Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Qupperneq 19
DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAI1983.
19
sögur um ógnvekjandi örlög drullu-
sokka sem móöguöu hann. Þvert á
móti brá ekki fyrir ööru en vinsemd í
broshýru, dökku augunum (sem raun-
ar eru eru blá). Haföi ekki vottað fyrir
öðru allt síðan áframhaldandi „svi-
viröingar” mínar og athugasemdir um
Byron urðu mér höfuölausn. Mér hlaut
aö vera óhætt að nálgast dulræn við-
horf hans á ný, án þess að hann fengi
einhverjar óheppilegar hugdettur.
„Segöu mér dálítið meira um dulúöina
í myndum þínum,” sagöi ég hlutleysis-
lega.
„Ja, ég er til dæmis algjörlega viss
um aö vampýrur — blóðsugur — eru
til. Maöur þarf ekki annaö en aö lesa
réttarskýrslur til þess aö sannfærast
um þaö. Ég veit aö vampýrur eru til.
Sumar skýrslurnar eru mjög nýleg-
ar..
Var þaö ekki eiginlega glott fremur
en bros sem fylgdi í lok þessarar yfir-
lýsingar? Hann sagðist hvorki trúa né
halda, heldur haföi brugöiö fyrir þessu
„ég veit”. Þetta gat veriö ljótt mól.
Ekki var hann dauöur, svo tæplega var
hér um fórnarlamb aö ræöa. Hvernig
vissi hann þetta þá? Hann skyldi þó
aldrei vera...? Þar að auki sýndi
hann i Listmunahúsinu og hann Knút-
ur Bruun gæti hæglega verið foringi
blóösuganna ekki síöur en hver annar;
dökkur yfirlitum og ekkert sérlega
hrifinn af blaöamönnum! — Nú voru
góð róö dýr og þaö versta var aö mér
hugkvæmdist ekkert.
Getur listamaðurinn framkall-
aö atburðarás?
„Og, alveg eins og fortíðin getur
kastað skugga sínum yfir okkur, þá
getur framtíöin gert þaö líka,” hélt
Flóki ófram hinn rólegasti. „ Það var
austurrískur rithöfundur sem hét
Strobel. Þegar hann dó voru vinir hans
í því að líta yfir það sem hann lét eftir
sig. Meðal annars voru þama heildar-
verkin hans á hillu. Þegar þeir taka út
einstök bindi, þá detta út blaðaúrklipp-
ur. .____—
Þeir bera blaðaúrklippumar saman
viö sögurnar hans og halda fyrst aö
þama hafi hann fengið innblástur
sinn; sina inspírasjón. Þaö er aö segja,
þeir halda það þar til þeir lita á dag-
setningamar. Þá sjá þeir nefnilega aö
sögumar eru skrifaöar jafiivel mörg-
um ámm áöur en þessir atburöir áttu
sér stað í raun og veru.
En nú kemur þaö magiska inn i
þetta. Getur listamaöurinn framkallaö
atburðarás meö verkum sinum? Ef
svo, nú þá eru framtíöarsöguhöfundar
hættulegustu menn veraldarsögunnar.
Þaö er aö segja þeir sem skrif a um tor-
timingu mannkyns og veraldar.”
Eg heföi mátt vita aö mér legöist
eitthvaö til. Flóki hafði bent mér á
vamarvopn. I öryggisskyni samdi ég
sögu. Hún er í hnotskurn svona: Onafn-
greindur listamaöur, sem er i rauninni
blóösuga — göldrótt blóðsuga — velur
sér saklausan, hreinskilinn og vel inn-
rættan blaöamann að fórnarlambi. En
blaðamaðurinn sleppur vegna ein-
stakrar fyrirhyggju sinnar.
Sönn saga um galdra?
„Og svo get ég nú raunar sagt þér
eina sögu um galdra; sanna sögu,”
sagði Flóki íbygginn. „Menntaskóla-
kennari í Kaupmannahöfn var farinn
að halda viö eiginkonu samkennara
sins. Sá kokkálaði verður afskaplega
reíöur og ókveöur aö hefna sin. Eigin-
konan var farin frá honum og flutt til
elskhuga síns, sem var leiöindagaur,
enda stærðfræðingur. Jæja, eiginmaö-
urínn hefur viö alla þá tilburöi, sem
nauðsynlegir eru við svartagaldur;
hafði meöal annars oröiö sér úti um
svinshjarta sem hann stakk i gegnum.
Á sama augnabliki og hnifurínn sker
hjartað ætlar þessi stærðfræðingur að
ganga niður eftir breiötröppum i forsal
skólans, þar sem hann kenndi. Honum
veröur fótaskortur á efsta þrepinu,
rennur niður allar tröppumar, marg-
brýtur sig á leiöinni, fer út í gegnum
aðalhurðina, sem er úr gleri, skerst á
slagæðum beggja úlnliöa og annarrí
hálsslagæðinni.
Það sem bjargar mannfýlunni er það
að af algjörri tilviljun er þarna stadd-
ur hópur hjúkrunarkvenna og lækna, í
heimsókn i þessum menntaskóla.
Þannig var rokið til, manninum veitt
neyðarhjálp, og honum komið á spít-
ala. Þar lá hann í lengri tima og ég
gleymdi aö segja að hann skarst líka
það illilega á vissum líkamshluta að
hann var ekki lengur fær um að sinna
þessarikonu.”
„Það sleppur enginn frá
mér "
„Aöra sögu get ég sagt þér. Hún er
ekki um galdra, heldur um berdreymi,
en hún er sönn rétt eíns og fyrri sagan:
Konu dreymir aö risastórt, svart flykki
með klumbufætur, alsetta göddum,
er aö elta eiginmann hennar eftir
ákveöinni götu í Reykjavik. Þessi ægi-
lega vera neglir manninn niður á hæl-
unum; stingur þessum göddum í hæla
hans þannig aö maöurínn fellur fram
fyrir sig. I angist sinni biöur konan tvo,
henni ókunnuga, unga menn, sem
þama voru nærstaddir, um hjálp.
Þá vindur þetta voöalega skikkelsi
sér aö konunni og segir viö hana: „Það
sleppur enginn frá mér.” Ungu menn-
irnir reyna þó að blanda sér I leikinn en
veran sparkar þá til þeirra beggja eöa
slær þannig að þeir kastast til hliðar,
og treður eiginmann konunnar fótum.
Mjög skömmu síöar datt eiginmað-
urinn niöur á þessari sömu götu; fékk
einhvers konar slag. Hann var fluttur
á spítala. Þaö tókst aö ná til eiginkon-
unnar sem gat því verið hjá manni sín-
um síðustu mínúturnar sem hann liföl
Á meöan hún sat hjá honum haföi hún
heyrt í sjúkrabil einhvers staðar i
fjarska. Þegarallteryfirstaðiögengur
hún út á gang og í þeirri svipan er kom-
ið meö tvo unga menn á sjúkrabörum.
Hún þekkti andlit aöstoðarmanna
sinna úr drauminum. Þeir höföu lent i
bílslysiá þessari sömu götu.”
Ja, hann Flóki. Eg ætla sko ekki al-
deilis að gleyma að fara með bænirnar
mínar á næstunni, svo mikið er víst.
-FG.
Prentari óskast
Oskum að ráða prentara í smáverkefnaprentun.
Uppl. gefur Ölafur Brynjólfsson.
HILMIRH/F
SÍÐUMÚLA 12.
Breyting á opnunartíma
skrifstofu FÍI og ÚI
Frá og með 15. maí nk. og til 5. september veröa skrifstofur
Félags íslenskra iðnrekenda og Utflutningsmiöstöövar
iðnaðarins opnar frá mánudegi til föstudags, kl. 8.00 til kl.
16.00.
RAÐHÚS TIL LEIGU
í SEL JAHVERFI
Húsið, sem er fullgrágengið, er með 5 svefnherbergjum, stofu,
borðstofu og sjónvarpsherbergi. Leigt frá 1. júlí, leigutími
minnst eitt ár. Tilboð merkt „Raðhús 19” sendist
auglýsingadeild blaösins fyrir þriðjudaginn 24. maí nk.
Aðalfundur
Samlags skreiðarframleiðenda
verður haldinn föstudaginn 3. júní nk. og hefst kl. 10.00 fyrir
hádegi. Fundarstaður Átthagasalur Hótel Sögu.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
STJÓRN SAMLAGS
SKREIÐARFRAMLEIÐ
ENDA.
íJOfJÍXJWfSÖSStSÖÍJÖSXXSfSWSJÍJíX'
Sumarbústaður
Til sölu vandaöur 40 ferm sumarbústaður í landi Vatnsenda.
Einn hektari lands, girt.
Stendur á fögrum útsýnisstað og ekki í þyrpingu annarra bú-
staða. Stór verönd á þrjá vegu.
Selst með innbúi sem er nýlegt og gott.
Verökr. 400.000,00.
Tæki gjarnan nýlegan bíl upp í kaupin, ef um semst.
Hafiðsamband viðauglþj. DV ísíma 27022 eftirkl. 12. H-903.
Nauðungaruppboð
verður á neðangreindum eignum Helluprents hf. fimmtudaginn 26.
mai nk. að kröfu Hafsteins Sigurðssonar hrl. og innheimtumanns rikis-
sjóðs og hefst kl. 14.00 aö aösetri Helluprents hf. viö Suðurlandsveg
Hellu. Eignirnar eru tvær prentvélar af geröinni Heidelberg, skurö-
hnífur, teg. Adast, setjaravél, teg. Monotype, Ijósmyndatæki frá
Optima, teg. Duplomat.: C 9 Compucrapic Compuedit writer 7700
tölvusetjari Rectoplan Duplomat plötukassi og Adast Dominant 714
offsetprentvél.
Sýslumaður Rangárvallasýslu.
AÐALFUNDUR S.Í.F.
Aðalfundur Sölusambands íslenzkra fiskframleiöenda fyrir
árið 1982 verður haldinn að Hótel Sögu 2. júní nk. og hefst kl. 10
f.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum
Lagabreytingar.
STJÓRN SÖLUSAMBANDS ÍSLENSKRA FISKFRAMLEIÐ-
ENDA.
tækniskóli
íslands
Umsóknarfrestur um skólavist 1983/84 rennur út
31. maí nk.
Eftir því sem viö á ganga IÐNSVEINAR fyrir um inngöngu í
frumgreinadeild, sem starfrækt er í Reykjavík, á Akureyri og
á Isafirði.
Upplýsingar um allar námsbrautir daglega kl. 8.30 til 15.30 á
skrifstofu Tækniskóla Islands
Höfðabakka 9,110 Reykjavík.
REKTOR