Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Qupperneq 40
79°90 SENDIBÍLASTÖÐ KÓPAVOGS AUGLÝSINGAR £/\JjLÆ SÍÐUMÚLA33 SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
Símsvari á kvöldin og um helgar RITSTJÓRN OOO 1 1 SÍÐUMÚLA 12—14
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983.
. s
' '
.
I
Geir Hallgrímsson ræddi við Kjartan Jóhannsson og Steingrím Hermannsson i gær á skrifstofu
Matthiasar Á. Mathiesen i Vonarstræti 12. Að viðræðunum loknum hófst þingflokksfundur Sjálfstæðis-
flokksins. DV-mynd GVA.
1 iis
| 1
1 'iilir f in
! 1 , '
visr Efnahagsmál
Steingríms _ _ K ^7 m
ogKjartans fA|ri|t
haldaáfram: Cwflfff f JTf ff
Geir Hallgrímsson mun i dag eiga
sameiginlegan fund með Kjartani
Jóhannssyni, formanni Alþýðu-
flokksins, og Steingrími Hermanns-
syni, formanni Framsóknarflokks,
til frekari viðræðna um myndun
samstjómar þessara flokka. Geir
átti fundi með Kjartani og
Steingrímihvorumí sínu lagi í gær.
Samkvæmt heimildum DV verða í
dag til umræðu tillögur flokkanna í
efnahagsmálum og þær aðgerðir
sem þeir vilja standa að fyrir 1. júní.
Þaö er talið hafa dregiö úr gangi
viðræönanna að Geir hefur ekki enn
lagt fram tillögur Sjálfstæðisflokks-
ins í efnahagsmálum. Formennimir
hafa fram til þessa hist einir og ekki
hefur þótt ástæða til aö skipa
viðræðunefndir flokkanna.
Þingflokkur Sjálfstæöisflokksins
kom saman í gær og var þar sam-
þykkt að halda áfram viðræðum viö
Framsókn og krata. Enn er þó haldið
opnum öðrum möguleikum til
stjómarmyndunar. Geir Hallgríms-
son bíður nú eftir svörum frá
Svavari Gestssyni, formanni Alþýðu-
bandalagsins, um skilyrði flokksins,
einkum í álmáli og herstöövar-
málum. Flokksstjórn Alþýðuflokks
kom saman í gær en engin afstaða
var tekin til þeirra stjómar-
myndunarviðræðna sem nú fara
fram.
-ÓEF.
ársf undur Seðlabankans:
Viðskiptahalli
og skuldasúpa
Dregin var upp dökk mynd af stöðu
þjóðarbúskaps tslendinga og horfun-
um fyrir næsta ár í ræöu Jóhannesar
Norödal seölabankastjóra á 22. árs-
fundi bankans í gær. Þjóðarfram-
leiðsla dróst á síðasta ári saman um
2% og viöskiptakjör rýrnuðu auk þess
um 1,5%. Þjóðartekjurnar rýmuðu
nokkuð meira eða um 2,3%. Helsta
ástæðan fyrir þessu er samdráttur í
fiskafla. Þorskaflinn minnkaði úr 462 í
373 þúsund tonn og loðnuveiðar voru al-
gjörlega bannaðar 1982.
Viðskiptahallinn við útlönd jókst úr
5% af þjóðarframleiðslu á árinu 1981 í
10% á síðastliðnu ári. Meginverðmæti
útflutnings minnkaði um 19% frá árinu
áöur. Þessi samdráttur stafaði af
tvennu fyrst og fremst, 10% lækkun út-
flutningsframleiöslu og 1065 milljón
króna aukningu í birgöum útflutnings-
afurða.
Heildarverðmæti vöruinnflutnings
árið 1982 nam 10.364 milljónum króna.
Innflutningurinn minnkaði að magni
um nálægt 6%. Halli á viðskiptum
þjóðarbúsins viö útlönd nam 3110 millj-
ónum sem jafngildir 10% af verðmæti
þjóðarframleiöslu á árinu.
Erlendar lántökur til langs tíma
námu 3625 milljónum en afborganir af
eldri lánum 1250 milljónum. Skulda-
aukning viö útlönd nema tæpum 20
milljöröum, sem nemur 47,9% af
þjóðarframleiðslu. Greiðslubyrði er-
lendra lána hækkaði úr 16,6% 1981 í
21,4% 1982.
I lok ræðu sinnar ræddi Jóhannes
Nordal nokkuð um efnahagsaðgeröir
sem beitt hefur veriö undanfarin ár og
það sem við blasir, nauðsyn þess að
vinna á verðbólgunni meðal annars
með því að afnema, ,hið vélgenga verö-
bótakerfi launa og verölags,” eins og
hann komst að orði.
JBH
Hótuðu lög-
taki í álverinu
— en skattadeilunni vísað í alþjóðlega gerð
Alusuisse og Isal hafa ákveðið að
vísa í alþjóðlega gerð deilunni við ís-
lenska ríkið um skattgreiðslur álvers-
ins 1976—1980. Fjármálaráðuneytið
hefur hækkaö framleiðslugjald þess-
ara ára og bætt á þaö viðurlögum, og
eru þetta alls 220 milljónir króna. Tæp-
um helmingi var jafnað á móti eldri
skattainneign Isals en fjármálaráðu-
neytiö hafði uppi kröfur um greiðslu á
eftirstöðvunum fyrir 1. maí og hótaði
lögtaki.
Skattadeilan hefur verið eitt þeirra
atriða sem gengið hafa á milli iðnaðar-
ráðherra og Alusuisse í kröfum og til-
boðum um nýja samninga um rekstur
álversins. Hvor aðili beitir fyrir sig
áliti alþjóðlegra endurskoöenda og
stangast álit þeirra á.
HERB
Skutuírúðu
með loftríffli
Unglingar á bíl skutu úr loftriffli í
eldhúsrúðu húss eins viö Rauðagerði í
gærdag. Þeir höfðu ekki náðst í morg-
un.
Böm voru í húsinu þegar þetta gerð-
ist. Þau sögðu foreldrum sínum, þegar
þeir komu heim, aö þau hef öu séö ungl-
inga koma á bíl og skjóta úr loftriffli í
eldhúsrúðuna. Þeir hefðu síðan ekið á
brott.
-JGH
LOKI
Þá vitum við hvað verður
í hádegismat í Seðla-
bankanum.
HVERFASLAGURIHILU
BARNA OG UNGUNGA
Nokkur átök urðu meðal unglinga í
Breiöholti í gærkvöldi í nágrenni við
verslunina Kjöt og Fisk viö Selja-
braut. Að sögn lögreglunnar áttust
þarna við hópar ungUnga úr Selja-
hverfi og unglingar úr Fellahverfi.
Taliö er aö á þriðja hundraö böm og
unglingar hafi tekiö þátt í þessum
átökum. Engin meiðsl urðu svo
kunnugt sé.
Það var um klukkan 20 að lögregl-
unni barst tilkynning um að hópar
unglinga ættu í átökum í Breiöholti.
Var sendur einn lögreglubíll á
staðinn og reyndu lögreglumennimir
að stilla til friðar. Því var ekki vel
tekið og mætti þeim grjótkast og
einnig var kastaö í þá moldarköggl-
um. Var því kallað á liðstyrk og
komu þrír bílar til viöbótar. Tókst þá
að skakka slaginn og dreifa
hópunum.
Ekki verður betur séö en að upp
séu risnar í Breiðholti hverfaerjur
eins og tíökuðust milli vesturbæjar
og austurbæjar hér endur fyrir
töngu. -SbS.
Myndin er tekin er átökunum miiii barna og unglinga i Seljahverfi og Feiiahverfi var að Ijúka og lögregl-
unni hafði tekist að skiija hina stríðandi hópa að. Eins og sjá má tók mikill fjöidi þátt i slagnum, á þriðja
hundrað að sögn sjónarvotta. pV-mynd S.