Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Síða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR3. MAl 1983.
11
Við Elliðavatn:
Veiðimenn rufu þögnina
og nokkrir svanir...
Beöiö eftir því að sá stóri bíti á og á meðan er fengið sér kaffi.
Myndir G. Bender.
förum venjulega að Þingvöllum en
það er alltof snemmt núna, ákváðum
því að prufa að renna héma. Fisk-
urinn héma er tregur en maður veit
aldrei hvenær hann tekur. Þeir era
að láta vita af sér hérna silungarnir
fyrir framan, sumir vel vænir. ”
Þetta höfðu nokkrir veiöimenn að
segja við Elliöavatn fyrsta daginn.
Já.það var margt um manninn viö
vatnið. En engum tókst, meðan við
stóðum við, að ná silungi. En tölu-
vert virtist vera af silungi í vatninu
því að hann vakti um allt. Það var
friðsælt um að litast á sunnudaginn.
Það eina sem rauf þögnina voru
stangaveiðimennirnir og nokkrir
svanir. Það má segja að vorið hafi
fagnað veiðimönnum innilega í
morgunsælunni. Þegar við hurfum á
brott var klukkan ekki nema rétt tíu
og menn reyndu að fá fiskinn til að
taka fluguna, maökinn, spúninn og
rækjuna. En hann virtist vera tregur
ennþá, vatnið hefur líklega veriö of
kalt. En það lagast vonandi innan
tíðar. G. Bender
„Þaö er góða veðrið sem dregur
mann hingað upp eftir, það sést einn
og einn fiskur stinga sér. En þeir
narta varla í beituna.” ,,Það er
urriði héma, ég er að reyna að fá
hann til að taka Stremer en tregur er
hann. Ljómandi veiðiveður og
verður vonandi svona áfram.” „Viö
Ifeiðst hafa um 80
sjóbirtingar í vorveið-
inni í Geirlandsá , þótt
vorið hafi verið heldur
risjótt. „Við fengum 14
fiska um heigina, "sagði
Ragnar Pétursson i
Kefiavík. „Sá stærsti
var um 9 pund. Það er
eitthvað af fiski neðst i
ánni en það er bara svo
kaltennþá."
mynd G. Bender.
Þessi kastaði flugunni fallega en fékk silunginn samt ekki til að taka.
GunnarBender
VEIÐIVON
Varðskipsmenn fóru
í rússneskan togara
Skipsmenn af varðskipinu Tý fóru
um borð í sovéska togarann Sergej
Esenin, þar sem hann var á karfa-
veiðum skammt utan viö tvö hundruð
mílna mörkin suðvestur af Reykja-
nesi, snemma á sunnudagsmorgun.
Var um eftirlitsferö að ræða af hálfu
varöskipsmanna.
Að sögn Guðmundar Kjærnested hjá
Landhelgisgæslunni hafa varöskips-
menn heimild samkvæmt svokölluðum
Norðaustur-Atlantshafssamningi að
fara um borð í togara þótt þeir séu
fyrir utan landhelgina.
Varðskipsmenn báðu skipstjóra
togarans um leyfi til að koma um borð
og heimilaöi hann það.
Þegar varðskipsmenn ræddu við
skipstjórann kom í ljós, að hann hóf
veiðar þann 7. apríl og mun ljúka þeim
5. maí. Þeir á togaranum veiöa með
flotvörpu á um fimm hundruð metra
dýpi.
Karfinn sem þeir veiddu var frá 22 til
34 sentimetra að lengd. Hann er haus-
aður og frystur og þaö sem meira er,
innvolsið er líka nýtt og notaö til
skepnufóðurs.
Þrjátíu og sjö aðrir sovéskir togarar
voru á þessu svæði auk aðstoðarskipa.
-JGH.
Viðbót um
Kaffivagninn
Sigurður E. Guömundsson
borgarfulltrúi hafði samband við
blaðið vegna greinar um Kaffivagn-
inn i síðasta helgarblaði. Hann vildi
bæta því viö að upphaf Kaffivagnsins
mætti rekja til fjórða áratugarins,
áranna 1935—1936.
Sigurðui- kvaðst hafa verið
uppvöskunarstrákur í fyrsta Kaffi-
vagninum, sem var vörubíll meö
yfirbyggðum palli. Bjami Kristjáns-
son, sem rak vagninn þá, tengdist
fjölskyldu Sigurðar. Kaffivagninn
stóð á þessum árum þar sem Elling-
sen var áður, i Tryggvagötu. Þrátt
fyrir frumstæða aðstöðu var
aðsóknin mjög mikil, og var þessi
sérstæði veitingarekstur rekinn
þarna fram yfir stríðsárin eða uns
núverandi eigendur tóku við.
-pa.