Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Qupperneq 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ1983. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Steingrímnr út á sloppnum. Ef Steingrímur væri ekki framsóknar- maður Það heyrðist til Steingrims Hennaunssonar, formanns Framsóknarflokksins, um daginn þar sem hann var að skamma blaðamann Tímans fyrir slæiega frammistöðu við dreifingu blaðsins. Steingrímur kvartaði mjög yfir því að hann sæi aldrei blaðiðfyrr endaginneftirað. það kæmi út og klykkti út með þessum orðum: „Ef ég væri ekki sannfærður framsóknar- maður, væri ég fyrir löngu búinn að segja þessu blaði upp!” Engar fréttir, góðar fréttir Það hefur ekki farið miklum sögum, enn sem komið er, af stjórnar- myndunartilraunuro Geirs Hallgrímssonar, enda mun hann hafa skipt um bil og farið ferða sinna á frúarbiln- um tU að gera blaðamönnum eftírförina erfiðari. Þó fór svo, er hann ætlaði að ræða við Steingrim Hermanusson, að fulltrúi fjölmiðlanna var þar viðstaddur. Þar sem Steingrímur lá í fiensu varð Geir að fara heim til hans og þegar hann kom þar að sá hann ljósmyndara Tímans á vakt fyrir utan. Geir keyrði þá framhjá og Geir forðast f jölmiðla. heim til Matthiasar Bjarna- sonar, sem býr ekki alllangt frá, og hringdi til Steingríms. Krafðist hann þess að ljós- myndarinn yrði rekinn frá og varð Stcingrímur að fara út á sloppnum til að stugga við manninum. Fyrir slíka hörku í veikindum á hann skUið að uppskera ráðherrastól! Ekkert liggur á Eimskip hefur nú á leigu enskt flutningaskip, City of Hartlepool, með enskri áhöfn. Það gerðist um daginn að skipið varð tveim dögum á eftir áætlun og þegar skip- stjórinn var spurður hverju þetta sættí bar hann því við að þeir heföu hreppt vont veður og ekkert vit verið í öðru en slá af. Skipstjóranum var þá sagt að svona nokkuð þýddi ekki, skipstjórar hjá Eimskip stæðust sínar áætlanir. Karl svaraöi því þá til að hann hefði vcrið hjá skipafélagi sem hefði átt yfir 500 skip á hundraö árum og aðeins misst f jögur skip á öllum þeim tíma. Hann sagðist skUja nú af hverju íslendingar hefðu misst jafn- mörg skip á örfáum árum. Þorskar draga ýsur Maður nokkur, nákunnugur sjávarútv-'"!, sero missti þingsæti sitt i síðustu kosningum var spurður að því hvort hann sæi eftir sætinu. Hann svaraði því neitandi: „Það er betra að vinna i þorski en með þorskum,” sagði hann. Láklega hefur hann oft dregið ýsur meðan hann vann með þorskunum. Umsjón: ÓlafurB. Guðnason Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Laugarásbíó: HÖNDIN Michael Caine er góður i hiutverki teiknarans Jon Landsdale i myndinni Höndin. Hann er höfundur teiknimyndasögu og eftir að hann missti höndina er annar fenginn tH að sjá um að teikna eftir hugmyndum hans. Hér sjáum við hann ásamt „arf- takanum" rökræða teiknimynda- söguna. „GÓÐIR HÁLSAR” SEGIR HÖNDIN Laugarásbíó: The Hand (Höndin). Leikstjóri: Oliver Stone. Handri*: Oliver Stone. Kvikmyndun: King Baggot. Framleiðandi: Edward R. Pressman á vegum Orion Pictures. Aðalhlutverk: Michael Caine, Andrea Marco- vicci, Mara Hobel og Annie McEnroe. Kvikmyndin Höndin getur tæplega talist til mynda í fyrsta gæðaflokki aö mínu mati. Þaö sem gerir myndina þó á margan hátt eftirtektarveröa er frumlegt handrit Oliver Stone, góöur leikur Michael Caine og síðast en ekki síst er myndin allspennandi — eins og þessar í hroUvekjustílnum eru oftast. Þó ég segi aö handritið sé frumlegt er þaö ekki aö sama skapi trúverö- ugt. Þaö kemur ekki aö sök, myndin á greinUega fyrst og fremst aö vera spennumynd og lítiö meira. Eins og nafniö bendir til gengur myndin út á hönd eina, sem lætur til skarar skríöa og gerist aösópsmikU í kyrkingum, en þaö er hennar aðferð viöaömyrða. Myndin byrjar sakleysislega. TeUcnari aö nafni Jon Landsdale vinnur viö að teikna myndasöguna sína Mandro í Utlu glerhúsi, sem er í fallegum garöi viö hús í litlu friðsælu þorpi. Hann er kvæntur konu að nafni Anne og þau eiga eina dóttur, Lizzie. Er Jon hefur lokiö viö dagskammt- inn sinn í teikningunum kemur hann inn til konu sinnar, sem fer aö ræða um þaö við hann hvort þau eigi ekki aö flytja til New York. Jon er því mótfalUnn, en Anne er æst í aö flytja. Síöan er sýnt hvar þau eru aö aka um á bU sínum og enn eru þau aö tala um New York-flutninginn. Þaö er Anne sem ekur og í öllu rifrUdinu reynir hún aö fara fram úr bif reið, en þaö tekst ekki betur en svo aö þau lenda í árekstri meö þeim afleiðing- um aö Jon missir hægri höndina. Höndin finnst ekki viö árekstrar- stað þrátt fyrir mikla leit og þykir það nokkuö undarlegt. En úr þessu fer ýmislegt gruggugt aö gerast. Þaö kemur nefnUega í ljós aö höndin situr ekki aðgerðalaus, heldur fylgir húsbónda sínum eftir. Og meira en þaö, hún gerist hinn mesti drápari, sem svífst einskis. En hún velur fómarlömbin ekki af handahófi, heldur tengjast þau hugsun Jons. Hér skal láta staðar numiö við aö segja frá efnisþræðinum. Sjón er sögu ríkari, eins og þar stendur. Meö aöalhlutverk í myndinni fer leikarinn kunni, Michael Caine, og hann stendur sig mjög vel. Það er einmitt hann sem er teiknarinn og jafnframt „eigandi” handarinnar. Michael hefur leikið í mörgum myndum í gegnum tíöina og ég hef ávallt haft mikið dálæti á honum. Hann er aö mínu mati einn af þessum leUcurum sem alltaf standa fyrir sínu. Kvikmyndunin er góö og önnur tækniatriði reyndar líka og tekst aö ná upp dágóðri hrollvekjustemmn- ingu meö öllum þeim taugaspenn- ingi sem henni fylgir. Þá er höndin s jálf vel úr garði gerð og leit maður á hana sem sjálfstæða „veru” sem framkvæmdi allt og geröi allt eins og um manneskju væri að ræða. Þegar upp er staöiö er þaö einmitt þessi eiginleiki handarinnar, sem gerir þessa mynd jafnóvenjulega sem raun ber vitni, og aö mínu áliti einnig frumlega. Þrátt fyrir aö ég hafi aldrei veriö gefinn fyrir hrollvekjur eða myndir í slikum dúr haföi ég þokkalega gaman af þessari mynd. Eg get þó ekki leynt því aö mér leið dálítiö ónotalega þegar ég kom út af henni á föstudagskvöldið. En þaö vildi til að laugardagur og sunnudagur voru framundan, þannig aö þokkalegur tími gafst til aö jafna sig. Jón G. Hauksson. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Smáauglýsinga og áskriftarsími 7022 STARFSFÓLK í VEITINGAHÚSUM Umsóknir um dvöl í sumarhúsum félagsins aö Svignaskaröi og Húsafelli þurfa að berast til skrifstofu félagsins fyrir 15. maí 1983. FÉLAG STARFSFÖL.KS í VEITINGAHÚSUM Hverfisgötu 42. ER KOMIÐ! kr. Alltaf eitthvað fróðlegt og skemmtilegt. F«est á kladsölusloitum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.