Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Page 15
DV. MIÐVIKUDAGUK18. MAI1983.
Óvinafagnað
ur tóf uvina
—álygar, rógur og níð
Ekki er nema lofsyert aö taka
svari tófunnar, sé veriö að taka svari
.lítilmagnans. Hitt getur ómögulega
blessast, aö þykjast tala í nafni
mannúöar og í nafni vísinda og nátt-
úruverndar, en ljúga upp á bæöi
menn og málleysingja eins herfilega
eins og titlaður forseti „Hins ís-
lenzka tófuvinafélags”, Siguröur
Hjartarson, í DV 28. apríl. Er illa
unnið í góöum tilgangi aö skrifa eins
og þar.
Fjarstæður og fíflska Siguröar
hafa engin áhrif á þá sem þekkja til,
en villa hrapallega um fyrir þeim
sem ekkert þekkja, en kunna aö
freistast til aö trúa. Ekki þarf Sigurð
Hjartarson til, ekki einu sinni Pál
Hersteinsson, til aö segja okkur
bændum hvort tófur valda tjóni eða
ekki.
Sannleikurinn er nefnilega sá og
mun löngum hafa verið, aö næsta fá-
ar tófur drepa sauöfé. Eitthvaö er,
eöa öllu heldur var, misjafnt hve al-
gengt var aö hitta dýrbít á greni.
Stundum á þriöja hverju, stundum á
sjötta hverju, jafnvel sjaldnar. Ef
tófa beit í alvöru, valdi hún ekki af
verri endanum. Tófur gefa öörum
„neytendum” alls ekkert eftir, held-
ur fá sér væn lömb og þung um
grenjatímann, klippa þau í tvennt og
færa heim í viðráðanlegum pörtum.
Skárri er þaö nú tófuvinurinn, sem
skrökvar upp á tæfur að þær éti
„sjúkt horkjöt”.
Allur fjöldinn lifir á fuglum, ekki
hvaö síst rjúpum, eggjum og ungum.
Þar sem ég þekki best til var algeng-
ara aö tófur ynnu tjón í æðarvarpi en
á sauðfé. Og þaö var oft og einatt
ekkert smátjón. Þetta hefur komið
afar skýrt í ljós á seinni árum.
Sannleikurirn er nefnilega sá, aö tóf-
um hraðfækkaði þegar kíkisrifflar
komu til sögu. Má til sanns vegar
færa, aö hægt sé aö vinna hverja tófu
í sumum sýslum, ef mikið kapp er á
þaölagt.
Samtímis skeöi þaö aö æöarvarp
|óx til mikilla muna og færðist upp á
land. Sá peningaskaöi sem tófur
valda bændum þar sem ég þekki til,
er mestur gagnvart æöarvarpinu.
Þar eru þær ekki einar um, heldur
etja kappi viö hrafna, minka, svart-
bak og erni. Samt munar drjúgt um
bítina, ef og þegar þeir láta til sín
taka. Ég hefi komið á útleitt bítsgren
og taliö þar fætur af 15 vorlömbum.
Þetta er dagsatt þó það sé hvorki
bókaö hjá Páli Hersteinssyni eöa Sig-
uröi Hjartarsyni.
Kjallarinn
JátvarðurJökull
Júh'usson
Bændur og sveitarstjórnir hygg ég
aö muni fara sínu fram og reyna aö
halda niöri hverskonar vargi, hvað
svo sem einhverjir kalla þjóöar-
skömm. Þeir læra sjálfir af
reynslunni og fara nokkuö nærri um
hvers þarf og fara aö ég ætla fæstir
langt frá hinum æskilega meöalvegi.
Sigurður „forseti HÍT” álasar
Dýraverndunarfélaginu fyrir aö
hafa ekki „neitt viö það að athuga að
bændur veiddu yrölinga upp úr
grenjum meö egndum önglum eöa
beinbrjóti yrölinga sér til skemmtun-
ar, til að kalla foreldrana heim aö
greni í dauöafæri byssukjafta”. Ég
tel alveg mega ná yrðlingum á öngul,
sé þaö ekki gert ómannúðlega, þ.e.
aö yfirgefa öngulinn. Hefi sjálfur
gert þetta og tekist vel, en klippa
þarf öngulinn í sundur vegna agn-
haldsins. Eg forsvara þær grenja-
skyttur sem ég hefi þekkt, lífs og
liðnar, aö þær beinbrutu ekki yröl-
inga sér til skemmtunar né kvöldu til
aö kalla tófur heim. Sjálfur hefi ég
látið yrðling kalla á tófu fyrir grenja-
skyttu. Maður lætur litla flóniö liggja
upp í loft og blæs á trýnið. Aðferðin
gagnvart tófunni er vitanlega
grimmileg, en yrölingunum er ekk-
ert mein gert líkamlega. Frá því
sjónarmiði væri engu betra aö spila
hljóöritaö yrölingsvæl.
Annaö mál er þaö, aö varla er því
bót mælandi aö elta uppi tófur á vél-
sleðum. Einhvers staöar veröur aö
setja mörkin, einhvers staðar veröa
vondir aö (fá aö) vera.
Oþarfi er fyrir bændur og aöra
veiðimenn að láta „forseta HlT”
gefa tóninn og leiða umræöurnar.
Þeir eiga að endurskoða þetta eins
og margt annaö. Þaö hlýtur aö vera
fásinna að drepa yrðlinga á vorin í
stað þess aö ala upp loðdýr. I eyöi-
byggðum viö fuglabjörg, sem hætt er
aö nytja, ætti líklega enga tófu aö
veiða nema sem loðdýr á þeim tíma
sem hárafariö er best og skinnin dýr-
mæt söluvara. Um þetta yröi aö setja
reglur í samræmi við aðstæður,
eignaumráö og hverskonar eölileg
viöhorf.
Alþingi, sem „forseti HlT” kallar
„tímaskekkjuna viö Austurvöll”,
getur svarað fyrir sig og eins fyrir
veiöistjóra, sem hann ræöst á af
þjösnaskap. Hlutverk veiöistjóra
varöar fleiri varga en tófur. Athuga
mætti um hvort stööur hlunninda-
ráöunauts og veiðistjóra eiga aö vera
eins aöskildar eins og þær eru nú.
Játvarður Jökull Júlíusson
bóndi.
15
J Teiknistofa — meðeigandi i
í Teiknistofa óskar eftir röskum meöeiganda. Upplýsingar i ★
J síma 11820 ákvöldin. J
★ ★
Frá Menntamála-
ráðuneytinu
Lausar eru til umsóknar nokkrar kennarastööur viö Hjúkr-
unarskóla íslands. Um er að ræða bæöi bóklega og verklega
kennslu.
Umsóknir skal senda til menntamálaráöuneytisins fyrir 5.
júní nk. ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ,
17. inai 1983.
Útboð
Hreppsnefnd Hvammstangahrepps óskar eftir tilboðum í
annan hluta fyrsta áfanga viðbyggingar viö Grunnskóla
Hvammstanga. Verkiö felur í sér: uppsteypu á ca 3200 rúm-
metra húsi ofan botnplötu samkvæmt teikningum og verklýs-
ingu Fjarhitunar hf., Teiknistofunnar Laugavegi 42 og Raf-
teikningar hf. Gert er ráö fyrir að framkvæmdir hefjist 10.
júní nk. og veröi lokið 1. okt. 1983. Utboðsgögn liggja frammi
og veröa afhent gegn 4000 kr. skilatryggingu á skrifstofu
Hvammstangahrepps og verkfræöistofu Fjarhitunar hf.,
Borgartúni 17 Rvk.
Tilboðum skal skila á sömu staöi fyrir kl. 11.00 miövikudaginn
1. júní nk. en þá verða tilboö opnuö aö viöstöddum bjóöendum.
SVEITARSTJÖRIHVAMMSTANGAHREPPS.
TILSÖW
NOJAÐIR
Vantar þig notaðan bíl r a
góðum kjörum? Veró kr.
Dodge Aspen árg. 1976, 90.000.
Plymouth Duster árg. 1975, 65.000.
Simca 1100 árg. 1977, 35.000.
Wagoneer árg. 1974, 110.000.
Fíat 125P árg. 1979, 65.000.
Fíat 125P árg. 1978, 45.000
Lada árg. 1977 45.000.
Chevroiet Nova árg. 1974, 60.000.
Simca 1508 árg. 1976, 45.000.
Escort árg. 1974, 25.000.
Bílarnir eru til sýnis og sölu á staðnum.
Opið laugardaga
kl. 10-18.
notaöir bííar
EGILL ágóöum kjörum
VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, s. 77200 og 77202