Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Side 5
DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAl 1983.
5
i
Pöntunarsími 44440
Póstverzlunin Heirnaval, box 39, Kópavogi.
Kvenréttindaf élag íslands:
Fundað með þingmönnum
Reiðstígvél
Kvenréttindafélag Islands boöaði til
hádegisverðarfundar að Hótel Sögu í
síðustu viku. Til fundarins var sérstak-
lega boðið konunum níu sem nýkjömar
eru á Alþingi Islendinga. Fluttu þing-
menn stutt ávörp og svöruðu
fyrirspumum fundargesta.
Rætt var um hugsanlegt samstarf
hópsins í þingsölum svo og samstarf
við kvennasamtök í landinu.
Breytingarnar í þingsölum, sem fylgja
í kjölfar þreföldunar þingmannafjölda
úr röðum kvenna, taldi einn
þingmaðurinn að yrðu í öllu falli „litrík-
ari”. Hingaö til hefði „gráteinótti”
blærinn verið í meirihluta.
Fjölgun kvenna á þingi væri mjög
jákvæð og mikilvægt að sýna í verki
árangur. Einnig aö starf kvennanna á
þingi verði öðrum konum til eftir-
breytni, svo fleiri sækist til starfa á
3 gerðir
verð frá
kr. 565
Fyrirlestur um sam-
band líkama og sálar
Danirnir Marianne Bentzen og
Merete Holm halda fyrirlestur með æf-
ingum um líkamsmeðferð (krops-
terapi) i húsi Rauða kross Isiands,
Nóatúni 21, kl. 20 í kvöld, miðvikudags-
kvöld.
Fyrirlesturinn fjallar um tengsl lík-
ama, tilfinninga og persónuleika.
Gengið er út frá því sem forsendu að
félagslegir og andlegir þættir í lífi fólks
endurspeglist í Iíkama þess.
Fyrirlesaramir vilja auka vitund
fólks um eigin líkama og kenna til þess
ákveðnar æfingar sem jafnframt
leiða til bættrar líkamlegrar og and-
legrar vellíðunar.
Marianne Bentzen og Marete Holm
hafa haldið fyrirlestra og námskeið
víða um lönd, m.a. í Þýskalandi,
Belgíu og Bandaríkjunum.
Fundur um samskipti
EBE og Sovétríkjanna
Félögin Samtök um vestræna sam-
vinnu og Varðberg halda sameiginleg-
an fund í kvöld þar sem tveir fulltrúar
Efnahagsbandalags Evrópu munu
f jalla um samskipti EBE og Sovétríkj-
anna. Gestimir eru þeir Folmer Bang-
Hansen úr utanríkisdeild bandalagsins
og Niels J. Thorgersen, forstjóri
Kaupmannahafnarskrifstofu EBE.
I fréttatilkynningu um fundinn segir
aö umsvif bandalagsins hafi orkað
mjög á stefnu Austur-Evrópuríkjanna
í utanríkis-, viðskipta- og vamar-
málum og mun þaö hafa magnaö
nokkra spennu innan NATO og þá ekki
síður milli E vrópu og Bandarík janna.
Fundurinn er haldinn í hliðarsal
HótelSöguoghefst klukkan 20.30. -BH
þessum vettvangi. Jafnframt að störf
kvennanna verði til þess að innan
stjórnmálaflokkanna verði sjónarmið
kvenna virt og fleiri konur kallaðar til
starfa af flokkunum. Einn þingmaður-
inn hafði orð á því að þó að konum hafi
nú fjölgað um þriðjung á þingi mætti
benda á að fjölga þyrfti konum í fjöl-
miðlastétt. Konum sem hefðu áhuga á
aö koma rétt til skila í f jölmiðlum þeim
málefnum sem konur berjast fyrir á
þingi.
Að leiðrétta launamisrétti
kvenna í þjóðfélaginu gæti meðal
annars verið góöur grundvöllur til
samstarf kvenna á þingi. Þrátt fyrir að
þessir þingmenn kæmu til starfa með
misjöfn pólitísk sjónarmið og úr
ólíkum stjómmálaflokkum, mátti
heyra á málflutningi flestra þing-
mannanna á fundinum að um hugsan-
lega samstööu á breiðum grundvelli
um ýmis málefni gæti verið að ræða á
þingi. Hvatti einn fundargesta hina
nýkjömu þingmenn til að komast í
f jarveitinganefnd og var tekið undir þá
hvatningu af fundargestum.
Nokkur umræða var um hvort
þingmennirnir ættu að nefnast
þingkonur sem heyrst hefur nokkuð í
fjölmiðlum aö undanfömu. Töldu þeir
fundargestir sem til máls tóku, og
þingirienn þeir sem tóku þátt í þeirri
umræðu, að nafngiftin þingkona væri
ekki í samræmi við jafnréttisstefnuna í
þjóðfélaginu. Ef talað væri um þing-
karla og þingkonur, forkarla og for-
konur væri um málspjöll að ræða. öll
værum við sama tegundin — það er
menn. Þingmönnunum níu var óskaö
velfamaðar í starfi í lok fundarins. -ÞG
Á fundi Kvenróttindafólagsins mættu allar konurnar niu sem nýkjörnar eru
á Alþingi íslendinga. Á myndina vantar Kristínu Kvaran, sem var i ræðu-
stóli þegar myndin var tekin. En á myndinni eru Jóhanna Sigurðardóttir,
Kristin Halldórsdóttir, Sigriður Dúna Kristmundsdóttir, Guðrún Helgadótt-
ir, Kolbrún Jónsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir, Salome ÞorkelsdóttOþog
Guðrún Agnarsdóttir. D V-mynd Bj. Bj.
Hvar er vatnið?
DV-mynd E.Ó.
Lækurinn ekki lokaður
— heldurlítið vatn
„Það er ekki hægt að segja að
lækurinn sé lokaður heldur rennur
stopult í hann,” sagði Ámi Gunnars-
son, verkfræðingur hjá Hitaveitu
Reykjavíkur, um það hvort læragjáin
svonefnda væri lokuð.
Ámi sagði að það væri misjafnt eftir
því hvernig rekstri Hitaveitunnar væri
háttað hve mikið frárennslisvatn
streymdiumlækinntilsjávar. -SGV
Ölduselsskóli í kvöld:
FUNDUR UM ÆSKULYÐS-
OG TÓMSTUNDAMÁL
Æskulýðsráð Reykjavíkur boöar til
hverfafundar um æskulýðs- og tóm-
stundamál með íbúum Seljahverfis í
dag, miðvikudag, klukkan 20.00 í öldu-
selsskóla.Áfundinumverðurrætt um
uppbyggingu félagsaöstöðu við Selja-
skóla ásamt bráðabirgðatillögum í
félags- og tómstundastarfi bama og
unglinga í Seljahverfi næsta vetur.
Ræður munu flytja Kolbeinn Páls-
son, formaður Æskulýðsráðs Reykja-
víkur, Bogi Arnar Finnbogason, tals-
maður Foreldrasamtaka Seljaskóla og
Jens Einar Þorsteinsson, talsmaður
Foreldrafélags ölduselsskóla, Omar
Einarsson, framkvæmdastjóri Æsku-
lýösráðs Reykjavíkur, kynnir hug-
myndir borgaryfirvalda um félagsað-
stööu í Seljahverfi og ávörp flytja full-
trúar nemendaráöa Ölduselsskóla og
Seljaskóla. Þá flytur Markús örn
Antonsson, borgarfulltrúi og formaður
Fræðsluráðs Reykjavíkur, ræðu en að
þvíloknuverða almennar umræður.
JBH
HAIMDLÓÐ MEÐ LAUSUM LÓÐUM. Verð fer eftir
þyngd lóða. Handlóðin eru mjög hentug líkams-
ræktartæki fyrir karla og konur á öllum aldri.
NAFN: ~ n
HEIMILI: ■
STAÐUR; PÓSTNR-
L l
HANDLOÐ
í ÖLLUM STÆRÐUM OG ÞYIMGDUM
FYRIR KONUR OG KARLA!
TAKTU AF SKARIÐ OG BYRJAÐU
SKIPULAGÐA LÍKAMSRÆKT í DAG!
Æfingakerfi fylgir hverju handlóðasetti. Æfingunum hefur verið
raðað saman af sérfræðingum á sviði líkams- og heilsuræktar
með það fyrir augum að bæta likamsvöxt þinn, gera þig grennri
og vöðvameiri, fyrir tilstilli nýjustu þjálfunaraðferða. Þú munt
njóta góðs af líkamsþjálfuninni ævilangt og verða hreykin(n) af
vel þjálfuðum og vel byggðum likama þínum.
Sendumér_______kg handlóðasett kr____
+ sendingarkostn.
Vinilhúðuö handlóðasett 1,3 kg, kr. 390,00
Vínilhúðuö handlóðasett 2,0 kg, kr. 470,00
Vínilhúðuð handlóðasett 4,5 kg, kr. 685,00
Verö á handlóðum í lausri þyngd l'er eftir þyngd lóð-
anna.
.0I0IOIO.
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
Sportval
ÍLAUGAVEG1116, VIÐ HLEMMTORG,
SÍMAR 14390 f* 26690