Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Page 21
DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983.
21
Sérstæð sakamál
Sérstæð sakamál
Villa Terríss var uppáhald áhorfenda.
ríta og með hjartað á réttum stað.
gefa honum eyri,” sagöi hún. Heföi
hún sinnt honum hefði hann ef til vill
aldrei farið til Adelphi leikhússins,
sagði hún seinna. En nú stóö hann fyrir
framan upplýst leikhúsið, fullur
óhugnanlegs morðhugar.
William Terriss hafði spilað póker
síödegis í Green Room klúbbnum. Um
fjögurleytið snæddi hann meö vini
sínum í íbúö Jessie Millward. Eftir
málsverðinn tefldu þeir. Klukkan um
það bil sjö lagöi ungfrú Millward af
stað til leikhússins. Mennirnir tveir
komu á eftir og tóku léttvagn til
Maiden Lane sem er þröngt sund á bak
viö Adelphi og Vaudeville leikhúsin.
Terriss notaði alltaf bakdyrnar í s'tað
hins hefðbundna inngangs. Á þeim
tímum voru einnig aödáendur sem
Glæsilegur, túlkandi tilfinningaleik-
reyndi ekki að sýna mótþróa, reyndi
ekki aö flýja. Hann var settur í hand-
járn og í vasa hans fann lögreglan
hnífinn. Eftir moröið á hann aö hafa
sagt: — Eg gerði þaö í hefndarskyni.
Hann hefur haldið mér frá leikhúsinu í
tíu ár. Annaöhvort var að deyja á
götunni eða drepa hann.
Prince var færður á Bow Street
lögreglustöðina. I vösum hans fundust
fimm skuldakvittanir, engir peningar.
A sama tíma lá Terriss enn innan við
sviösdyrnar í örmum ungfrú Mill-
ward. Það var ekkert aö gera. Tvisvar
vaknaði hann til meðvitundar og
muldraði — Systa, Systa. Wilham
Terriss tók lokaandvörpin fimm
mínútum áður en átti að draga tjaldiö
frá þetta kvöld.
I 'íf ‘
t *,** y
fcí '/ ; '•“tfhteí"‘ '*'• ‘s fánÍ,
Bakdyr leikhússins þar sem Willíam Terríss var stunginn af keppinaut sín-
um.
stóðu á gægjum og reyndu að sjá
uppáhaldshetjur sínar.
Terriss leitaði að lyklum sínum.
Einmitt þegar hann rataöi á lásinn
stökk dökk vera fram úr rökkrinu og
rak eldhúshníf af feiknakrafti í bak
Terriss. Annað lag lenti í síðu hans og
það þriðja nísti hann í bringuna.
Það heyröist hvorki hósti né stuna
viö þessa blóöugu árás. Jessie Mill-
ward heyrði í búningsherbergi sínu að
Terriss kom og opnaði dyrnar. Síðan
heyröi hún ekkert. Slegin ótta þaut hún
niöur. Lottie, sem klæddi hana í, elti.
Hún fann Terriss sem stóð og hallaði
sér upp að dyrunum. — ,,Hér eru lykl-
amir mínir, Lottie, sagöi hann stilli-
lega. Gríptu manninn. Búningadaman
hljóp út. — Systa, Systa, sagöi hann og
starði á Jessie. Eg hef verið rekinn í
gegn. Því næst leið hann út af í örmum
hennar. Þau hnigu bæði út af á bert
gólfið. Sendið eftir lækni, æpti ungfrú
Millward á meðan skelfingu lostnir
samleikaramir umkringdu þau.
Skömmu síðar kom sveit lækna frá
Charing Cross spítalanum. Því næst
komlögreglan.
Uti á Maiden Lane var Prínce hand-
tekinn þegar eftir árásina. Hann
I þéttsetnum áhorfendasalnum voru
menn á einu máli um að eitthvað væri
að. Hljómsveitin hafði ekki fariö á sinn
stað, sviðsljósið hafði ekki verið
kveikt. Bak við sviöstjaldiö mátti
heyra æstar raddir. Þegar klukkuna
vantaöi eina mínútu í átta var tjaldiö
dregið frá og einmanaleg vera birtist
— leikstjórinn. — Með sorg og trega
verðum við að tilkynna aö ástríkur
vinrn- okkar, William Terriss, hefur
orðiö fyrir alvarlegu, — nei hræðilegu
óláni sem gerir þaö ómögulegt aö af
leiksýningu verði. Eg verö að biöja
yður að yfirgefa leíkhúsiö eins hljóð-
lega og mögulegt er. Miðarnir veröa
endurgreiddir í miöasölunni. Fréttin
fór eins og eldur í sinu um salinn.
William Terriss hafði verið stunginn til
bana. Fólk dreif að fyrir utan leikhúsiö
og klukkustund síöar voru kvöldblöðin
komin á göturnar með aukaútgáfur um
moröiö.
A Bow Street lögreglustööinní var
Prince tekinn til yfirheyrslu vegna
morðsins. — Get ég ekki fengið eitt-
hvaö að boröa, var þaö eina sem
tosaðist upp úr honum.
Strax næsta morgun kom Prince
fyrir réttinn í Bow Street. Réttarsalur-
inn var troöfullur. Leikarar og leikhús-
unnendur tóku komu Prince í
réttarsalinn með ógnandi muldri.
Þrjóturinn í leikritinu var ónæmur
fyrir því og heilsaði áhorfendum
sínum, — þeim fyrstu í langan tíma —
með breiöu brosi. Hann heilsaöi á báða
bóga og sneri kæruleysislega upp á
yfirskeggið. Blööin kölluöu hann
„Mefisto” og glöddu hann innilega
með því. Hann hlustaði á endanlega
morðákæruna meö brosi og hneigingu.
Aheyrendur ærðust þegar hann var
færður út.
William Terriss var grafinn þann 21.
desember, síödegis. Það var kuldi og
rok. Líkfylgdin var næstum því kíló-
metra löng og það tók hana klukku-
stund að leggja aö baki veginn frá
heimili leikarans til kirkjugarðsins í
Brompton. Mörg þúsund manns eltu
fylgdina á gangstéttunum. Viktoría
drottning sendi sérstakar samúöar-
kveðjur sínar. A eftir kistunni gekk
ungfrú Jessie Millward. Hins vegar
var frú Terriss ekki viöstödd. Giskað
var á að tíu þúsund manns hefðu fylgst
meö athöfninni.
Adelphi leikhúsið var ekki opnað
aftur fyrr en eftir viku sorgartíma.
Þaö var með öðrum kröftum í glans-
hlutverkum William Terriss og Jessie
Millwards.
Richard Prince kom fyrir réttinn í
Old Bailey 13. janúar 1898. Akærði lýstí
sig í fyrstu umferð sekan og hrópaði
aö hann hefði verið rekinn til morðsins.
Síðan breytti hann f ramburði sínum og.
lýsti sig ekki sekan. A undan því hafði
hann haldið ræðu þar sem hann lét í
ljós vonir um að enskt réttarfar byöi
ekki hnekki. Hann lét ennfremur í ljós
vonir um aö hann — þrátt fyrir að
hvorki hann né fátæk móöir hans gætu
borgað málsvörn — gæti vænst varnar
eins og hver annar í þessu landi.
Prince lék hlutverk sitt meö öllum
leikrænum ráðum. Þaö hafðí hins
vegar engin áhrif á áheyrendur.
Vörnin byggðist á geðveiki og fjöl-
skylda og skoskir vinir hans gátu lagt
fram ótölulegar sannanir um hana.
Þegar móðir hans sat fyrir dómnum
skemmti Prínce sér stórkostlega og
öskraði af hlátri þegar hann þyddi
skoskt mál hennar fyrir dómarana.
— Hann er fæddur geðveikur, sagði
móðir hans bara.
Yfirheyrslurnar stóöu í einn dag og
eftir hálfs tíma umþóttun lagði
kviðdómurinn fram niðurstöðuna:
Sekur, en samkvæmt fyrirliggjandi
læknisvottoröum, óábyrgur gerða
sinna. Dómurinn hljóðaði upp á vistun
á hæli fyrir geðveika glæpamenn í
Broadmoor. Akæröa var greinilega létt
og hóf þakkarræðu. Dómarinn greip
snarlega fram í fyrir honum og Prince
var færöur á brott.
I Broadmoor leiö honum ágætlega.
Hann stjórnaði afþreyingu samsjúkl-
inga sinna. Hann stjórnaði fangelsis-
hljómsveitinni og lék Shakespeare í
fangelsisgarðinum. Margir urðu til aö
spyrja hvort hann væri í raun
geðveikur.
I Adelphi leikhúsinu var skipt um
leikrit viku eftir enduropnunina. Það
hét Charlotte Corday — franska aðals-
mærin sem myrti byltingarforingjann
Jean Marat í baökerinu. . .
Adelphi leikhúsið i Lundúnum. Gatan The Strand eins og hún leit út i lok
síðustu aldar.
BREIÐHOLTI //Ll SÍMI76225 (/“^1 Fersí k blóm ch K/M MIKLATORGI IJVX/Íi SÍMI22822 iglega.
HUSBYGGJENDUR
Að halda að ykkur hita
er sérgrein okkar:
Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið
frá mánudegi til föstudags. Afhendum vöruna á bygging-
arstað viðskiptamönnum að kostnaðarlausu.
Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi.
Aðrar söluvörur:
Glerull — Steinull — Múrhúðunarnet — Útloftunar-
pappi — Þakpappi — Plastfolía — Álpappír — Spóna-
plötur: venjulegar/rakaþolnar — Pjpueinangrun: frauð-
plast/glerull.
BORGARPLAST HF
Borgamesi sími93-73röll
Kvöldslmi og helgarslmi 93—7355.