Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1983, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1983, Page 32
44 DV. FÖSTUDAGUR 22. APRIL1983. ÚSKA EFTIR BADER 175 FLÖKUNARVÉL FYRIR FLATFISK SF. Haraldsen, Fuglafirði Færeyjum, símar 90-4542-44036 og 90-4542-44085. Sveitarstjóri Starf sveitarstjóra Blönduóshrepps er laust til umsóknar. Umsóknir skulu sendast skrifstofu Blönduóshrepps, Hnjúka- byggð 33, fyrir 10. maí nk. Nánari upplýsingar veitir undirritaður, sími 95-4181. SVEITARSTJÓRIBLÖNDUÓSHREPPS. ■ • PANTANIR SÍMI13010 HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. BETRI LEIÐIR Framkvœmdastoínun burt. Raunhœfar byggdaáœtlanir. AlþÝÖuílokkurinn Ragnar Lár er einn ef aðstand- endum Spékoppsins. Hann hefur teiknað á annað hundrað teikn- inga í bókina auk þess sem hann er höfundur óbundins máis. Við sjáum hann hér á skrifstofu sinni á Akureyri. Koppur semer sneisa- fullur — af góðu gríni ogspéi „ Góöir Akureyringar og aörir gestir! Þá er hún loksins komin á laggirnar bókin sú arna sem þiö eruö nú meö á milli handanna, vonandi. Viö vitum að þiö hafiö beöiö hennar óþreyjufullir, ekki síöur en viö sem aðhennistöndum.” Þannig hefst formáli bókarinnar Spékoppsins sem gefin hefur veriö út á Akureyri. Og þaö er enginn annar en hinn annálaði grínisti Ragnar Lár sem sá um aö rita nefndan formála. I Spékoppi er á annað hundraö teikninga eftir Ragnar Lár, en hann er einnig höfundur óbundins máls. Höfundur bundins máls er Rögn- valdur Rögnvaldsson fyrrum ráö- hússherra á Akureyri, en margar vísur hans og kviðlingar hafa flogiö víða. Viö í Sviösljósinu höfum setið á koppnum frá því við fengum bókina í hendur enda ekki hægt aö halda vatni, þegar Spékoppnum er flett, slíkt er innihaldiö. Þess má geta aö þó aö bókin sé gefin út á Akureyri fæst hún á höfuð- borgarsvæðinu og fyrir þá sem vilja nálgast hana þar er ekkert annaö að gera en koma við í verslunum Penn- ans og spyrja hvort ekki séu góöir spékoppartilsölu. -JGH Animais ca 1964. Aian Price, annar frá vinstri og gamla kyntáknið, Eric Burdon, annar frá hægri. Animals byrja aftur! — þó að meirihluti „Dýranna” sé kominn á fimmtugsaldurinn Hljómsveitin The Animals hefur ákveðiö aö hefja leik á ný eftir 17 ára fjarveru frá poppheiminum. Animals var einhver vinsælasta hljómsveit Breta á fyrri hluta sjö- unda áratugarins og geröi garöinn frægan meö lögum eins og House of the Rising Sun. Hljómsveitin ætlar aö gefa út hljómleikaplötu og halda í fjögurra mánaöa heimsreisu. Leiötogar hljómsveitarinnar eru þeir Eric Burdon söngvari og hljóm- borðsleikarinn góökunni, Alan Price. Price sem nú er orðinn fertugur sagði í viðtali aö flestir byggjust viö því aö þeir ætluöu bara aö leika gömlu lögin. ,, Þetta verður ekkert venjulegt „come back”. Ég held viö eigum eftir aö koma mörgum á óvart meö því efni sem viö höfum safnað í sarpinn. En auövitað leikum viö gömlu góöu lögin líka.” Allir meölimir kvintettsins, nema einn, eru á fimmtugsaldri. Og þá er bara aö sjá hvort sagan endurtekur sig, hvort líður yfir ungar stúlkur er Eric Burdon, 41 árs, skekur sig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.