Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Page 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 27. MAl 1983. Spurningin Hefurðu smakkað karfa? Asgeir Elnarsson sölumaöur: Já, bann er ágætur. Það eru þó orðin mörg ár síðan ég smakkaði hann. Hörður Oskarsson bílstjóri: Nei, aldrei. Eg hef ekki áhuga á þvi, held hann sé hálfóætur. Sigurður Friðgelrggou frystihússtarfs- maður, Patreksfirði: Já. Hann er ágætur í boUum, mér finnst hann best- urþannig. Aslaug Þórlsdóttir, vinnur i Hátúni lOb: Nei. Eg held hann sé ekki góður, mér list ekkert á hann. Öskar Pálsson bílstjóri: Já, hann er mjög góður. Maöur getur þó ekki borð að mikiö af honum i einu, en það er mjög gott að smakka hann ööru hverju. Asa Hjartardóttir hárgreiðslukona: Já, mér finnst hann mjög góður. En hann verður að vera nýr, hann er fljót- uraöþrána. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur „Einungis gripiðtil koppsins í ýtrustu neyð” Geir Thorsteinsson, starfsmannastjóri Álafoss, sendi lesendasíðunni línu vegna skrifa 6765-0484 á síðunni á dögunum um kopp nokkura sem Pétur Eiriksson forstjóri veitti starfsmönn- um fyrir vei unnin störf. Með bréfi Geirs fylgdi blaðiö Ala- fossfréttir, aprílhefti, en í þvi blaði greinir Pétur Eiríksson frá gagn- merkri sögu koppsins. Einn starfsmanna Álafoss gaf Pétri koppinn á árshátíð fyrirtækisins 1977. Við það tækifæri hét Pétur því aö ef tækist að afgreiða mikla treflapöntun til Sovétríkjanna á réttum tíma myndi hann mæta á prjónastofuna með koppinn fullan af vodka. Það tókst og Pétur forstjóri stóö við orö sín. Næst er af koppnum að segja árið 1979 er treglega gekk að afgreiöa frá fataút- flutningsdeild. Til þess að örva liðið var gripið til þess ráðs að heita deild- inni koppnum ef tækist aö afgreiða vörur fyrir 1 milljarö fyrir 1. október sama ár. Reyndist þetta vel og fékk koppurinn að safna ryki allt þar til brann hjá Álafossi 15. mars sl. Enn var þá heitið á koppinn og að vanda dugði það ráö. Verksmiöjan komst í gang á hálfum mánuði. 9. apríl síðastliðinn voru bornar fram veitingar í koppnum í þriðja skipti. I lok greinar sinnar í Álafossfréttum segir Pétur Eiríksson: ,,Eins og sést á framansögöu er ekki gripið til koppsins nema í ýtrustu neyð. Hann er ekki veittur reglulega og einungis ef alveg sérstök afrek eru unnin innan þröngra tímamarka. Eg held aö best sé að halda þessu svona, því það er ein- ungis verðmætt sem fáir fá og geta sjaldan eignast en hitt lítilsvert sem margir komast oft yfir. Koppurinn er nú í umsjá spunaverksmiðjunnar sem vann til hans meö heiðri og sóma. ” Hér með er þessum upplýsingum komið á framfæri viö 6765-0484. mms*: lsunarstnrf^rt*^sins vanhakn .en®1 ^sfvirkiar fiu stóðu yflr Starfsmaður Álafoss kvartaði á dögunum yfir koppisem starfsmenn fengu fyrir vel unnin störf við hreinsun eftir bruna. Pétur Eiriksson forstjóri heldur því aftur á móti fram að hinn mesti vegsauki sé að fá koppinn. DavidBowie: Klettur upp úr drullu- polli meðalmennskunnar Siguröur Jóhannsson, aldursvarafor- seti Sambands islenskra hippafríka, skrifar: Með því nú er til umræðu hvað dægur-, sem kallað er, -tónlistar skuli á listahátíð reynist ég mér að óvörum skyldugur til að leggja orð í belg. Mér skilst að sá möguleiki kunni að vera fyrir hendi að David Bowie þiggi boð hingaö. Ef svo er væri fáránlegt annað en bjóöa honum. Munandi tíma sirka tvenna komma sjö og hafandi í gegnum þá hlustað með aldrei færri eyrum en öðru eftir hverju því er hljómar vel, getur mér ekki þótt annað í dag en að hr. Bowie standi ásamt örfáu listafólki öðru eins og klettur upp úr þeim drullupolli meðalmennsku og andleysis sem á ströndum Noröur-Atlantshafs gengur af óskiljanlegum ástæðum undir nöfn- um er vitna bæði i tóna og list. Aö vísu er ég skömm skár sáttur við það sem heyrist í hinu almenna út- varpi en við hitt sem heyrist ekki. Mér hefur þótt mínir fuglar fagrir. A dögum Cream og Hendrix var sem annar hver jarðarbúi syngi svo þrótt- mikilli röddu sem þeir. I dag er leitun I ___________ aö fólki utan klassískrar hefðar sem ekki viröist fyrirlita eigin verk. Ekki að sú leitunin þurfi endilega að vera löng. Pönkið, eins og þaö kýs að kalla sig — tja — sumir bestu vinir mínir eru pönkarar — en það er jú eins og ekki alveg útsprungið blóm. Maöur veit eiginlega ekki ennþá hvemig það lítur út. Og ef út í það er farið, má segja að tónlist umrædds Bowies sé ein megin þeirra æða er tengja pönkið við aðra tónlist fyrr og síðar. En sú er ekki frágangssökin, heldur hin sem einfaldari er: að Bowie er heilt skáld, á tóna, á orð, á flutning, og hann er máttugt skáld. önnur sem mér vitanlega koma til álita hafa hvorki til að bera heillyndi né verulegan mátt. Að vísu hefur mér skilist að fyrir hendi sé fræðilegur möguleiki á þvi að tónleikar hr. Bowie geti orsakað heróínneyslu, eins og kvikmyndin.Wir, Kindera des Bahnhofs Tiergarten bar svo eftirminnilegt vitni um. Þó er þetta ekki sannað, og sumir alls áreiðanlegir vísindamenn telja nokkuö víst aö engin tengsl séu í raun. En þó væru, eða séu, er held ég hverfandi hætta á smiti hér á skerinu. Eg get sjálfur borið um það, hve fikniefnalögregla okkar er starfi sínu vaxin. Semsé mjög vel. Eða mátu- lega er kannski rétta orðið. Allavega þurfum við tæplega aö óttast. Þó sumum náttúrlega finnist mest gaman að óttast. Allt um þaö. Það mun vera hængur aö sviðið i Laugardalshöll er lítið. Er eitthvert mál að reisa bráðabirgöasviö stærra? Eg meina, tölum við manninn. Þaö má ekki sleppa svona sjensum. „Bowie stendur eins og klettur upp úr þeim drullupolli meðalmennsku og andleysis sem á ströndum Norður-A tlantshafs ganga undir nöfnum sem vitna i bæði tóna og list." Verkamanna bústaðir: „Þetta viðlegugjald er hreinn þjófnaður” 3078-2498 skrifar: j Miglangartilaðbeinaathygliþeirra sem sitja nú á Alþingi og karpa um hlutina að málefnum gamla fólksins. Eg trúi því ekki, nýkjörnir alþingis- menn, að þiö ætlið aö gleyma gamla1 'ólkinu eins og hinir gerðu. Það er svo hróplegt ranglæti sem yfir þetta gamla fólk er leitt. Móðir mín er 74 ára gömul og er sjúklingur. Hún hefur búið í verka- mannabústöðum í yfir 40 ár. Maður ætlaöi að hún ætti íbúöina skuldlausa.. Nei, svo er ekki. Hún þarf að borga 9 þúsund krónur á ári í þetta viðlegu- gjald sem kallað er og er bara nafnið tómt. Hún hefur bara ellilaunin og dróst síöast að hún gæti borgað. Þurfti hún þá að greiða dráttarvexti á allt saman og upphæðin fór þá í 10—11 þúsund krónur. Fasteignaskattar og brunamat ekki innifalin og ýmis gjöld aukalega ofan á allt saman. Aldrei er neitt gert fyrir þessar íbúðir. Glugg- amir í hennar íbúð eru grautfúnir, úti- dyrahurðin gisin og mikill kuldi í íbúö- inni af þeim sökum. Margt annaö amar að og hún hefur oft kvartað. Alltaf erhenni lofaðað lagaöverðien ekkertgerist. Þetta gjald, 9 þúsund krónur, er ekkertannað en þjófnaður. Svona lagað ætti ekki að láta viðgangast og ætti aö taka þetta til rækilegrar athugunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.