Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Blaðsíða 19
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 3. MAl 1983.
19
Menning Menning Menning
Tvær kenning-
ar um aðsókn
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í
Háskólabíói 28. aprfl.
Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat.
Einleikari: Sigríður Vilhjálmsdóttir.
Efnisskrá: Sigurður Egill Garðarsson: Friðarkall;
Wolfgang Amadous Mozart: Konsert í C-dúr fyrir
óbó og hljómsveit KV. 314; Ludwig van Beet-
hoven: Sinfónía nr. 6 í F-fúr op. 68.
Tónlist
Eyjóifur Melsted
Sigríður Vilhjálmsdóttir
Fleiri geta lagt orð í belg
Friöarkall Sigurðar Egils Garðars-
sonar er afar friðsemdarlegt verk,
skipulegur lítill hljómsveitarþáttur
sem tæplega truflar eyru innstillt á
hefðbundna hlustun. Friðarkall bendir
á það tvennt, að Sigurður Egill hafði
aflað sér allgóðrar þekkingar á
sinfóníuhljómsveit þegar hann samdi
verkið, og að fleiri geta lagt orð í belg
um friðinn en þeir sem hæst hrópa og
stærsta flagginu veifa.
Stflviss og sjálfstæð
Sigríður Vilhjálmsdóttir hefur þegið
góða blásaranáttúru í vöggugjöf. Hún
hefur líka ræktað vel sínar góðu gáfur
svo að nú kemur hún öðru sinni heim
sem einleikari; stílviss, sjálfstæð og
með undirmjúkan heillandi tón.
Þannig var meðferð hermar á Mozart-
konsertinum innan ramma hefðar-
innar en prýdd hennar listamannslega
sjálfstæði. Líkisthún nokkrum blásara
er það helst föður sínum, og er það ekki
leiðumaðlíkjast.
Fáir strengir geta líka spilað
vel
Hljómsveitin okkar galt strengja-
fæðar sinnar í Pastoralsinfóníunni og
vera kann aö flensan hafi aukið enn
hennar mæðu. En þótt hljómsveitin
okkar nái sjaldan massifum hljómi
stórhljómsveitanna getur hún vissu-
lega leikið mjög vel. Og hún lék
Pastoral í megindráttum vel. Aöeins í
örfáum tilvikum komu hnökrar í ljós,
eins og hjá fiðlum í öðrum kafla og
trompetum og básúnum í lokin. En svo
léttilega sem línan rann eins og í
allegrokaflanum, frá óbói til flautu til
klarínettu og endaði svo í siaufu hjá
horninu — ja, þannig rennur hún að-
einshjá góðumhljómsveitum.
-EM.
Til er þumalfingursregla, sem segir
að verk eftir íslenskt tónskáld og
islenskur einleikari þýði lágmarks-
aðsókn að tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar. Til er aftur á móti önnur
kenning sem segir að sé Beethoven á
efnisskránni megi bóka húsfylli.
Beethovenkenningin reyndist standast
betur að því er varðaði þessa tónleika
og skal verkefnavalsnefnd hér með
bentáþað.
Til sölu
90m2 íbúð í fjölbýlishúsi ásamt bílskúr og tilheyrandi geymslu
á Þingeyri Dýrafirði.
Upplýsingar í síma 94-8247 milli 21.00 og 23.00.
Umboðsmenn óskast
ÓLAFSVÍK
Uppl. hjá umboðsmanni, Guðrúnu Karisdóttur, sími
(93Í-6157 og á afgreiðsiu DV, sími27022.
' FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR
Uppi. hjá umboðsmanni, Sigurði Óskarssyni, sími
(97) 5148 og á afgreiðslu DV, sími27022.
Aukablað urn
GAQÐA
. °s
kemur út laugardaginn 14. maí nk.
Þeir auglýsendur sem dhuga hafa á að
auglgsa í blaðinu vörur sínar og
þjónustu, vinsamlegast hafi samband við
auglýsingadeild DV, Síðumúla 33
Regkjavík,
eða í síma 27022 fyrir 6. maí nk.
A uglýsingadei/d
Síðumú/a 33 simi27022.
6cyl. - 225cu.in. - Sjálfskiptur - Aflstýri
Aflhemlar - Styrkt fjödrun -^Styrktir demparar
Electronisk kveikja ...... .
JOFUR
HF
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600