Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Page 7
DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAl 1983.
7
Neytendur Neytendur Neytendur
— segir Hörður Harðarson, svínabóndi í Laxárdal
„Ég hef oröiö var við þaö, aö tillaga
min hefur verið rangt túlkuð og menn
óttast að hún feli í sér aö viö ættum að
leggja öll okkar máli í hendur Fram-
leiösluráðsins. En það er rangt,” sagöi
Hörður Harðarson, bóndi í Laxárdai
í Gnúpverjahreppi er við höfðum
samband við hann vegna tillöguflutn-
ings hans á aðalfundi Svinaræktar-
félagsins. „En ég tel að það sé bæði til
hagsbóta fyrir neytendur og bændur að
höfð sé stjórn á stækkun búa og komið í
veg fyrir offjölgun. Það tryggir neyt-
endum meðal annars að þeir fái alltaf
nýja vöru en ekki gamla sem hleðst
upp. Þegar off jölgun verður eins og nú
hefur átt sér stað og stóru búin auka
sinn stofn má búast við lækkun svína-
kjötsverðs um tíma. Og þá mun smáu
búunum fækka.”
Tillaga Harðar var á þessa leið:
Aðalfundur Svínaræktarfélags Islands
lýsir áhyggjum sínum vegna fyrir-
sjáanlegrar aukningar í svínakjöts-
framleiðslunni umfram markaösþörf.
Fundurinn felur stjórn félagsins að
leita eftir samstarfi við Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins um aðgerðir til
framleiðslustýringar.
Fundurinn ályktar að eitt megin-
markmið þeirrar stjórnunar verði að
tryggja þaö að það svigrúm sem
skapist til aukinnar framleiðslu á
næstu árum verði nýtt til að byggja
upp fjölskyldubú af hæfilegri stærð.
Fjölgunin verði innan þeirra marka
sem venjulegur landbúnaður er rekinn
ídag.
Og að við getum haft stjórn á
stækkun búa og komiö í veg fyrir
offjölgun.
Svo sem greint er frá hér annars
staðar á síðunni var tillaga Harðar
felld með 9 atkvæðum á móti 8.
Verðlagning í höndum
svínabænda tekist vel
„Eg er ekki hlynntur því í dag að
Framleiðsluráðið ákveði verðlagningu
á svínakjöti,” sagði Hörður. „Eg tel að
svínabændum sjálfum hafi tekist ljóm-
andi vel að stjórna þeim málum. En
ekkert er hægt að alhæfa og ég segi
þetta með þeim fyrirvara að horfi í
mikla offramleiðslu á svínakjöti geti
min skoðun breyst.”
,,En ég vil taka þaö fram að ein
meginforsenda þess aö hægt sé að
lækka verð svínakjöts er sú að skipu-
lega sé unnið að kynbótastarfi. Verður
þá að gera kröfu til þeirra, sem eru i
forystu í Svínaræktarfélagi Islands, að
þeir séu ekki eftirbátar annarra svína-
bænda í því og reyni að styðja við bakið
á ráðunaut sínum. En hann hefurmætt
fádæma skilningsleysi hjá stórum hópi
svínabænda hvaö merkingu á svína-
stofninum snertir. En hún er algjör
forsenda þess að um skipulagt kyn-
bótastarf geti verið að ræöa.
Hvað varðar fé úrKjamfóðursjóði til
svínabænda tel ég að svínabændur hafi
gengið á undan öðrum þar sem féð er
notaö til uppbyggingar í þágu búgrein-
arinnar en fer ekki til einstaklinga,”
sagði Hörður Haröarson, bóndi í
Laxárdal.
-ÞG.
Vegna offramleiðslu svinakjöts að undanförnu má búast við verðlækkun á
næstunni.
sími 28980
Póstsendum 0$%—
Laugavcgi 118
háfell
HÚSBYGGJENDUR - FRAMKVÆMDAMENN
Leígjum út belta- og hjólagröfur,
jarðýtur, vibróvaltara o.fl. Tökiun
aö okkur alla jarðvinnu, gröfum
grunna, útvegum fyllingarefni.
Tilboðs- og tímavinna.
HÁFELL SF.
Bildshöfða 14 — Simi 82616
Tillaga um framleiðslustjórnun og hámarksverð felld hjá svínabændum:
nm á nvart”
ff 1 iiiðgan iii 9111 9 OV9IT
— segir Ámi Möller, f ormaður Svínaræktarfélags íslands
DRAUMAFERÐ
FJÖLSKYLDUNNAR
TIL MALLORKA
27. maí
BÖRNIN FÁ 50% AFSLÁTT
SANTA PONSA: Ein allra vinsælasta bað-
strönd á Mallorka. Jardin del sol — Nýtt og glæsi-
legt íbúðahótel alveg við sjóinn.
PUERTO DE ANDRAITX: Mini folies lúxusvillur í
fjölskylduparadís.
Á skrifstofu okkar erum við með
myndband frá gististöðum okkar.
FERÐASKRIFSTOFAN
Veriö vclkomin og fáiö nánari
upplýsingar um hagstætt verö og kjör.
LAUGAVEGI 66 SÍMI 28633
„í stuttu máli má segja aö í þessari
tillögu hafi falist aö við svínabændur
fælum Framleiðsluráði landbúnaðar-
ins okkar mál, meira og minna,” sagði
Árni Möller, bóndi á Þórustöðum í
Ölfusi og formaöur Svínaræktarfélags
Islands, í viðtali viö blaðamann DV. „I
fyrsta lagi fólst í tillögunni að Fram-
leiösluráöið ákvæði hámarksverð á
okkar afurðum svo og smásöluálagn-
ingu. Og í öðru lagi aö þeir stýrðu
framleiðslunni.”
Aðalfundur Svínaræktarfélags ís-
lands var lialdinn 30. apríl síðastliðinn.
I félaginu eru um 80 svínaræktendur,
en 17 félagsmenn voru mættir á aðal-
fundinum. Einn stjórnarmanna, Hörö-
ur Harðarson, bóndi í Laxárdal, Gnúp-
verjahreppi, flutti á fundinum tillögu
þá sem hér aö framan var efnislega
greint frá. Tillagan var felld meö 9 at-
kvæðum á móti 8.
„Þetta hefur aldrei áöur komiö upp á
fundi hjá okkur og kom reyndar á
óvart,” sagði Árni, formaður félags-
ins.
Á landinu eru fimm svínabú meö eitt
hundrað gyltum og þár yfir. Milli tutt-
ugu og þrjátíu bú eru með tuttugu til
fimmtíu og önnur bú með fimm til tíu
gylltur hvert.
Kom fram í máli Árna Möller að
svínastofninum hefur fjölgað nú um 25
prósent, „og það verður líklega næst á
dagskrá hjá okkur að taka á því máli.”
Um hvort fjölgun stofnins boðaði ekki
verðlækkun á svínakjöti svaraöi hann:
„Þaðmá búast viðþví.”
Staðreynd er að svínakjöt er ekki
niðurgreitt. Verð sem framleiðendur
svínakjöts fá fyrir hvert kíló er um
80—84 krónur, en kílóverð á lambakjöti
um 78—80 krónur. Offjölgun svína get-
ur leitt til verölækkunar eða viö því má
búast, að sögn Árna Möller. En hann
hefur fleiri hugmyndir um hvernig
lækka mætti verö á svínakjöti.
„Ef við fáum að vera í friði meö okk-
ar ræktun þá eru nokkrir möguleikar á
verðlækkun, til dæmis ef kjarnfóöur-
skatti væri sleppt. Og líka, ef við fengj-
um að hafa sömu dýr og eru víöast er-
lendis, þaö er svínastofn sem vex hratt
og notar minna fóöur. Við hér á landi
erum með svínastofn sem bæði þarf
mikið fóður og vex hægt. Meö aukinni
hagræðingu í rekstri svínabúa væri
einnig hægt að lækka kjötverðið til
muna.”
Aðspuröur um fjárstyrki svína-
bænda úr Kjarnfóðursjóði, sagði Árni
Möller aö fé, sem svínabændum hafi
verið veitt úr sjóðnum, hafi verið notað
til sameiginlegra verkefna fyrir alla
bændastéttina til rannsóknastarfa aö
Keldnaholti.
—ÞG
VINDSKEIÐAR
INNI- OG UTI
SKRAUTLISTAR
PÓSTSENDUM
Mdlara^^hudin
VESTURGÖTU 21 - SÍMI21600
„Hef orðið var við rang-
túlkun á tillögunni”
EKTA.. fPÖLSK
HONNUN