Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Blaðsíða 9
DV.FÖSTUDAGUR27. MAl 1983.
Indlra Gandhl heimsakir flmm
Evrópulönd i næsta mánuði.
IndiraGandhi
til Skandinavíu
Indira Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, leggur þann 8. júní upp i tólf
daga langa ferð um Evrópulönd.
Fyrsta landið, sem hún heimsækir í
ferðinni, verður Júgóslavía þar sem
hún tekur þátt í ráðstefnu á vegum
Sameinuðu þjóöanna um verslun og
þróun.
Þaðan fer Indira Gandhi til
Finnlands, Danmerkur, Noregs og
Austurríkis.
Nígería:
Slær lán
íLondon
Nígeríustjóm hefur farið fram á það
við hóp enskra banka að þeir veiti
landinu lán til endurfjármögnunar til
þriggja ára, en bankarnir höfðu áöur
lagt til að lániö yrði til 18 mánaða.
Nígería óskar ennfremur eftir því að
engar afborganir verði af láninu fyrsta
árið,en þess í stað muni landið borga
eitt til eitt og hálft prósent í vexti
umfram það sem gjaldgengt er á
lánum sem þessum.
Taiið er að bankamir muni fara að
óskum Nígeríustjómar.
Bandaríkin:
Kaupa
sovéska
flugtækni
Það kann aö hljóma ótrúlega að
Bandaríkamenn kaupi tæknikunnáttu í
flugvélagerð frá Sovétríkjunum. Engu
að síður er þetta satt því að nýlega
gerði bandarískt fyrirtæki samning við
Sovétríkin um framleiðsluréttinn á
hlutum í sovéska þotu af gerðinni Jak
40. Þotan er þriggja hreyfla og er ætluð
til styttri vegalengda. Hugsanlegt er
að bandariska strandgæslan kaupi
þotuna til strandgæsluflugs.
Flugvélaiðnaðurinn er eitt þeirra
sviða þar sem Sovétmenn hafa náð
góöum árangri, önnur eru logsuðu-
tækni, framleiðsla lasertækja og
þungavinnuvéla. Hins vegar em þeir á
eftir meö landbúnaðinn, pappírsiðnað
og rafmagnsiðnað.
Yak 40 — Þotan sem Bandaríkjamenn
hafa áhuga á.
MISSAN
Við einir bjóðum
verðbólgunni og gengis-
fellingum byrginn
Við bjóðum þér:
NISSAIVISTANZA luxus fjölskyldubíl á gamla
verðinu (Gengi 24.5.'83) eins og engin gengisfell-
inghafi orðið.
Býður nokkur betur?
Við bjóðum þér:
NISSAN CABSTAR vöru-eða sendibíl á grind
á gamla verðinu (Gengi 24.5. ’83) eins og engin
gengisfelling hafi orðið.
Býður nokkur betur?
Við bjóðum þér:
Alla NISSAN CHERRY bíla og
Alla NISSAN SUNNY bíla
sem voru bankaborgaðir fyrir 24.5. ’83
Býður nokkur betur?
Nú er að hrökkva eða stökkva
fyrir þá sem ekki sáu við síðustu gengisfellingu.
VIÐ BJOÐUM BETUR
INGVAR HELGASON HF ■ Sími 33560
SÝNINGARSALURINN / RAUÐAGERÐI
gl NISSAN