Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1983, Síða 17
DV. FIMMTUDAGUR16. JUNI1983.
17
Lesendur Lesendur Lesendur
Hljómsvcitin Culture Club.
Culture Club á Listahátíð
P.O.og G.O.skrifa:
Okkur langar til að koma þeirri ósk
á framfæri að hljómsveitin Culture
Club veröi fengin á næstu listahátíö,
1984. Eftir því sem við best vitum var
reynt að fá hljómsveitina til landsins í
sumar.
Þá langar okkur til að kvarta um
það við sjónvarpið að eftir seinustu
listahátíð voru nær öll atriðin sýnd í
sjónvaipinu nema tónleikar Human
League í Laugardalshöll.
Vildi Jónas Elías-
sonsem
iðnaðarráðherra
Björu Loftsson skrifar:
I Dagblaðinu-Vísi laugardaginn
11. j úní segir svo í frásögn af Varðar-
fundi:
„Að loknum framsöguerindum
tóku margir til máls og var mikill
hiti í mönnum. Bjöm Loftsson gagn-
rýndi aðferðir þær sem notaðar voru
við ráðherraval. Kvað hann Birgi Is-
leif hafa átt að verða ráðherra og
Jónas Haralz viðskiptaráðherra.
Stefna stjómarinnar væri „hreint
moð”.
Eg varð nú ekki var við að mikill
hiti væri í mönnum. I það minnsta
tek ég það ekki til mín, þar sem ég
flutti mál mitt af mikilli prúð-
mennsku og hógværð, eins og ég er
vanur. Ég minntist ekki einu orði á
Birgi Isleif, störf hans eða að hann
hefði átt að verða ráðherra.
Eg sagði að mér fyndist að velja
ætti hvern ráðherra fyrir sig og þá
þann mann sem hefði lærdóm, þekk-
ingu og áhuga á þeim málum sem
þeir ættu að fást við, hvort sem þeir
væru utan þings eða innan.
Eg minnti á það að í þessum sal
Jónas Elíasson prófessor.
hefði maöur flutt ágætt erindi um
stóriðju og glötuð tækifæri á því
sviði. Þá hefði hann skrifað fleiri
greinar í blöðin, hverja annarri
betri, um þessi efni. Þá væri hann vel
lærður á þessu sviði. Mér þótti upp-
lagt aö hann yrði iðnaðarráðherra.
Eg þóttist vita að allir sem eitt-
hvað fylgjast með landsmálum sæju
aö ég átti við Jónas Eliasson prófess-
or þótt ég nefndi hann ekki á nafn. Þá
taldi ég aö Jónas Haralz hefðimanna
mesta þekkingu á viðskiptamálum.
Eg tók það skýrt fram aö þetta
væri ekki sagt sem vantraust á þá
sem nú gegna þessum störfum.
,JBreint moð”, sagði ég nú ekki en
kannski eitthvað svipað. t þaö
minnsta sagði ég að stefnuskrá
stjórnarinnar væri mjög léleg.
Siðlausar auglýsingar
Gunnar HaIldórsson(3358—1831)
skrlfar:
Eg vil bera fram tilmæli til Dag-
blaðsins-Vísis og fleiri blaða. Ekki
botna ég í birtingu einkamálaauglýs-
inga sem hljóða þannig að giftir
menn óska eftir kynnum við ógiftar
eða giftar konur með tilbreytingu í
huga.
Persónulega finnst mér svona
auglýsingar siölausar með öllu og
vildi óska að forráðamenn blaða er
birta slíkar auglýsingar sæju sóma
sinn í því aö afneita svona auglýsing-
um. Kannski væri líka best að prest-
ar landsins tækju svona mál til
athugunar og beittu sér í því.
Aö lokum vil ég skora á eigendur
Dagblaðsins-Vísis sérstaklega og
aðra að láta ekki peningasjónarmiö
ráða ferðinni í svona máli.
ÍSAFJARÐAR-
KAUPSTAÐUR
Kennarastöður.
Eftirtaldar stöður eru auglýstar til umsóknar.
Barnaskóli Isafjarðar, 1.-6. bekkur:
Almenn kennarastaöa,
Staða myndmenntakennara.
Staða tónmenntakennara.
Gagnfræðaskólinn á Isafirði, 7.-9. bekkur:
2 almennar kennarastöður.
Umsóknarfrestur er til 24. júni nk.
Nánari upplýsingar veita skólastjórar og formaður grunn-
skólanefndar.
Formaður grunnskólanelndar.
FLATEY
JL-húsinu, 2. hæö. Sími 23535
Höfum opnad í JL-húsinu, 2.
hœd
BÆKUR
RITFÖNG
LEIKFÖNG
BÚSÁHÖLD
GJAFAVÖRUR
Gjörid svo vel ad líta inn
FLATEY, JL
*r éíféíí »tf4t */ *J/ *3/ *3/ 43/
/£* /{• /É* /{• /{• /{• /É* /{• /S* /{• /{• /{• /{• /{• /{• /{• /{• /{• /{•/{
N/ Notaðir
fi} / bílar
BILAKJALLARINN
FORD HÚSINU
Opið frá kl. 9 til 19,
alla daga, einnig í há-
deginu,
laugardaga 10—5.
Ford Mustang Ghia árg. 1979,
svartur, 6 cyl. A/T Verð kr. 290.000.
Ford Bronco Custom, 8 cyl., 351 A/T, 1978,
ekinn 86.000 km. Verð kr. 350.000.
Ford Econoline 150 Van árg. 1976, m/framdrifí. Verð kr. 400.000.
Mazda 929 árg. 1982, 2 dyra A/T, ekinn 12.000 km. Mustang Ghia árg. 1981, 2 dyra, 6 cyl. A/T i skiptum fyrir jeppa Verð kr. 350.000.
í svipuðum verðflokki. Verð kr. 450.000.
Volvo árg. 1979 GL, 4 dyra, grænn. Verð kr. 220.000.
Taunus 1600 GL árg. 1982, 4 dyra. Verð kr. 280.000.
Einnig vantar Scania vörubil, 6—10 hjóla.
i skiptum fyrir Bronco Ranger, beinsk. '78.
Og rúsinan: Cadillac Cimmaron m/öllu 1982 Verð kr. 590.000.
Sölumenn: Jónas Ásgeirsson
og Þorsteinn Kristjánsson.
Framkvæmdastjóri: Finnbogi Ásgeirsson.
BÍLAKJALLARINN FORD-HÚSINU
Sími 85100 og 85366 eftir kl. 6 og 84370.