Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Side 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. MAl 1983. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Walesa óskar viðræðna við yfirvöldin Telur dagbæk- umar ófalsad- ar vegna ein- kenna Parkin- sonsveikinnar Lech Walesa, leiötogi hinnar óháöu verkalýöshreyfingar, sem bönnuö er í Póllandi, hefur endurnýjað sínar fyrri áskoranir um aö yfirvöld taki upp samningaviðræður viö Einingu eftir mótmælaaögeröimar 1. mai. Fagnaði hann þátttökunni í mót- mælaaðgerðunum, sem efnt var til undir veifu Einingar, samtaka, sem eitt sinn höföu 9,5 milljónir manna innan vébanda sinna. Á leiö heim af vakt í Lenínskipa- smíöastöövunum sagöi Walesa í gær: „Viö vildum sýna stjórnvöldum að viö erum ennþá til og aö þau ættu að hitta verkalýösforystu okkar og taka upp viðræður.” Valdhafamir pólsku hafa þó engin viöbrögð sýnt í þá áttina. Þau hafa, síöan herlögunum var komið á, reynt aö gera sem minnst úr Walesa og svert stööugt orðstír Einingar. Breski sagnfræðingurinn, David Irving, sem fremstur var í flokki þeirra er tortryggðu nýfundnar dag- bækur Hitlers, hefur nú snúist til sömu skoöunar og tímaritiö Stem og telur þærófalsaöar. Haft er eftir Irving að honum hafi snúist hugur, þegar honum voru sýnd sýnishorn af dagbókunum og hann sá aö rithöndin á þeim kom heim og saman viö uppgötvanir sem hann haföi gert um heilsufarHitlers. Irving mun hafa fundiö og ætlaö sér aö opinbera alveg á næstunni dag- bækur, sem dr. Theodore Morell, síöasti einkalæknir Hitlers, haföi haldið. I þeim kemur fram að Parkin- sonsveiki hafi hrjáö Hitler undir þaö síöasta. ,,Ö11 einkenni Parkinsonsveikinnar (hrömunarsjúkdóms) birtust í skrift- inni í dagbókarfærslunni frá 16. apríl 1945, sem mér var sýnd,” segir Irving og heldur því fram aö enginn falsari heföi vitaö um veikindi Hitlers. Segir hann aö línumar hafi hallað niður á viö þrátt fyrir línustrikaðar blaðsíöur dagbókanna og stafageröin fariö minnkandi eftir því sem línan lengdist til hægri. — Telur Irving Vörpuðu djúpsprengjum eftir merkjum, sem heyrast ei síðan JónEinar, fréttaritari DV í Osló: Kafbátaleitin viö vesturströnd Noregs heldur áfram. Seint í gærkvöldi fékk Orionflugvél norska hersins sam- band við hlut sem miklar líkur voru á aðværikafbátur. Flugvélin varpaöi þegar tveim neöansjávarsprengjum. Eftir þaö hafa ekki fundisthljóðmerki á þessum staö. — En vélin varö aö hætta leitinni í nótt vegna eldsvoða um borö í ferju viö suðurströnd Noregs, þar sem hennar var þörf. Vélin hóf aftur þátttöku í kafbátsleit- inni í morgun og þar em nú tvö herskip og fleiri norskirkafbátar. Yfirstjórn leitarinnar telur sig ömgga á því, aö hafa aö minnsta kosti sex sinnum orðið vör kafbáts síöan leitin hófst á miðvikudag. Hún segist ömgg á því aö þessi hljóðmerki, sem heyrst hafa, hafi verið frá þrem ólík- um kafbátum. Tveir kafbátanna vom í Sunn Hördaland og einn kafbátur var fyrir utan f jögurra mílna mörkin. Herstjórnin s$*ði í gærkvöldi, eftir aö neðansjávarsprengjunum var varp- aö, að hún væri reiðubúin aö fjölga mannskap og vélarkosti í leitinni en fækkaö haföi veriö skipum og flugvél- um í leitinni í gærmorgun. Á friðartím- um em ákvæöi sem tryggja dátum ákveðin takmörk um hversu lengi megi halda þeim úti til aðgerða án hvíldar. Hvíldust þeir í gær og í nótt og munu nú reiðubúnir til næstu lotu. einnig aö stafagerðin sýni einkenni þess aö Hitler hafi verið undir áhrifum lyfja sem læknir hans hafði gefiö honum við hrömunarveikinni. Lundúnablaöiö Time hefur eftir Irving að hann álíti samt aö sum skjal- anna sem Stern hefur birt séu f ölsuö. Korvettan „Sleipnir” og Orionflugvél við kafbátsleitina inni á Harðangursfirði. Standavörðum bandarískasendh ráðiðíVarsjá Pólska lögreglan tók upp varðgæslu við bandaríska scndiráöið í Varsjá i gær og meinaði Pólverjum að fam inn i bygginguna. Lögreglumenn stöðvuðu Pólverja við bæði hliðin í gær. i sömu byggingu er einnig bandaríska bókasafnið, sem pólsk yfirvöld kröfðust í síðustu viku að yrði lokað. Það var í mótmælaskyni við útsendingar útvarpsstöðva, sem styrktar eru af bandarísku fé. Lögrcglan krafði hvern mann um skilríki og lét hann gera grein fyrir ferðum sinum, cf hann ætlaði inn í sendiráðsbygginguna. Ein kona var leidd inn í lögreglubifreið og flutt á brott. Bandariska bókasafnið í Varsjá er sagt vinsælt af Pólvcrjum bæði vegna bókakostsins og kvikmyndasýninga. Bar lögreglumcnnina að i sömu svifum, scm kvikmyndasýning átti að hefjast síðdegis i gær. Bandariskur kafari telur sig hafa fundið þýskan kafbát á hafsbotni í Karíbahafinu og telur hann fullan af gulli og gersemum. Fannþýskan kafbátáhafsbotni Bandarískur kafari segist hafa fundið flakið af þýskum kafbát úr síöari hcimsstyrjöldinni, liggjandi á hafsbotni í Karíbahafinu. Telur harin að í kafbátnum hafi verið gull og list- munir sem nasistar hafi hirt í her- teknum löndum. Maðurinn rak áður björgunarfélag í Flórída en býr nú í Evrópu og segist hafa fundið kafbátinn á 23 metra dýpi árið 1979 en haldið því leyndu, svo að aðrir fjársjóðsleitarmenn tækju ekki fundinn frá honum. Neitar hann að gefa upp hvar báturinn liggur. Hann segir að mælingar gefi til kynna að allar venjulcgar innréttingar kafbáts hafi verið fjarlægðar úr þessum. Það bendi til þess að hann sé einn af niu kafbátum scm nasistar bjuggu sérstakiega út til flutninga á dýrgripum úr herteknum Evrópu- löndum. AUir níu sigldu frá Hamborg 1945 en ekki hefur spurst til netns þeirra síðan. 6afstupp20km frá nordurpól ttalskur blaðamaður, Ambrosio Fogar, átti aðeins 20 km leið ófarna til þess að vcrða fyrstur manna til að ganga cinsamall til norðurpólsins þegar hann varð að gefast upp. Flugvél bjargaöi honum af rekisnum. Þessi 41 árs gamli Milanóbúi hafði gcngið nær 800 km leið þcgar hann lenti í rckís og komst ekki lengra fót- gangandi. Hann hafði verið fimmtíu og cinn dag í ferðinni. Einu sinni áöur hafði hann fengið flugvél til þess aö hjálpa sér yfir auðan sjó. Annars haföi snjóblinda háö honum i ferðinni .)g scinkanir á vistarflugi til hans. í síðasta mánuði gafst breskur ævintýramaður, David Hcmpleman- Adams (26 ára), upp í sams konar tilraun til þess að komast fótgangandi á norðurpólinn. Vout veður hafði hamlað honum og loks hafði hann rif- brotnað i byltu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.