Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Síða 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAI1983.
Hilmar Vigfússon sendibifreiöarstjóri:
Eg treysti á aö þaö verði KR-ingar sem
veröa Islandsmeistarar í ár.
Bönkum lokað of snemma
Sverrir Kristjánsson, vinnur í ■
Gutenberg: Ég er hættur að fylgjast'
með þessu en ég veðja nú á Valsmenn í
þetta sinn.
Sigurður Þorsteinsson leigubifreiöar-
stjóri: Ég vona að það verði Valur en
ætli það verði ekki Víkingur eins og
undanfarin tvö ár.
Birna Gunnarsdóttir, setjari í
Prentsmiðjunni Hilmi: Það verður
auðvitaðVíkingur.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
0536-9460 skrifar:
Ég hef lengi ætlað að koma áleiöis
kvörtun í lesendadálkinn og læt nú
verða af því. Ég vinn skrifstofuvinnu
á miili 8 og 5 og á bágt með að
komast frá á vinnutíma og hef auk
þess ekki yfir bifreið að ráða. Oft og
einatt kemur fyrir aá ég get ekki
leyst launaávísun mína út fyrr en
nokkrum dögum eftir útborgunardag
vegnaþess að öllum bönkumerlokað
stundvíslega klukkan fjögur — alla
daga nema fimmtudaga. Einatt
kemur fyrir að ég næ ekki að borga
mikilvæga reikninga á réttum tíma
vegna lokunartima bankanna.
Mér er ómögulegt að skilja hvers
vegna iokunartími banka þarf að
vera samræmdur. Er ekki hægt að
láta hvert útibú vera opiö til sex
fjórðu hverja viku. Otibúin gætu
skipst á, viðskiptavinum til hags-
bóta, og auk þess fengju bankamenn
nokkra yfirvinnu en kunnugir segja
mér að þeim veitti ekki af þeirri bú-
bót sem yfirvinnutekjur eru.
Lesendur
Sigurður Valgeirsson
Spurningin
Hvaða félag verður
íslandsmeistari í
knattspyrnu í ár?
Magnús Ólafsson, útlitshönnuöur meö
meiru: Það yrði örugglega FH ef það
væri í 1. deiid, en víst að svo er ekki, þá
verður það annaöhvort Keflavík eða
Akranes.
Eiríkur Jónsson safnvörður: Vona að
það verði Vestmannaeyingar. Þeir
hafa alltaf spilað skemmtilega knatt-
spyrnu í gegnum árin og það er alltaf
gaman þegar liö utan Reykjavíkur
verða meistarar.
Bowie kemur
að vísu ekki
—en það er engin ástæða til að kvarta
Bréfritari telur Siouxsie Sioux bæta
upp vöntun á Bowie að einhverju
ieyti.
„Rokkari” hringdi:
Undanfarna daga hafa ýmsir tón-
listaráhugamenn farið hamförum á
lesendasíðum blaðanna vegna kvik-
sagna um að David Bowie væri á
leiðinni hingað til lands í þeim
erindagerðum að halda hér tónleika.
Sannast sagna varö ég ekki hissa
er ég las í DV að ekkert yröi af þessu.
Ég hef séð tónleika með Bowie
erlendis, fyrir 5—6 árum, og sá
hvílíkan búnað hann var með. Auk
þess sem hann var með fullkomnustu
græjur sem völ er á og stærsta ljósa-
sjó sem ég hef séð var meðal
búnaðar hans, mikill krani sem
Bowie karlinn sveiflaðist í yfir
höfðum áhorfenda þegar vel lá á
honum.
Hvemig gat nokkrum lifandi
manni dottið í hug, í fyrsta lagi, að
íslenskir aðilar gætu brúað fjár-
magnskostnaðinn og í öðru lagi að
hægt yrði að setja græjurnar hans
upp í höllinni?
Mér þykir leitt, sem aödáandi
Bowie, að hann kemur ekki en mér
fannst menn vera ansi bjartsýnir!
Ég vil nota tækifærið og minna tón-
listaráhugamenn á að við fáum glað-
ning erlendis frá í sumar. Hin frá-
bæra söngkona Siouxie kemur
hingað með hljómsveit sína, The
Banshees. Hvet ég menn til að kynna
sér tónlist hennar og þá einkum
plötuna Ju Ju og The Scream því hún
stendur ekki langt að baki Bowie
hvað gæði snertir.
Svo má líka alltaf hafa gaman af
Grace Jones sem hingað kemur líka í
sumar. Sérstaklega ef gítaristinn
Barry Reynolds verður með.
Bowie kemur ekki en það er engin
ástæða til að kvarta. Stelpurnar tvær
sjá fyrir því.