Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Síða 34
34
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. MAl 1983.
BHarnir i hlaðinu. Mercedes Benz 280 B árgerð 1976 og Izuzu Trooper érgerð 1982. D V-mynd Bj. Bj.
íslendingar kunna
ekki að þvo bfla
Þessi dráttarvól, eða traktorsbarn, sem Sveinn hefur til garðstarfanna, er
ólíkt myndarlegri gripur en garðsláttuvél. Hún er orðin 11 ára og eina
viðhaldið eraðþað hefur einu sinni verið skipt um kerti. DV-myndBj. Bj.
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
Sveinn Torfi Sveinsson sýnir okkur f lotann
Sveinn Torfi Sveinsson verkfræðingur
býr í fallegu einbýlishúsi viö Alftanes-
veginn. Þar stendur Izuzu Trooper
jeppi í hlaöinu og inni í bílskúr lúrir
silfurgrár Benz. I skúrsem er byggður
inn í hraunið í lóöinni er líka aö finna
dvergtraktor sem Sveinn notar við
störf í garöinum. Þaö er greinilegt að
bíladellan hefur fylgt honum vel og
dyggilega um mörg ár.
„The kings car"
„Ætli bílaáhuginn hafi ekki byrjað
1949 þegar ég Iauk prófi. Þá fékk ég
Renault bíl meö vinnunni, einn af
þessum svonefndu hagamúsum. Þaö
var mikiö lélegur bíll. Svo eignaðist ég
Buick bíl meö tuskuþaki og öllum þeim
sjálfvirka búnaöi sem þá var til. Mikiö
skemmtilegan. Þaö var alger bíladella
í kringum þann bíl. Eg keypti hann af
manni í bandaríska sendiráöinu. Sá
átti hund sem var kaliaöur King.
Bíllinn var svo kallaöur „The kings
car ”. Svo fékk ég Volkswagen 1955 og
þaö var einhver albesti bíll sem ég hef
átt. Mikið lifandis skelfing var harrn
óskaplega góöur. Hann átti ég í níu ár.
Eg tók viö honum úr stroffunni. Þaö
var alveg yfirburöabíll. Eg fór á
honum til Húsavíkur einu sinni og hann
eyddi 6,7 lítrum á hundraöiö þá. Og
vegimir voru ekki par góöir. Bensín-
tankurinn, sem tók 40 lítra, entist alla
leiöina. Svo fór Volkswagen aö eyöa
tvöfalt meira þegar hann var kominn
meö sjálfvirkt innsog og fleira,” bætir
Sveinn viö.
Þú hefur átt margar tegundir. Ekki
einskoröaö þig við stóra eöa litla bíla?
,,Ég hef átt tvo ameríska bíla og það
var sameiginlegt með þeim að þeir
lágu mjög illa. Þeir voru meö fastan
öxul aö aftan,” segir Sveinn til skýr-
ingar.
„Volkswageninn lá hins vegar alveg
frábærlega vel, enda með sjálfstæða
fjöörun á öllum hjólum. Svo náttúrlega
Benzamir,” segir Sveinn. „Ég er
búinn aö eiga fjóra Benza. Þeir hafa
reynst alveg fordæmalaust góöir,”
segir hann meö áherslu. „Þann síðasta
átti ég í 12 ár og þennan sem ég á núna
er ég búinn aö eiga í 7 ár. Hann er
alveg eins og úr kassanum. Eg skal
leyfa þér aö koma upp í hann á eftir,”
segir Sveinn og þaö er greinilegt aö
þaö verður gaman. Hann er aö öllu
leyti alveg frábær. Einstakur bíll.
Hann hefur ekki veriö þveginn meö
kústi nema einu sinni. Þegar hann er
þveginn þá er hann þveginn meö
þvottabóni, barnasvampi og svoskolað
af honum og þurrkað meö vaskaskinni.
Hann hefur aldrei komið á þvottaplan.
Þvotturinn er alveg ákveðið ferli og
tekur tuttugu mínútur. Ég held aö’
Islendingar kunni ekki að þvo bíla.
Menn fara á þvottaplön og þvo bílana
meö kústum sem em meira eða minna
haröir, meöal annars af asfalti sem
kemur af götunum þegar borgin er að
leysa upp vegina sína meö salti. Þetta
rispar lakkiö á bílum mjög mikið.
Þetta er mjög slæmur hlutur og þvotta-
plön eru ekki þekkt í neinum öðrum
löndum. Þau eru hreinlega skaöleg og
dýr.
Rall sjálfsagður hlutur
Viö víkjum talinu að FlB. Sveinn var
formaður félagsins í fjögur ár, frá ’53
og hefur veriö í ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir þaö félag lengst af.
Sveinn telur FlB hafa mikið gildi. Meö
því að ganga í félagið séu menn orðnir
þátttakendur í alþjóölegri samvinnu
bifreiöafélaga og hafi aögang aö þeirri
þjónustu sem völ sé á fyrir félaga í
klúbbum um allan heim. Hann nefnir
feröaskrifstofu, aögang aö erlendum
bílablöðum, þá fylgist þeir meö skatt-
heimtu á bifreiöaeigendur. — Sátta-
þjónusta sé starfandi meö bifreiöa-
eigendum og verkstæöaeigendum á
vegum þeirra og Bílgreina-
sambandsins. „Ferjan sem kemur í
sumar held ég aö verði til aö gera
Evrópu frekar að einu menningar-
samfélagi. Viö getum þá haft fullt
menningarsamband viö þessar þjóöir
á jafnréttisgrundvelli. Það gerum viö
meö því aö aka til þeirra og skoöa
hvernig er hjá þeim. Láta þá koma
hingaö og skoöa hjá okkur.
Viö erum eina þjóöin í Evrópu sem
er meö svona slæma vegi. Svo slæma
að það er talaö um aö koma meö rall
hingað, sem er mjög sjálfsagöur
hlutur. Það eru þeir menn sem væntan-
leg skemma vegi minnst allra manna,
því þeir geta ekki fariö út fyrir vegi.
Þá eru þeir orönir of seinir og eru
búnir aö tapa. Ég hef nefnilega tekið
þátt í ralli og ég veit þetta,” segir
S veinn til skýringar.
„Heyra ekkert hljóð nema
músíkina og svífa bara
áfram"
Hvaö er skemmtilegast við bfia-
delluna?
„Mesta fullnægingin í akstri er eigin-
lega tvenns konar. Annars vegar aö
fara á afspyrnuvondum vegum uppi á
fjöllum í fyrsta gir og lága drifinu. Að
komast yfir torfærur án þess aö pína
nokkum hlut í góöu veöri. Landið er
ákaflega vont og hart en það er
óskaplega fallegt.
Hins vegar aö aka, kannski á
Benzanum, spila góöa músík og heyra
ekkert hljóö nema músíkina og svífa
bara áfram. Þaö er óskaplega skelfing
mikið gaman. Sakar kannski ekki aö
hraöinn væri eilítiö meiri en 70 km viö
slíkar aðstæöur,” segir Sveinn og hlær.
Hvaöa bíl hefuröu veriö hrifnastur
af?
,,Eg hef alltaf veriö hrifinn af þeim
bíl sem ég hef átt sjálfur og alltaf taliö
mig vera á besta bíl sem fáanlegur var
á hverjum tíma. Mér þótti mjög vænt
um Volkswageninn sem ég átti í 9 ár og
Benzinn sem ég átti á undan þessum.
Hreinn fátæklingabíll. Meö fjórum
sílindrum. Alveg sérstaklega spar-
neytinn. Fór niður í 8,4 lítra á
hundraöið. Svona grútarsál eins og ég
tekur nú eftir þvi,” segir Sveinn og
hlær. Sveinn segir einnig frá Lada
Sport sem hann hafi átt og látið taka
lakkið af, sprauta aftur, sett í nýja
Koni dempara með tvívirkri fjöörun og
Michelin radíaldekk sem hafi lækkaö
eyösluna um tvo lítra á hundraöiö og
niður fyrir þaö sem gef ið hafi verið upp
í bæklingnum með bílnum, „ábyggi-
lega samt ritskoöuðum.” Hann hafi
verið mjög góöur.
Þá er bara eftir aö fá einn rúnt á
Benzinum. Hann er meö sóllúgu í
toppnum, tvöfaldri miöstöö eins og
allir Benzar, einni fyrir ökumann,
annarri fyrir farþega. Tvær tölvur eru
í bílnum, önnur stjórnar innspýtingunni
á sílindrana, hina er hægt aö stilla á
ákveöinn ökuhraöa og hún sér síöan
um aö hann haldist. Af segulbandinu
heyrist klassísk tónlist og viö rennum
um malbikað og malarboriö nágrennið
á Benzinum sem liggur eins og klessa
áveginum.
Með drykkjusjúkling á f ramfæri
Magnús Árni Sigff ússon á Skoda og Benz
„Ég hef alltaf veriö meö bíladellu.
Mamma segir mér aö þegar ég var
þriggja ára þá hafi hún verið aö
keyra meö mig og bent mér út um
gluggann og sagt: „Sjáöu jeppann
Maggi.” Ég svaraði, segir hún:
„Þetta er ekkert jeppi. Þetta er Austin
Gipsy.”
Þetta segir Magnús Arni Sigfússon,
tuttugu og tveggja ára gamall vél-
skólanemi, sem á 21 árs gamlan Benz
sem hann er meö á fornbílatryggingu
og 7 ára gamlan Skoda sem hann ekur
á hversdags.
„Ég byrjaöi á skellinöðru skömmu
fyrirl5ára aldur.”
Tókstu hana þá í gegn áður en þú
fékkstprófiö?
„Já,” segir Magnús og glottir „hún
var alltaf í upptekt ööru hverju. Maöur
þurfti alltaf að vera meö þetta í hönd-
unum. Svo þegar ég varö 17 ára fékk ég
mér torfæruhjól sem líka var löglegt á
götum. Eg tók þátt í keppnum í
motocross á því. Áriö 1979 fékk ég svo
skyndilega Benz-dellu sem yfirbugaði
mótorhjóladelluna á svipstundu.
Annárs vil ég ekki viðurkenna aö ég sé
meö ólæknandi dellu. Núna i vetur
hefur allt fariö í skólann og heimiliö,”
segir Magnús, sem á þriggja mánaöa
dóttur oghefurnýlega stofnaöheimili.
Er ekki dýrt aö eiga svona bíl eins og
Benzinn?
„Eg hef aldrei reiknaö þaö saman
hvaö þaö hefur kostaö en það er
áreiðanlega mikiö. Eg endumýjaöi
hjólabúnaðinn að framan og þaö var
dýrt. Annars var hann í mjög góöu
ásigkomulagi þegar ég keypti hann.
Boddíið var gott en það þurfti aö
lagfæra mekanik og hjólabúnað,
bremsukerfiö og fleira. Ég nota hann
mest til spari. Svo neyöist ég til aöfara
á honum ef Skodinn er bilaður eða í
notkun annars staðar.”
Hefur aldrei séð eftir
tíma eða peningum
Hver er mesta skemmtunin við bíla-
delluna?
„Líklega að spóka sig um á bílnum á
góðviðrisdögum,” segir Magnús. Eg hef
ekki velt því fy rir mér h vað mig myndi
helst langa í af bílum. Það væri gaman
að eiga einhvem eldri. Einhvern frá
áratugunum ’20—’40. Eg heföi
auðvitað ekkert á móti þvi að eiga
Benzfrá þvítímabili.”
Hefur þessi della verið lærdómsrík ?
„Já, ég hef auðvitaö lært mikiö á
þessu. Ég er búinn að taka Benzinn að
meira eða minna leyti á sínar
frumeindir meö dyggilegri aðstoð
fööur míns sem er bifvélavirki. Nei, ég
hef aldrei séö eftir peningum eða tíma í
Benzinn. Eg var einhleypur þegar ég
var mest í þessu og þá var ekki verið
að velta því fyrir sér hvað hlutimir
kostuöu, ef maður haföi efni á þeim. ”
IMokkuð dýrt
hobbí
Þú hefur ekki hugleitt að selja
Benzinn?
„Nei. Eg held að það fáist ekkert út
úr því miðað við það sem í hann hefur
verið lagt. Ef ég myndi reikna kostnað
og vinnu við upptektina á bílnum
myndi ég líklega fara út úr því með
bullandi tapi. Eg hef aö minnsta kosti í
hyggju aö eiga hann á meðan ég get,
svona í minningu um þaö hvemig bílar
voru einu sinni. Eg veit ekki hvaö
Benzinn myndi endast ef ég keyrði
hann bara,” segir Magnús þegar hann
er spuröur. „Ég myndi aö minnsta
kosti ekki endast mjög lengi til að
borga bensínið á hann. Hann er nefni-
lega drykkjusjúkur. Hann er auðvitað
ekki eins traustur og hann var 1962.
Hann myndi að minnsta kosti ekki
endast lengi á möl. Jú, ég hef vissulega
áhuga á að halda áfram með bíla-
áhugamáliö þegar ég er búinn aö
eignast eigið heimili og bílskúr. Hins
vegar er þetta nokkuð dýrt hobbí og
núna veltir maður meira fýrir sér krón-
unum. Ég býst við því að það yrði ekki
nema að ég yrði mjög vel stæður að ég
tæki svona fyrir aftur. Helst vfidi ég
varðveita þennan. Nei ég hef ekki áhuga á
spánýjum kagga. Það hefur læðst að mér
svolítil jeppadella undanfarið ei henni
hefur verið haldiö niðri af fjárhags-
ástæöum og tímaleysL Maður kemst víst
ekki langt á áhuganum einum saman,”
segir Magnús og glottir.
Magnús með bilana sína. Annan notar hann hversdags, hinn tíl spari.
DV-myndBj. Bj.