Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1983, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR 3. JUNI1983. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Ráðstefna um S-kóreanski stjórnarandstæðingurlnn Kim Young-Sam hefur nú verið í hungurverkfaili í 17 daga og mun nú mjög af honum dregið. En hann lætur engan bttbug á sér finna og krefst endurreisnar lýðræðis í S-Kóreu. Þegar kistan með líkamsleifum Schauffelbergers kom til Bandaríkjanna tók her- inn á móti henni með mikilli viðhöfn. Nú hafa skæruiiðar í E1 Salvador ítrekaö hótanir sinar í garð bandariskra hernaðarráðgjafa. El Salvador: Skæruliðar hóta Bandaríkjamönnum I gær ítrekuöu skæruliöar í E1 Salvador hótun sina um aö drepa bandaríska hernaðarráögjafa þar í landi. Yfirlýsing, sem send var til út- varpsstöövar í San Salvador, höfuð- borg ríkisins, lýsti ábyrgö á moröi hernaðarráðgjafans Albert Schauffel- berger á hendur skæruliðum Frelsis- hreyfingar alþýðu sem á aðild aö heildarsamtökum skæruhða. Schauffelberger er fyrsti liðsforingi í herafla Bandaríkjanna sem drepinn hefur verið í E1 Salvador. I yfirlýsingu Frelsishreyfingar alþýðu var einnig ítrekuö krafa skæru- liða um viðræður við stjórnvöld um friö, án skilyrða. En stjórnvöld hafa neitað að taka upp viðræöur við skæru- liða meðan þeir bera vopn. Nicaragua: Skæruliðar taka borg Skæruliðar stjórnarandstæðinga í Nicaragua tilkynntu í gær, aö þeir hefðu náð á sitt vald bænum Monzonte í hinu norðlæga héraði Nueva Segovia. Tilkynningin, sem gefin var út í höfuö- borg Hundúras, sagði aðtaka bæjarins hefði gengið hratt fyrir sig en ekki var gerð grein fyrir því, hvenær bærinn var tekinn, eða hvort nokkurt mannfall varð. Mozonte er um 15 kílómetra frá landamærunum við Hondúras. Engin yfirlýsing um þetta mál hefur verið gefin út á vegum stjórnvalda í Nicaragua. Skæruliðarnir í norðurhér- öðum landsins eru fyrrum fylgismenn einræðisherrans Anastasio Somoza, sem sandínistar veltu af valdastóli 1979. Yfirvöld í Nicaragua segja að skæruliðum sé stjórnað af banda- rískum yfirvöldum. Gæði sjávarafurða Á vegum Sjávarútvegsráðuneytisins og Fiskiðn, fagfé- lags fiskiðnaðarins verður haldin dagana 9., og 10. júní n.k. að Borgartúni 6, IV hæð (ráðstefnusal). Tilgangur ráðstefnunnar er að varpa ljósi á aðgerðir í gæðamálum, greina frá nýjungum og ræða umbótamál í fiskiðnaði. Ráðstefnustjóri Björn Dagbjartsson Dagskrá: 9. júní Setning ráðstefnu Ávarp sjávarútvegsráðherra, Halldórs Ás- grímssonar: Aðgerðir stjórnvalda í gæðamál- um. Gæðahringir í fiskiðnaði: Ingjaldur Hannibalsson frá Iðntæknistofnun. Stjórnun og skipulögð vinnubrögð: Árni Gunn- arsson frá Stjórnunarfél. ísl. Námsleiðir fyrir starfsfólk í fiskiðnaði og sjávar- útvegi: Sigurður B. Haraldsson skólastjóri Fisk- vinnsluskólans. Ferskleiki fisks - mat eða mæling: Björn Krist- insson frá Rafagnatækni. Dagskrá: 10. júní Verðmæti sjávarafla og þýðing gæða: Jónas Blöndal frá Fiskifélagi íslands. Um rannsóknir: Erindi flutt af starfsmönnum Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Opinber eftirlitsstörf í sjávarútvegi og fisk- vinnslu: Jóhann Guðmundsson frá Framleiðs- lueftirhti sjávarafurða. Hráefni um borð í fiskiskipum og í móttökum: Svavar Svavarsson framleiðslustjóri BÚR Erindi sölusamtakanna: Fulltrúar Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna, Sambands ísl. samvinnu- félaga og Sölusambands ísl. fiskframleiðenda fjalla um hráefni, vinnslu og umbótamál fyrir erlendan markað. Kynning á lagafrumvarpi um rikismat sjávarafurða. Á eftir erindum verða umræður og fyrirspurnir. Ráðstefnugjald er kr. 800, innifalið er matur og kaffi. Þátttaka tilkynnist í síma 13151 frá kl. 13.30 til 16.00. Áríðandi að tilkynna þátttöku sem fyrst. F/SK UÆUii fagfelag smJKM FISKIDNAÐARINS SJAVARUTVEGS- RÁÐUNEYTIÐ S-Kórea: LIÐAN HUNGURVERK- FALLSMANNS SLÆM stuðningsmenn hans dæmdir í stof uf angelsi Fyrrum leiötogi stjórnarandstöð- unnar í S-Kóreu, Kim Young-Sam, heldur enn áfram hungurverkfalli sínu, þrátt fýrir það að læknar hans og stuöningsmenn hafa eindregiö beðið hann að láta af því. Kim hefur nú verið í hungurverkfalli í 17 daga til stuðnings kröfu sinni um endurreisn lýðræðis í S- Kóreu. Líðan hans er nú orðin mjög slæm. I nótt sátu þrír læknar viö rúm hans í tvo og hálfan tima og reyndu að telja honum hughvarf en Kim, sem hefur ekki viljað láta annað inn fyrir sínar varir en vatn og salt, segist hafa byrjað á þessu hungurverkfalli sjálf- viljugur og muni halda því áfram. Læknar sögöu að nú væri svo komið fyrir Kim að hann ætti á hættu að bíða varanlegan skaöa af hungurverk- fallinu og að brátt yrði ekki aftur snúið. Stuðningsmenn Kims mynduðu 13 manna nefnd tO þess aö telja honum hughvarf en óeinkenniskiæddir lögreglumenn fluttu tíu þeirra burt frá spítalanum þar sem Kim liggur og til síns heima en þrem var leyft að heim- sækja Kim. Stuðningsmenn Kims sögðu að lögregluþjónarnir hefðu sagt a þeir ættu nú að sitja í stofufangelsi til þess að koma í veg fyrir að skipu- lagöur yrði almennur stuðningur við kröfur Kims. Þá voru 22 félagar í mannréttindahreyfingu S-Kóreu settir í stofufangelsi í gær til þess að kom í veg fyrir að þeir gætu haldið fund til þess að ræða hungurverkfall Kims. Indónesía: r ÞRIR FARASTIFLUGSLYSI Flugvél af Fokker-28 gerð, í eigu Garuda flugfélagsins í Indónesíu, hrapaði á eynni Sumatra skömmu eftir flugtak frá flugvelli á suðurhluta eyj- arinnar. Með flugvélinni voru 57 farþegar og 4 manna áhöfn, þrír fórust. Flugvélin var á leiö til Jakarta, höfuðborgar Indónesíu. Talsmaður flugfélagsins sagði að ekki væri vitaö hvers vegna flugvélin hrapaði, en samkvæmt frásögnum munu það hafa verið flugmaðurinn, aðstoðarflugmað- urinn og einn farþeganna sem fórust.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.