Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Síða 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. MAl 1983. Eldur kviknaði á Kópavogshæli Slökkviliðið í Reykjavík fór að Kópavogshælinu laust fyrir klukkan sjö í fyrrakvöld, en þar hafði komið upp eldur í ruslafötu í einu her- bergjanna og var hann kominn í gluggatjöld. Þegar slökkvilið kom á staðinn var starfsfólk búið að slökkva eldinn með handslökkvitækjum sem eru á hælinu. Orsök eldsins er ókunn. -JGH. Fjölbrautaskólinn á Selfossi: Þór Vigf ússon sett ur skólameistari Menntamálaráöuneytiö hefur sett Þór Vigfússon menntaskólakennara skólameistara Fjölbrautaskólans á Selfossi um eins árs skeið frá 1. ágúst 1983 að telja. Þór var áöur kennari við Menntaskólann við Sund. Um skólameistarastöðuna sóttu auk Þórs Björn Pálsson fjölbrautaskóla- kennari, Guðjón Sigurösson skóla- stjóri, sr. Haukur Ágústsson, skóla- stjóri, Jón Hannesson menntaskóla- kennari og Þorlákur Helgason aðstoðarskólastjóri. Einn umsækjandi óskaði nafnleyndar. -PÁ. Aðalf undur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis Innlán hafa aukist um rúmlega 90 milljónir Alfa klúbburinn, klúbbur þroskaheftra á vegum Æskulýðsráðs i Árseli, hélt kökubasar til ágóða fyrir ferðasjóð i Glæsibæ á föstudag. Myndina tók Ijósmyndari DV af hinum vösku ungmennum þegar þau seldu afurðir sinar i Glæsibæ. D V-mynd Bjarnleifur. Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis hélt aðalfund sinn nýlega. Þar kom fram að innlán sparisjóðs höfðu aukist á árinu um 62,6% eða 91,4 millj. kr. Er það nokkru meiri aukning en almennt varð í banka- kerfinu. A árinu jukust útlán sparisjóðs um 69,4% eða um 66,6 millj. króna. Formaður sparisjóðsstjómar, Jón G. Tómasson, skýrði frá því að seint á liðnu ári heföi sparisjóðurinn, fengið heimild til þess að setja upp útibú í Seitjamarneskaupstað. Nú er unniö að undirbúningi þess að koma útibúinu á fót og veröur þaö væntanlega opið á miðju sumri. Starfsemi sparisjóðs efldist mjög á árinu og jukust eignaliðir á. efnahagsreikningi sjóösins um 100 millj. króna, í um 275,45 miilj., eða 65%. Innlánsaukning á árinu varð um 91,4 millj. króna eöa 62,6%, sem er nálægt því 3% meira en almennt gerist í bankakerfinu. Heildar- innistæður í sparisjóðum í árslok vom um 237,5 miilj. kr. Heildarútlán sparisjóðs vom í árs- iok um 162 millj. kr. og höföu þá aukist um 69,7% af heildarútlánum sparisjóðs. Vom lán til einstaklinga u.þ.b. 105millj. króna. -KJ/Starfskynning. Togarinn Jón Kjartansson: Seldi f isk í Cuxhaven — fékk 2,6 milljónir fyrir 173 tonn Togarinn Jón Kjartansson frá Eskifirði seldi fisk í gærmorgun í Cuxhaven í Þýskalandi, 173 tonn, fyrir 2.624.688 krónur. Meöalverð var 15,19 krónur fyrir kílóiö. Aflinn var mjög blandaöur, uppistaðan ufsi, karfi, grá- lúða og fleiri óteljandi sortir eins og í góðum ávaxtagraut. Þetta þykir bara þokkalegt verð fyrir svona blandaöan afla. Hólmanesiö kom inn í fyrrakvöld með 117 tonn, grálúðu, karfa og eitthvað af þorski. Annars hefur afli togaranna veriö lélegur og einnig hjá • netabátunum, miðað við sama tíma í fyrra. Regína, Eskifirði/-JBH. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði „Lögbundnum” hríng viðræðna lokið Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram undir fomstu Sjálfstæðis- flokksins. Um helgina lauk „lögbundnum” hring viðræöna og vonandi verður ekki farinn annar hringur í bráð. Geir Hallgrimsson vinnur að þessum máium með tuttugu og þriggja manna nefnd. þ.e. allan þingflokkinn á bak við sig, og hefði það hálfa verið nóg. Ein nefnd á vegum þingflokksins vinnur nú aö einskonar efnahagsúttekt, en byggir athuganir sínar og skoöanir náttúr- lega á athugunum og skoðunum Þjóðhagsstofnunar, : sem em öllum frjálsar. Ekki verður séð að lausnir á efnahagsvandanum liggi á borðinu, a.m.k. hafa þær lítið verið ræddar á þeirri „lögbundnu” hringferð, sem í gangi hefur vcrið. Þannig virðast ekki liggja fyrir mótaðar alvöruskoð- anir flokka á næstu viðfangsefnum, aðrar en sá vaðall, sem uppi var í kosningunum. Að vísu gaf Alþýðu- bandalagið út sinn samstarfsgmnd- völl fyrir kosningar, svona til að leið- beina viðmælendum um að hafa ekki uppi rangar hugmyndir, en að auki kemur bandalagið með yfir hundraö prósent verðbólgu í farangrinum. Ljóst er að nú þurfa ákveðnir og harðir menn að taka höndum saman og setjast niður og semja. Hið svifa- seina „lögbundna” kerfi við stjórn- armyndanir er alveg ófært við þær aðstæður sem ríkja, og þótt hundrað þingmenn vildu verða ráðherrar, er alveg Ijóst að þeir verða ekki nema tíu í mesta lagi, og eins gott að þeir áköfustu geri sér grein fyrir því í tíma. Menn geta auðvitað gamnað sér við að funda út og suður um ein- földustu atriði, en almcnningur í Iandinu krefst þess að mynduð verði ríkisstjórn fyrir miðjan þennan mán- uð, og mun ekki taka létt á þeim, sem setja fótinn fyrir þann möguleika. Auðvitað er alveg sjálfsagt að leita allra færra leiöa, en spá Svarthöfða er sú að í næstu stjórn sitji Sjálf- stæöisflokkur, Framsókn og Alþýðu- flokkur. Forsætisáðherra verður án efa úr Sjálfstæðisflokknum og hafa verið nefndir í því sambandi Birgir ísleifur Gunnarsson, Matthías Bjarnason og Ólafur G. Einarsson, að því frágengnu að Geir Hallgríms- son gegni embættinu. En grunur Svarthöfða er sá að fjórði maður komi hér við sögu og sé þeirra líkleg- astur um það bil sem menn hafa tal- að sig þreytta. Sagt var um Vinston ChurchiII að galíar hans hefðu verið svo augljós- ir, að kostir hans hefðu ekki fengið að njóta sín fyrr en menn fóru að kynn- ast honum. Hið sama mætti segja um einn mann í þingflokki Sjálfstæðis- manna, Sverri Hermannsson. Hann hefur verið næsta umdeildur bæði í flokki sínum og utan hans. Hitt ættu menn að skoða nú, þegar mikill vandi er á hðndum, og þegar þörf er fyrir ákveðinn mann, sem gæti bæði haft nokkra stjórn á þingflokknum og í ríkisstjórn og verið skjótvirkur, þegar mikið liggur við, og fáir munu þeir, sem nú sitja á þingi, sem búa yfir sama áræði og Sverrir til hvaða verka sem þari aö vinna. Engum getum skal aö því leitt hvort svo tekst til að Sverrir Hermannsson verði forsætisráðherra. En fari svo mundi það reynast vel ráöið miðað við allar aðstæður og þá erfiðleika, sem framundan eru og teljast fáum bjóðandi. Ekkert af því sem hér hefur verið sagt virðist augljóst í dag, enda eru viðræður rétt sloppnar út úr hinum „lögbundna” hring. Núverandi ráð- herrar sumir eru að rísa úr flensu, en veikindi þeirra hafa út af fyrir sig ekki hindrað rúmstokksviðræöur um viðhorf til einstakra stjórnar- munstra. Fram að þessu hefur að- cins verið rætt um menn og flokka, en lítið sem ekkert um þann vanda, sem næstu ríkisstjórn ber að leysa. Þótt þetta þyki kannski ekki bera vott um skjótar aðgerðir skulu menn hafa í huga, að úrslit kosninganna juku frekar á erfiðleikana en hitt. Auðvit- að munu erfiðleikar okkar teknir til meðferöar, þegar kemur að sjálfum stjórnarsáttmálanum, en þá ríður á miklu að menn kunni að rifa sig úr sjálfsstjórnarfari verðbólgunnar. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.