Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1983, Qupperneq 14
14
Spurningin
Hvað ætlar þú að gera í
sumarfrfinu?
(Spurt á Akureyri)
Ellert Gunnstelnsson: Eg ætla vestur í
Fljótíheyskapinn.
Agnes Þórhallsdóttir: Eg ætla aö j
p?ssa bömin mín. Ætli maöur fari j
nokkuö í langt feröalag.
Jón Freysson: Eg er í Bara-flokknum-,
og viö veröum úti í Bretlandi aö taka i
upp plötu.
Valþór Þorgeirsson: Eg verö austur á
Norðfiröi aö þjálfa 4. og 5. flokk í fót-1
bolta og ætla aö spila meö Þrótti.
Maður fer eitthvað stutt.
Smóri Jónsson: Eg ætla aö stunda j
veiðiskapinn mjög grimmt í sumar.
Kristján Sveinsson: Eg ætla aö stunda |
sundiö i sumar.
DV. FÖSTUDAGUR 3. JUNÍ1983.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Jón Magnússon telur ýmislegt athugavert við innheimtu erfðafjárskatts.
Er f ramið lögbrot
við innheimtu
erfðafjárskatts?
Jón Magnússon skrifar:
I lögum um erfðafjárskatt nr.
30/1921 er kveöiö á um upphæð
skattsins og er hann ákveöin % af
fjárhæð arfs, upp að ákveðnu marki,
síöan ögn hærri % aö öðru marki og
kollaf kolli.
Þessum þrepum hefur a.m.k.
tvisvar veriö breytt, þ.e. meö lögum
nr. 50/1972 og nr. 46/1978. Eftir seinni
breytinguna eru þrepin frá 5% af
fyrstu 12.000 kr. og upp í 10% af öllu
sem fer yfir 60.000 kr.
Vegna þess að þrepin fylgja ekki
verðlagi eins og t.d. skattstiginn ger-
ir er erfðafjárskattur nú af 850.000
kr. húseign, 9,79% af verömæti en
var 1978 ekki nema 8,2% af sambæri-
legri húseign (100.000 miöaö viö
byggingavísitölu).
Mér sýnist augljóst aö þessi þrep
ætti aö binda viö vísitölu í lögum tii
aö skattheimta aukist ekki umfram
verölag án þess aö lögunum sé breytt
eöa þingiö ákveði að þyngja greiösl-
ur erföafjárskatts.
Eg vil koma á þeirri venju að allar
tröppur og þrep sem tilgreind eru í
krónum í lögum fylgi sjálfkrafa
verðlagi til aö hvorki þurfi aö væna
erfðafjársjóö um lögbrot né tefja lög-
gjafann meö leiðréttingavinnu.
Þetta má gera meö einni setningu í
viðkomandi lögum um leið og þau
erusett.
Svona ónákvæmni í lagasetningu
og þynging skattheimtu án lagalegr-
ar stoðar finnst mér ekki eölileg,
allavega yröi þetta talin villa í próf-
verkefni í stærðfræöi.
i
17 ára pil'
eftir
vaktavir
kemur eftjr k aðl*r
eftirkl 5o -*
Húsnæði óskast
Tv*r systur utan af landi,
hjúkrunamemi og bankastarfsmaöur, [ i
óska eftir 2—3ja herb. íbúö frá 1. júní, ar '
helst sem næst miðbænum. Fyrirfram- j
greiösla og meömæli ef óskaö er, hús- 1 i
hjálp kemur einnig til greina. Uppl. í f j
stma 22669 eftir kl. 16.
Barnlaust par.
Reglusamt bamlaust par frá Siglufiröi
óskar eftir 2—3ja herb. íbúö til leigu
frá og meö 1. júní nk. Fyrirfram-
greiösla, meðmæli og húshjálp í boöi.
45840.
/ svarí Ingó/fs P. Steinssonar kemur
fram að staðgreiðs/u sé krafist
vegna smáaug/ýsinga i dálkana
atvinna óskast, húsnæði óskast og
einkamál.
Af hverju
þarfað
staðgreiða ?
Bergþóra Árnadóttir hringdi:
Mig langar til að koma á framfæri
opinberlega kvörtun vegna smáaug-
lýsinga í DV. Eg ætlaði aö auglýsa eftir
vinnu handa dóttur minni á dögunum.
Hringdi ég á skrifstofu blaðsins í þeim
erindagjöröum en var tjáö að blaðiö
tæki ekki við smáauglýsingum nema
gegn staðgreiöslu. Þykir mér þetta
undarlega að verki staðiö. Eg hef oft
auglýst í blaöinu áöur og heföi verið
hægur vandi aö athuga hvort ég hefði
ekki staöiö í skilum, ef um það var ef-
ast á annað borö.
Ingólfur P. Steinsson, auglýsingastjóri
DV, svarar:
Þær reglur gilda á smáauglýsinga-
deild DV aö smáauglýsingar í dálkana
húsnæði óskast, atvinna óskast og
einkamál eru aðeins birtar gegn staö-
greiöslu.
Ástæðan er sú aö mikil vanskil hafa
veriö á greiðslum fyrir smáauglýsing-
, ar í þessum dálkum og f jallháir staflar
af óinnheimtum auglýsingum safnast
á skrifstofum blaösins.
Þaö er skiljanlegt aö Bergþóra sé
óánægö meö þetta en því miður bitnar
óskilvísi fárra á heiðarlegu fólki.
KYNLEG GIFTING í
KRISTILEGUM ANDA
Haraldur Guðnason skrif ar:
Fyrir kosningar vissu allir um efna-
hagsvandann. Framboðsaðilar, sem
svo voru nefndir, komu hver af öðrum
ærið ábúöarmiklir meö landsföðurleg-
an svip og allir vissu allt um vandann.
En hvað átti aö gera? Þá fór vandinn
aö vefjast nokkuö fyrir. Reynandi aö
lækka kaupiö, hafa hömlulausan inn-
flutning (allt skal frjálst), lækka geng-
iö. Allt gamlar lummur.
Eftir kosningar lögöu pólitíkusar
niður vandræöasvipinn, allir skælbros-
andi, alltaf fundir og handabönd,
marga langaöi að verða ráðherrar.
Skyldi langþráöur draumur rætast?
Geir fór aö tala viö Steingrím — engin
niöurstaöa. Steingrímur fór aö tala viö
Geir. Árangur enginn. Svavar fór aö
, tala við Steingrím og fleiri. Steingrím-
ur vildi ekki tala við Svavar. Þá fór
Geir aö tala við Steingrím og það bar
árangur. Tilhugalifiö hefur stundum
j sín flóknu tilbrigði. —
lj Þá eru krataflokkamir á Islandi
jorönir þrír. En ekki dettur þeim í hug
aö sameina liöiö, fækka flokkum og
efla einn almennilegan flokk gegn
íhaldinu. Tígulkóngamir í spilunum
eru ofmargir.—
I Margir pólitikusar telja vondan kost
aö mynda utanþingsstjórn. Vitanlega
sneyðist þá um möguleika þeirra sem
bíða í ofvæni eftir því aö verða ráö-
herrar á pólitíska þrotabúinu okkar ef
mynduð yrði slík stjórn. Enginn þing-
maöur ætti aö vera ráðherra. Eða er
ekkiembætti ráöherransfullt starf? Og
erij ekki þingmenn taldir gegna fullu
starfi þótt þeir sitji reyndar á þingi
hálft áriö eða varla það? —
Tveir flokkar vildu efla kristnihald í
landinu samkvæmt stefnuskrá. Þaö
eru þeir sem nú eru gengnir í heilagt
hjónaband. Klerkur aö vestan spurði:
Er ástæða til að kirkjufólk (?) bindi
vonir viö Sjálfstæðisflokkinn í komandi
kosningum? Og hann beindi oröum sín-
um að foringjanum og spurði hvers
vegna Sjálfstæðisflokkurinn „sem vill
standa brjóstvöm (svo) fyrir kristin-
dóminn í landinu” tæki svo dauflega
undir óskir kirkjufeöra. Geir svaraði
því til og lagöi áherslu á, að Sjálf-
stæöisflokkurinn vildi styöja kristin-
dóm og hann ætti að fá meiri peninga.
Reyndar vild' svo vel til að Þorvald-
ur Garöar væri í nefnd sem viröist
helst eiga að hafa með höndum ein-
hvers konarskömmtun milli hins geist-
lega og veraldlega valds. Sannast nú
sem fyrr: „Kristilega kærleiksblómin
spretta kringum hitt og þetta ”.
,,ÞA fór Geir að tala við Steingrim og það bar árangur. Tilhugalifið hefur
stundum sin flóknu tilbrigði, "segir Haraldur Guðnason.