Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Page 17
DV. LAUGARDAGUK12. MARS1983.
17
Bílar
Bílar
Bílar
Bílar
Bílar
Portiígalskur viiimi þja r kur
Portaro:
Undanfarin ár hefur fjölgaö þeim
jeppategundum sem fluttar hafa verið
til landsins. Sumar hafa unniö sér sess
aörar ekki. Nú nýverið hóf Bílaleigan
hf í Kópavogi innflutning á Portaro
jeppum frá Portúgal.
Portarojeppinn er framleiddur í
verksmiðju sem annars sérhæfir sig í
samsetningu á öðrum bílategundum,
þar á meðal Volvo og Daihatsu í Portú-
gal. Grindina í bílinn og ýmsa aöra
hluta framleiða heimamenn sjálfir, en
aðrir hlutar koma frá öðrum löndum.
Þannig koma formaöir boddíhlutir frá
Rúmeníu, en þaöan hafa komið Aro-
jepparnir sem margir þekkja. Vélar og
gírkassar koma frá Japan því að
Daihatsuverksmiöjumar leggja til
dísilvélar og gírkassa við þær. Volvo
leggur hins vegar til tvær gerðir
bensínvéla.
Portarojeppinn hefur staðið sig vel í
erfiðum rallakstri víöa um heim, og
meðal annars vann hann í erfiðri
Afríkurallkeppni jeppa sem haldin var
á síðasta ári.
I hönnun bílsins virðist hafa verið
lögö aöaláhersla á að búa til vinnu-
þjark sem hentaði vel í landbúnaði og
fyrir verktaka. Um margt minnir bQl-
inn á Land-Rover, bæöi í útliti og bún-
aði. Mælaborðið er einfalt og ekki mik-
ið borið í frágang. Sætin frammi í eru
tvískipt, bílstjórastóll og tveggja
manna bekkur við hliðina á því. Aftur í
eru langbekkir með sætum fyrir sex,
þannig aðallstekur bílhnn níu.
I stuttum reynsluakstri fyrir
skömmú var hægt að kynnast einni
gerð Portarojeppans, sem Bílaleigan
hf. hefur flutt inn til eigin nota.Þessi
bíll var búinn minnstu dísilvélinni frá
Daihatsu, en sú vél skilar 72 hestöflum.
Heldur virðist bíllinn vera vélarvana
með þeirri vél við snörp átök, en dugar
vel í jöfnum akstri. Dálítið er jeppinn
þungur í stýri og veigalítiö stýrishjól á
þar hlut að. Þrátt fyrir að bíllinn sé
nokkuð hastur fer hann vel með far-
þega í akstri og fjöömnin svarar vel.
Fjöðrun er sjálfstæð aö framan, en
heill öxull aö aftan.
Hægt er að fá bílinn ýmist með stál-
eða plasthúsi og meö misjafnlega
íburðarmikilli innréttingu. I þeirri út-
færslu sem bíllinn er var reynsluekið
var í, þá hentar hann vel fyrir bændur
og verktaka, sem þurfa aö standa í
ýmsum flutningum. Stórar afturdyr og
uppleggjanlegir langbekkirnir skapa
góða flutningsgetu. Burðarmagn er 900
til 1300 kíló.
Portaro — minnir um margt á eldri gerðir af Land-Rover.
Að aftan eru tveir langbekkir með
sætum fyrir sex. Bekkina er hægt að
leggja upp og fá gott flutningspláss.
Að framan er sæti fyrir þrjá. Mælaborðið er einfalt og ekki mikið borið í inn-
réttingar.
Hjólbarðar eru stórir, 65x16, og því
hátt undir lægsta punkt eöa 23 senti-
metrar, sem gefur bilnum aukið gildi í
ófærð.
-JR
Nokkrar tölur:
Lengd: 3974 mm,
Breidd: 1784 mm. Þyngd: 1652 kg.
Hæð undir lægsta punkt: 230 mm.
Bremsur: Skálar á öllum hjólum.
Fjöðrun: Sjálfstæð framan/heill
öxuU aftan
Hjól: 650x16 (8strigalaga).
Vél: Daihatsu 260 D (disil) 4
strokka 2530 rúmsentim. 72 hestöfl
við 3600 sn. á mín. Hámarkshraði
112 km. Aðrar vélar fáanlegar: 260
dísU turbo 95 hö. og 320 dísU, báðar
frá Daihatsu, og Volvo B23A bensin
4 strökka 112 hö/5000 sn. og Volvo
B21ET turbo 4 strokka bensinvél
155/5500 sn.
Verða á Portaro með 72 hestafla
dísUvél ca 440.000.
SUBARU1800 GLF, nú með sjálfskiptingu og vökvastýri.
Endurbættnr £|órh|óladrl£tnn SUBARI
Einn með öllu
— sem hentar nær öllum
Þegar Subaru kom fram með f jor-
hjóladrifna fólksbUinn fyrir nokkr-
umárumslóhannsamstundis igegn.
Svo þótti sá bíU sameína kosti fólks-
bUs og jeppa. I fyrstu var Subaruinn
þröngur og frekar hannaður fyrir
Austurlandabúa en okkur á Vestur-
löndum hvað pláss varðaði. En bUl-
inn sem kom fram fyrst 1972 tók
breytingum og fyrir fimm árum var
breytt verulega um útlit og plássið
aukið.
Með 1983 árgerðinni hafa enn verið
kynntar endurbætur og fyrstu bUarn-
ir eru komnir til Ingvars Helgason-
ar.
Helstu breytingarnar eru þær að
afturhluti þaksins hefur verið hækk-
aöur um nær fimm sentimetra og
gefur það verulega aukið rými inni í
bílnum. Stuðarar eru breyttir og eru
nú úr .ivörtu höggþolnu plasti.
BUarnir koma nú á stærri hjólbörð-
um, 175/70R13. Aðrar minni háttar
breytingar á hliðarlistum, speglum
og ljósum hafa einnig átt sér stað.
Að innan hafa ýmsar breytingar
veriö gerðar tU bóta. Mælaborðið
hefur verið bætt, og nú er einnig hægt
að fá bUinn með „digital” eða tölvu-
mælaborði þar sem allur aflestur er
tölvustýrður, jafnt hraðamælir sem
aksturstölva.
Nýtt stýrishjól hefur verið hannað.
Á það að gefa betra grip og eins betri
yfirsýn yfir mælaborðið. Veltistýri
er nú í öUum bUum og stUlingar á því
hafa veriöauknar.
Sæti hafa verið endurbætt mUcið og
nú eru aftursætin formuð og með
höfuðpúðum.
Sjá/fskipting og
„brekkuhald" helstu
nýjungarnar
Þær nýjungar sem þó vekja hvað
mesta athygli eru sjálfskipting, sem
nú er boðið upp á í fyrsta sinn, og
svokaUað „brekkuhald” eða ,,hUl-
holdar” sem auðveldar töku af stað í
brekku.
Sjálfskipting, sem er þriggja gíra,
er fáanleg meö 1800 bílnum og hefur
hún verið búin sérstökum afUásbún-
aði sem vinnur á öUum skiptistigum
og á þar meö aö draga úr eyöslu.
Lásbúnaöurinn vinnur þannig að
hann heldur átaki á skiptingunni í
stað þess að í venjulegum sjálfskipt-
ingum er töluvert „snuð” sem veldur
því aö véhn þarf að snúast töluvert
meir en ella og eyðslan verður því
meiri. AfUásbúnaðurinn gefur þó
aukið svigrúm, sé verið að auka
hraöann, með því aö sleppa átakinu
að hluta á meðan.
Fjórhjóladrifinn erstýrt
meðhnappiá gírstönginni
„Brekkuhaldið” er nýjung sem
kemur sér vel hér á landi þegar taka
þarf af stað í bröttum og erfiðum
brekkum. Búnaöurinn vinnur þannig
aö þegar stigið er samtímis á
bremsu og kúpUngu, þá heldur
bremsan þar til kúplingunni er
sleppt aftur þótt ekki sé haldið ástigi
á bremsuna. Þetta kemur í stað þess
að setja þurfi bíUnn í handbremsu á
meðan verið að vinna með kúplingu
og bensíng jöf.
Ljósarofa hefur nú verið breytt
þannig að ljósm slokkna þegar drep-
ið er á bílnum, en í staðinn hefur ver-
ið komið fyrir sérstakri stUUngu fyr-
ir parkljós á ljósarofa.
KúpUng er mun sterkari en áður.
Hefur þvermál á kúplingsdisk verið
aukiö úr 200 mm í 225 mm.
Tvær gerðir
með ýmsum búnaði
Af Subaru 1800 verða tvær gerðir
tU sölu hér, en báðar boðnar fram
meö mismunandi búnaði. Annars
vegar er stationbíUinn 1800 4WD
GLF sem boðinn verður beinskiptur
og sjálfskiptur. Einnig er hægt að fá
sjálfskipta bíUnn með vökvastýri, en
það er nýjung sem margir hafa sagt
að vantaöi í bílinn. Sé bUlinn tekinn
með vökvastýri þá er hann ennfrem-
ur búinn raffstýrðum rúðum og úti-
speglum.
Hin gerðin er „hatchback” eöa
tveggja dyra með stórri afturhurð.
Lipur fólksbíU sem býður upp á aUa
kosti fjórhjóladrifsins.
Einnig er fjórhjóladrifinn lítill
sendibUl í boði hjá Ingvari Helga-
syni, Subaru 700 4WD, „kúlutoppur-
inn”. Þetta er UtUl skemmtilegur
snattbUl sem nýtist vel vegna f jór-
hjóladrifsins.
Það verður fróðlegt að fylgjast
með því hvernig nýjungunum í
Subarunum verður tekið hér á landi
og reynslunni sem af þeim fæst, en
erlendis hefur þeim verið tekið
afburðavel og því haldið fram að
með sjálfskiptingu og vökvastýri sé
kominn fram sá alhliða bíU sem
mennhafiveriðaðbíðaeftir.. -JR
SUBARU 1800 GLF — NOKKRAR TÖLUR:
Lengd: 4285 mm.
Breidd: 1620 mm.
Hæð: 1485 mm.
Minnsta hæð frá jörðu: 200 mm.
Vél: 4 strokka, lágrétt gagnstæðir, 1781 rúmsm., 82 hestöfl við 5200 sn. á
mín.
Gírkassi: 4 gíra eða 3 gira sjálfskipting.
Bremsur: diskar framan, skálar aftan.
Hjól: 175/70SR13.
Bensíntankur: 551ítrar.
Snúningsradíus 4,8 metrar.
Verð: 1800 station GLF 294.000. Með sjálfskiptingu kr. 325.000 og
með sjálfsk., vökvastýri og rafstýrðum rúðum og speglum kr.
340.000. 1800 hatchback kr. 275.515 og með sjálfskiptingu 305.380.
Verðin eru án ryðvamar og skráningar og eru m. við gengi 5.3.’83.