Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Blaðsíða 40
Skyldu innbrenndir litir, verða nýja línan frá i Áiafossiíár? j reyká skammri stundu — sagði Ólafur Þorsteinsson „Ég sat við sjónvarpiö er ég fann megna reykjarstybbu,” sagði Olafur Þorsteinsson framkvæmdastjóri, þar sem við hittum hann í dyrum húss síns að Túngötu 19, ásamt konu sinni á leið- inni að yfirgefa húsið. „En mér datt' ekki í hug að ástandið væri svona alvariegt. Þegar ég leit út var svarta- myrkur vegna kófsins og reykurinn fyllti húsið á skammri stundu. Nú er allt mettað af reykjarstybbu innanhúss, bæði húsgögn og fatnaður, svo illa er líft þar inni. Við vonum bara að ástandiö vari sem allra styst þó reykjarstybba sé alltaf þrálát,” sagði Olafur. emm/SþS Mikill reykur steig upp fri frystihúsi Kefiavíkur hf. þegar stökkvistarf stóð sem hæst í gærkvökfí. Reykinn iagöi yfir mörg íbúöarhús í nágrenn- inu sem gerði það að verkum að i sumum þeirra verður ekki búandi næstudaga. DV-mynd: Loftur. SJökkviliðsmenn úr Kefiavik, Sand- gerði og af Keflavíkurflugvelli, yfir fimmtíu að tölu, hjálpuðust að við að ráða niðurlögum eldsins. D V-mynd: Heiðar Baldursson. SJá einnig myndir á bls. 31. Eldurá Álafossi I þriðja skiptiö á um þremur mánuöum kom upp eldur í verksmiðj- um Álafoss um miöjan dag í gær. Tjón varð ekkimikiö. Eldurinn kviknaði í gömlu Álafoss- verksmiðjunni og kom upp vegna vinnu með logsuðutæki. Voru viðgerö- armenn að gera við ullarþvottavél og hljóp neisti í upp og siðan i forskalaöan útvegg. Þegar slökkviliðið í Reykjavík kom á staðinn var búið að slökkva eldinn að mestu. Gat var þó rifið á vegginn og þaktilöryggis. Allt lið slökkviliðsins f ór á staðinn. -JGH 79090 SEIMDIBÍLASTÖÐ KÓPAVOGS SKEMMUVEGI 50 Símsvari á kvöldin og um helgar 27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33 SAAÁAUGLÝSINGAR SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 AFGREIÐSLA 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 Frjalst, óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ1983. Stórbruni í hraðfrystihúsi Keflavíkur h/f: GIRJRLEGAR SKEMMDIR Rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi varð eldur laus á umbúöalofti hraðfrystihúss Keflavíkur hf. í Keflavík. Magnaðist eldurinn fljótt og stóöu eldtungur upp um þak húss- ins sem veitaðTúngötu, erslökkvilið Keflavíkur kom litlu síöar á vett- vang. Mikinn reyk lagði frá húsinu yfir bæinn, enda norðan strekkingur og sáu menn varla handa sinna skil í næstu húsum við frystihúsið. Sextíu slökkviliðsmenn með níu bifreiðir börðust viö eldinn rúmar fjórar klukkustundir áður en tókst að ráða niðurlögum hans. Voru þeir frá slökkviliði Keflavíkur, Sandgerði, Keflavíkurflugvelli og Brunavömum Suðumesja. I fyrstunni leit út fyrir aö eldurinn ætlaði að ná til frystigeymslunnar, þar sem urrt fimmtán þúsund kassar af frystum fiski voru geymdir, en slökkviliðinu tókst þá að hefta út- breiðslu eldsins svo að öll líkindi em fyrir því að tekist hafi að bjarga þeim verðmætum, sem em tug- milljóna virði. Hins vegar tókst ekki að foröa þakinu yfir vélasalnum, sem féll um níuleytið. Frystivélamar eru lítið skemmdar af eldi en skemmdir vegna vatns á lögnumem talsverðar. Eldsupptök em ókunn en eldurinn kom upp í vélahúsi frystihússins. Skemmdir em gífurlegar á frysti- húsinu og að auki er talið að nokkur íbúöarhús í nágrenni þess séu skemmdafreyk. emm/SþS Húsið fylltist af OVIST UM ATVINNU FJÖLDA FÓLKS NÆSTU MISSERI Ovissa ríkir um atvinnu fjölda fólks næstu mánuðina vegna branans hjá Keflavík hf. Húsnæði frystihúss- ins er gjörónýtt og mun vinnsla þar leggjast niður um ófyrirsjáanlegan tíma. 115 manns voru á launaskrá fyrir- tækisins. Olafur B. Olafsson, fram- kvæmdastjóri og einn af eigendum Keflavíkur hf., sagði að starfsemi systurfyrirtækis í Sandgerði, Miðness hf., yrði aukin og fólkinu. boðin vinna þar. Þorkell Indriðason verkstjóri sagöi í morgun að humarvinnsla fyrirtækisins myndi falla niður. Þar áttu 50—60 unglingar að hefja vinnu um næstu mánaðamót. I morgun var enn mjög óljóst um skemmdir. Starfsmenn vom að kanna afurðir. Við fyrstu athugun virtust þær hafa sloppið nokkuð veL Lítið var farið að kanna skemmdir á vélabúnaði. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.