg byrjaði á klarinettu í tónskóla í
Garðabæ. Það vantaöi saxófón í lúðra-
sveitina í Garðabæ og þar var til hljóð-
færi þannig að ég ákvaö að prófa. Á
þeim tíma var maður í lúðrasveit, fót-
bolta og skátunum. Maður gerði ekki
upp viö sig aö fara út í tónlistina fyrr
en maður fór í fyrstu bílskúrshljóm-
sveitina.”
Fá f ræðilegan grundvöll
Innan um nemendur af yngri kynslóð-
inni mátti á jasskvöldinu sjá eldri
nemendur. Kennaramir spila líka
gjaman meö þeim hljómsveitum sem
þeir stjórna þannig aö erfitt var aö
henda reiður á hver væri nemandi og
hver kennari. Hjalti Gíslason trompet-
leikari er í hóni eldri nemenda og sækir
eingöngu tíma í teoríu í skólanum.
Hann hefur veriö í big bandi undan-
farin þrjú ár og kom: „Til aö koma
fræðilegum grundvelli undir þetta og
sjá hvaö væri að gerast hérna í leið-
inni. Margir kennaramir hérna vora
að spila í big bandinu og þaö teymdi
mig útíþetta.
Hjalti lék með hljómsveit fyrir 25
árum og hefur einnig leikið meö lúöra-
sveitum. Ég spuröi hann með hvaöa
grúppu hann spilaöi í skólanum:
„Bara þeirri sem æfir kl. 4 á laugar-
dögum.” SGV
Sigurður Long saxófónleikari. Helgar tónlistinni nær allan frítima sinn.
DV-mynd GVA.
„Ef okhur fínnst eitthroð
gott þú spilum við það”
Þegar okkur bar aö garði á jass-
kvöldi FlH skólans var yfirkennari
jassdeildar skólans, Vilhjálmur
Guöjónsson, að hamra á píanó með
fyrsta bandi kvöldsins. Eftir að hljóm-
sveitin haföi leikiö lagið svifum viö á
hann. Hann lét til leiðast en þó þaninn
eins og gítarstrengur því að hann átti
eftir að spila meö ööm bandi, auk þess
sem hluti hljóöfæra hafði lokast inni í
bakherbergi og menn vom aö koma til
hans í öngum sínum. Blaðamaöur
haföi virkilega á tilfinningunni aö ver-
iö væri aö tef ja hann. Vilhjálmur kenn-
ir annars hljómfræöi og tónheyrn viö
skólann, auk þess sem hann kennir á
saxófón og hefur kennt á gítar.
— Hvað eru mörg bönd i skólanum?
„Böndin eru um tíu í tengslum við
skólann.”
— Hvaða músík er spiluð í þessum
böndum?
„Eg gæti nefnt gamalt swing, be
bop, cool jazz, fusion og jassrokk, sem
er verið aö leika núna,” segir Vil-
hjálmur og bendir í gegnum vegginn í
átt til tónleikasalarins þar sem eitt
bandiö keyrir á fullu. „Það er eigin-
lega ekkert af þessu hreint rokk því
það eru jasshljómar í þessu öllu.”
Ekki dægurtónlist
Ég legg fyrir hann varfæraislega
spuraingu um afstöðu skólans og nem-
enda hans til dægurtónlistar.
VUh|álmur Guðjónsson yflrkennari jassdeildar
„Þetta er ekki dægurtónlist sem viö leikið hér en þetta er ekki dægurtónlist
erum að fást við hér. Það getur að vísu í þeim skilningi að hér sé fengist við lög
verið jafnvel diskóívaf í sumu sem er sem eru efst á vinsældalistanum eða
Vilhjálmur Guðjónsson, yfirkennari jassdeildar FÍH-skólans. „Þetta erekki
dægurtónlist sem við erum að fástvið hér." DV-mynd GVA.
spiluð í óskalagaþáttum. Við útilokum
hins vegar ekki neinar stefnur. Ef okk-
ur finnst eitthvað gott þá spilum viö
þaö.”
Ég spyr hann um rokkáhugamenn
úti í bæ og í skólanum. Hvaða tengsl
eru innbyrðis? Nú er sögð mikil gróska
í rokkinu.
„Munurinn á þeim sem hér eru og
sveitum úti í bæ liggur aöallega í
vinnubrögöum. Við spilum tónlist sem
er skrifuð og þaö er tímaspamaöur.
Viö vitum að fjöldi bílskúrsbanda og
tölvupoppsveita hefur aukist gífur-
lega. Fjöldi nemenda í jassdeildinni
hér er svo mikill að þaö hljóta að vera
tengsl úr skólanum yfir í þessar sveit-
ir.”
Semja í ýmsum
stfltegundum
— Hvaða nýjungar kemur þessi
skóli með?
„Það er nýjung aö þegar menn eru
komnir eitthvað áfram fara þeir að
skrifa út fyrir böndin sín alls konar út-
setningar, auk þess sem þeir semja
fyrir þau. Þeir skrifa útsetningar fyrir
allt frá litlum kombóum upp í fimm til
sex lúðra. Á jasskvöldum er tónlistin
yfirleitt tekin upp á segulband og síðan
geta menn hlustað og heyrt hvaö kem-
ur vel út og hvað illa. Nemendur þurfa
aö semja í ýmsum stíltegundum svo
sem ballöðu, latin, swing, svo eitthvað
sénefnt.”
— Þið hafið fengið kennara erlendis
frá?
„Já, við höfum fengið ýmsa menn í
heimsókn. Hingað hafa komið og hald-
ið námskeið Joe Newman, sem var
fyrsti trompetisti hjá Count Basie, Jon
Paul Indeberg, sem er norskur
barítónsaxisti, Pétur östlund, tromm-
ari, og Jón Páll gítarleikari. Þá kom
hingaö nýlega, í annað sinn, gítarleik-
arinn Paul Weeden til námskeiöa-
halds. Aö þessu sinni kom Lou Bennet
organisti, búsettur í Frakklandi, meö
honum.
— Hvaða áhrif hafa þessar heim-
sóknirhaft?
„Þær hafa aukið víösýni okkar og
kynnt nýja strauma vegna þess að
flestir þessir tónlistarmenn hafa verið
gjörólíkir innbyröis.”
— Hvers konar fólk eru nemendura-
ir hér. Er þetta blandaður hópur?
„Þetta er fólk á öllum aldri. Mikið af
því skólafólk. Nú, svo er fólk sem
stundar vinnu úti í bæ og útskrifaö fólk
úr ýmsum skólum.”
Þegar þama er komið sögu er það að
verða Ijóst að Vilhjálmur á aö spila
meö hljómsveitinni sem er að tygja sig
á svið. Þaö er því ekkert annað að gera
en sleppa honum við svo búið.
-SGV
JASS - JASS - JASS - JASS - JASS - J ASS - JASS - JASS - J ASS - J ASS - JASS