Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Qupperneq 37
DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAI1983.
37
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
Sofffa
Lóren:
Tekst: KURT KRtSHANSEN
Soffía er hrædd við að ræningjar geri henni grikk og segir að iitt só i efni hjá
þeim ríku og frægu.
Kardemommubær
versnandi fer
Lóren nokkur Soffía sagöi nýlega viö
fréttamenn aö heimurinn væri farinn
aö leika þá ríku og frægu alvarlega
grátt.
Þetta sagði hún eftir aö hafa ráöiö
öfluga verði til að gæta strákanna
sinna, Edoardo, 10 ára, og Carlo, 14
ára. Þaö gerði hún þegar skólasystur
þeirra íGenóvaíSvissvarrænt.
Ræningjarnir sáu sér ekki fært aö
skila stúlkunni fyrr en foreldrarnir
höföu pungað út lausnargjaldi að
upphæð um 21 milljónkróna.
Við vonum að Jesperar, Kasperar og
Jónatanar veröi ekki á ferðinni hjá
Soffiu, þannig að hún þurfi ekki aö hafa
áhyggjur yfir því aö heimurinn fari
versnandi.
ENGINNKULDI
AÐ VERA GIFTFROST
Sjónvarpsmaðurinn heimsfrægi, David Frost, kvæntist fyrir stuttu. Og sú
lukkulega heitir heitir Carina og er dóttir hertogans af Norfolk en sú ætt ku
hafa veriö í „fínna” lagi í gegnum aldirnar.
Frost skildi viö konu sína og fyrrum ekkju Peters Sellers, Lynn Frederick, á
síöasta ári .aðeins sautján mánuðum eftir aö þau giftu sig.
Og vegna hjónabandsins meö Lynn gat brúðkaup þeirra Carina ekki fariö
fram í kaþólskri kirkju en „Norfolk-f jölskyldan” er kaþólsk.
Þau Frost og Carina redduðu þessu í snarheitum. Fóru bara til fógeta í
Chelsea í London og sá pússaði þau saman á stundinni.
Þaö fylgir sögunni aö hertoginn, hann pabbi, hafi bara ekkert haft á móti
ráðahag dótturinnar þó þaö hljóti jú aö vera kuldi aö gifta dóttur sína herra
Frost.
Færeyingar f jalla
um „græna kallinn”
Barátta Auönu Haddar Jónatans-
dóttur, níu ára stálkunnar úr vestur-
bænum, fyrir lengri tima til handa
græna karlinum á umferðarljósum
hefur vakið athygli erlendis.
Viö rákumst á þessa klausu í
færeysku blaöi þar sem segir frá
„græna karlinum” og umræðum um
hann.
„Nú hevur Ayðna so fingiö
ferðslunevndin at taka máliö til
viðgerar,” segir meðal annars í
blaðinu.
Og enn minnum viö á aö nærgætni
og varfærni er þörf við gangbrautir.
Aldrei er of varlega fariö. Um leið
þökkum viö Auðnu Hödd fyrir
hennar f ramlag til þessara mála.
-JGH
Glatt igrillinu hjá Eika. Með honum 6 myndinni eru tveir af nokkrum grillmeisturum hans, Kristín Péturs-
dóttir itH hægrii og Guðrún Gunnarsdóttir. Okkur i Sviðsljósinu finnst nú engin furða þótt kappinn brosi
innan um þessa ,,djúsí"meistara og steikur auðvitað. Ernema von að kúnnarnir fái vatn ímunninn?
DV-mynd: Einar Óiason.
„Boggamir” fá góðar
rallferðir hjá Eika
Það vakti athygli fyrir stuttu
þegar haldið var eitt allsherjar Eika-
grillrall þar sem flestir af fremstu
rallköppum þjóðarinnar tóku þátt.
Eikagrillrall er nokkuð merkilegt
rallnafn og að vissu leyti svolítið
óþjált í munni. En hvar skyldi Eika-
grill vera og um hvers konar grill er
eiginlega að ræða?
Eikagrill er við Gnoðarvog 44—46
og er til húsa þar sem Brautargrill
var áður. Og sá sem sér um rekstur-
inn heitir Eiríkur Friðriksson,
kokkurmeð meiru.
Hann lærði á Sögu og nú eru um
þrjú ár síðan hann útskrifaðist
þaðan. Þannig er ham; kannski ekki
„nýbakaður” í faginu en „ferskur”
er hann auðvitað.
„Það var 1. apríl sem ég tók hér
viö staðnum. Ég býð upp á hamborg-
ara, kjúklinga, djúpsteiktan fisk og
fleira. Og nýlega opnaði ég ísbúð hér
við hliðina,” sagði Eiki þegar við
ræddum við hann í hádeginu fyrir
stuttu.
Og við megum til með að skjóta því
hér inn í lokin að hafi Eikagrillrall
verið svolítið óþjált í munni er ekki
hið sama að segja um hamborgar-
ana sem fara góðar rallferöir á
grillinu hjá honum. Þeir fara sko vel
í munni eftir allt rallið. -JGH
A uðna Hödd fyrir framan götuljósin við Meiabúðina. Barátta hennar hefur farið viða og vakið athygli.
' DV-mynd: GVA