Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1983, Page 20
20
DV. FIMMTUDAGUR16. JUNI1983.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Skagamenn feneu
skell á ísafirði
— gamla kempan Jóhann Torfason skoraði sigurmark þeirra
Frá Val Jónatanssyni, fréttamanni DV
á Ísafirði:
ísfirðingar unnu sætan sigur á Akur-
nesingum í 1. deildarkeppninni hér á
isafirði í gærkvöldi. Sigruðu þeir í
leiknum 1—0 og skoruðu þeir þetta
eina mark sitt um miðjan síðari hálf-
leikinn. Var gamla kempan Jóhann
Torfason þar að verki.
OliB.
með þrenn
verðlaun
Hinn gamli knattspyrnuþjálfari KR,
Vals og ÍBV, Oli B. Jónsson, rakaði að
sér verðlaunum á opna öldungamótinu
í golfi sem haldið var á Nesvellinum á
Seltjarnarnesi um helgina.
Fór Oli B. heim með þrenn verðlaun
af mótinu, en verðlaunin voru gefin af
Auglýsingaþjónustunni hf. Sigraði Oli
B. í keppninni með forgjöf — var á 149
höggum nettó — varð í öðru sæti án for-
gjafar á 181 höggi og fékk aukaverð-
laun fyrir að vera með fæst pútt allra
keppenda.
Eiríkur Smith listmálari sigraði í
keppninni án forgjafar — var á 177
höggum — og Sveinn Snorrason lög-
fræðingur með meiru varð þar í þriðja
sætiáeftir Ola.
Þeir sem komu á eftir honum í
keppninni meö forgjöf voru þeir Sigur-
jón Hallbjörnsson GR, sem varð annar
og Ingólfur Isebam GR, sem varð í
þriðja sæti. 'Up-
Akurnesingarnir voru betri aðilinn í
fyrri hálfleik. Áttu þeir nokkur góð
marktækifæri en tókst ekki að nýta
þau. Guðbjöm Tryggvason átti t.d.
skot í stöng á 12. mínútu og 10 mínútum
síðar b jargaði G uðmundur Jóhannsson
á línu skoti frá Sigþóri Omarssyni.
Isfiröingarnir komu tvíefldir til leiks
í síðari hálfleiknum og réöu Skaga-
menn þá ekkert við þá. Vom þeir strax
með í leiknum af öllum lífs og sálar
kröftum og áttu góð tækifæri til að
skora eitt eða fleiri mörk.
Bjami Sigurðsson, markvörður Ak-
urnesinga, varði t.d. meistarlega vel
langskot frá Guðmundi Jóhannssyni,
en aftur á móti réö hann ekkert við
skot Jóhanns Torfasonar 5 mínútum
síðar. Þá bmnuðu Isfirðingarnir upp —
Jón Oddsson óð upp vinstri vænginn og
gaf þar fyrir markið en Jóhann var á
réttum stað og afgreiddi knöttinn
snyrtilega í netið fram hjá Bjarna.
Eftir markiö hljóp mikið kapp í
Skagamenn, en Isfirðingarnir börðust
hetjulega og hleyptu þeim aldrei nógu
nálægt til að skora. Urðu Skagamenn
því að sætta sig við tap, en það var
nokkuö sem þeir áttu öragglega ekki
von á þama þetta kvöld.
Arni Sveinsson var besti maður
Skagamanna í þessum leik. Einnig
áttu þeir góðan leik Sigþór Omarsson,
Sigurður Lárusson og Olafur Þórðar-
son.
I liöi Isfiröinga var Hreiðar Sig-
tryggsson ömggur og greip oft vel inn í
leikinn. Þá áttu þeir Jón Oddsson og
bróðir hans ömólfur góðan leik, svo og
þeir Ámundi Sigmundsson og Jóhann
Torfason.
Dómari var Magnús Theódórsson og var
öruggur í sinum dómum. Hann gaf eitt „gult
spjald” í leiknum og fékk Guöjón Þórðarson
Skagamaður að sjá bað.
Uðin voru þannig skipuð: Lið Akraness:
Bjarni Sigurðsson, Guðjón Þórðarson, Sig-
urður Lárusson, Jón Áskelsson, Ölafur Þórð-
arson, Hörður Jóhannesson (Björn H. Björns-
son), Sveinbjörn Hákonarson (Júlíus P. Ing-
ólfsson), Slgþór Ömarsson, Ámi Sveinsson,
Guðbjöm Tryggvason. Lið ísafjarðar: Hreið-
ar Sigtryggsson, Jón Bjömsson, (Gnnnar
Pétursson), Benedikt Einarsson, Bjami
Jóhannsson, Guðmundur Jóhannsson, Krist-
inn Kristjánsson, ömóifur Oddsson, Jón
Oddsson, Rúnar Vífilsson, Jóhann Torfason,
Ámundi Sigmundsson.
★ MAÐUR LEIKSINS:
Hreiðar Sigtryggsson. VJ.Ísaflrði
2. DEILD
Staðan er nú þessi í 2. deildarkeppn-
inni í knattspymu:
FH—Fram 2-1
Völsungur—Njarðvík 0-1
Víðir-KA 0-0
Siglufjörður—Reynb- S 1—1
Njarðvík 5 4 0 18-2 8
Fram 5 3 116-3 7
Völsungur 5 3 115-2 7
KA 5 2 2 19-6 6
Reynir S 5 1 2 2 4-8 4
FH 4 1 12 3-4 3
Víðir 4 1 1 2 1-3 31
Einherji 3 1 111-2 3
Siglufjörður 5 0 3 2 4-7 3
Fylkir 5 1 0 4 6-8 2
Markhæstu menn:
Jón Halldórsson, Njarðvík 4
Gunnar Gíslason, KA 3
Næstu leikir: KA-FH, Njarðvík-Víðir
og Einherji-Fram á laugardaginn.
Fylkir-Siglufjörður og Reynir-Völs-
ungur á sunnudaginn.
íþróttir
íþrótt
íþróttir
DAGSKRA
17.JÚNÍ 1983
I. DAGSKRÁIN HEFST:
Kl. 09:55
Samhljómur kirkjuklukkna í
Reykjavík.
Kl. 10.00
Forseti borgarstjórnar, Markús
Orn Antonsson, leggur blómsveig
frá Reykvíkingum á leiði Jóns
Sigurðssonar í kirkjugaröinum
v/Suðurgötu. Lúðrasveitin
Svanur leikur: Sjá roðann á
hnúkunum háu. Stjórnandi:
Kjartan Óskarsson.
II. VIÐ AUSTURVÖLL:
Lúörasveitin Svanur leikur
ættjaröarlög á Austurvelli.
Kl. 10:40
Hátíöin sett: Kolbeinn H. Pálsson,
formaöur Æskulýðsráðs Reykja-
víkur.
Karlakór Reykjavíkur syngur:
Yfir voru ættarlandi. Söngstjóri:
Páll P Pálsson.
Forseti Islands, Vigdís Finn-
bogadóttir, leggur blómsveig frá
íslensku þjóöinni aö minnisvarða
Jóns Sigurössonar á Austurvelli.
Karlakór Reykjavíkur syngur
þjóðsönginn.
Ávarp forsætisráðherra,
Steingríms Hermannssonar.
Karlakór Reykjavíkur syngur:
ísland ögrum skoriö.
Ávarp fjallkonunnar.
Lúðrasveitin Svanur leikur: Ég vil
elska mitt land
Kynnir: Rafn Jónsson.
Kl. 11:15
Guðsþjónustq í Dómkirkjunni.
Prestur séra Valgeir Ástráðsson.
Dómkórinn syngur. Marteinn H.
Friöriksson leikur á orgel.
Einsöngvari: Sigríöur Ella
Magnúsdóttir.
III. HJÚKRUNAR- OG
ÖLDRUNARSTOFNANIR:
Kl. 10:00
Vestur-íslenskur karlakór syngur
við Elli- og hjúkrunarheimilið
Grund. (Karlakórinn
Vesturbræður).
Kl. 13:30
Skólalúðrasveit Árbæjar og
Breiðholts leikur við Hrafnistu.
Stjórnandi Ólafur L. Kristjánsson.
Kl. 14:15
Skólalúörasveit Árbæjar og
Breiðholts leikur við þjónustu-
íbúðir aldraðra við Dalbraut.
Kl. 15:30
Skólalúðrasveit Árbæjar og
Breiðholts leikur við Droplaugar-
staöi
IV. BIFREIÐAAKSTUR:
Kl. 14:00
Akstur gamalla bifreiöa. Félagar
úr Fornbílaklúbbi Islands aka
bifreiðum sínum vestur
Miklubraut og Hringbraut og
umhverfis Tjörnina og síðan að
Melavelli.
Kl. 14:30
Akstursþrautakeppni á Melavelli í
samvinnu viö Bindindisfélag
ökumanna.
V. HLJÓMSKÁLAGARÐUR:
Kl. 14:00-18:00
Félagar úr skátahreyfingunni
sýna tjaldbúöar- og útistörf.
Barna- og fjölskylduleikir.
Kl. 14:30
Félagar úr glímu- og íþrótta-
félögum í Reykjavík sýna glímu.
Kl. 15:00
Oslo Handverker sangforening
syngur.
VI. I LÆKJARGÖTU.
Kl. 14:30
Jasshljómleikar á Lækjartorgi.
Hljómsveitin b 5 leikur.
Kl. 14:30
Friðrik Ólafsson og Guðmundur
Sigurjónsson tefla á útitaflinu í
Lækjargötu.
Kl. 15:00
Vestur-íslenski karlakórinn
Vesturbræður syngur við
Menntaskólann í Reykjavík.
VII. FJÖLSKYLDUSKEMMTUN:
Kl. 15:00
Safnast saman við Hlemmtorg.
Kl. 15:20
Skrúðganga frá Hlemmtorgi,
gengið niður Laugaveg, Banka-
stræti og Ingólfsstræti á Arnarhól.
Lúörasveit Reykjavíkur leikur
undir stjórn Stefáns Þ. Stephen-
sens. Skátar ganga undir fánum
og stjórna göngunni. Félagar úr
Félagi tamningarmanna taka þátt
í göngunni með hesta sína.
Stjórnandi: Sigurbjörn Bárðarson.
Kl. 16:00
Dagskrá á Arnarhóli:
Umsjón: Klemenz Jónsson.
Kynnir: Gunnar Eyjólfsson.
Meðal þátttakenda: Sigurður
Sigurjónsson og Randver Þorláks-
son, Hljómsveitin Hrím, Félagar úr
leikhúsinu „Svart og sykurlaust",
Aðalsteinn Bergdalog Ragnheiöur
Steindórsdóttir, Guðni Þ.
Guðmundsson og fleiri
óvæntir gestir.
VIII. GÖTULEIKHÚS:
Kl. 17:00
Götuleikhús á Lækjartorgi, í
Austurstræti og víöar.
Leikhúsið „Svart og sykurlaust".
17.JÚNI
111983
IX. KVÖLDSKEMMTUN:
,,Viö byggjum leikhús"
Kl. 20:00
Safnast saman við nýja Borgar-
leikhúsiö í Kringlumýri.
Kl. 20:15
Skrúöganga frá Borgarleikhúsinu.
Gengið veröur Kringlumýrar-
braut, inn Sigtún að Laugardals-
höll. Leikarar og starfsmenn
Leikfélags Reykjavíkur ganga fyrir
göngunni og stjórna. Lúörasveit
verkalýösins leikur undir stjórn
Ellerts Karlssonar.
Kl. 21:00
Kvöldskemmtun í Laugardalshöll:
Leikarar og starfsmenn Leikfélags
Reykjavíkur flytja söng og leik-
atriði um borgarlífiö. Einnig veröa
sungnir söngvar úr leikverkum
sem sýnd hafa verið í lönó.
Höfundar: Kjartan Ragnarsson og
Jón Hjartarson. Leikstjóri: Kjartan
Ragnarsson. Tónlistarstjórn:
Siguröur Rúnar Jónsson.
Flytjendur: Sigríður Hagalín, Jón
Sigurbjörnsson, Margrét Ólafs-
dóttir, Steindór Hjörleifsson,
Aðalsteinn Bergdal, Guömundur
Pálsson, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, Jón Hjartarson, Soffía
Jakobsdóttir, Jóhann Sigurðar-
son, Valgerður Dan, Þorleikur
Karlsson, GuðrúnÁsmundsdóttir,
Kjartan Ragnarsson, Ragnheiöur
Steindórsdóttir, Þorsteinn
Gunnarsson, Hanna María Karls-
dóttir, Karl Ágúst Úlfsson,
Guörún Þorvarðardóttir og Edda
Bachmann. Hljóöfæraleikarar:
Jóhann G. Jóhannsson og Tómas
Einarsson.
X. KVÖLDDANSLEIKUR:
Kl. 21:30
Hljómsveitin Galdrakarlar leikur á
Lækjartorgi og hljómsveitin KIKK
leikur í Lækjargötu.
Dagskránni lýkur kl. 02:00.
Æskulýðsráö Reykjavíkur
Jón Erling Ragnarsson (sonur Ragnars Jónssonar handboltakappa) sést hér skora sigurmar
Guðmund Baldursson, markvörð Fram.
FH-ingar misi
vitaspyrnu
— ens
síður
FH-ingar björguðu í gærkvöldi andliti sínu
er þeir náðu að sigra Fram á heimavelli sínum
í Kaplakrika með tveimur mörkum gegn engu
er liðin mættust í 2. deild íslandsmótsins í
knattspymu.
Fyrir leikinn höfðu FH-ingar, undir stjórn
landsliðsmannsins Janusar Guðlaugssonar,
aðeins hlotið eitt stig úr leikjum sínum og urðu
þeir því að sigra i leiknum í gærkvöldi ef ekki
ætti illa að fara. Það tókst þeim á frekar auð-
veldan hátt þótt ekki blési byrlega fyrir þeim í
byrjun leiksins.
Það voru nefnilega Framarar sem náðufor-
ystunni um miðjan fyrri hálfleik er Magnús
Pálsson braut á einum leikmanni Fram innan
vítateigs og dæmd var vítaspyma sem Hafþór
Sveinjónsson skoraöi úr af öryggi. Og þannig
var staðan í leikhléi. Sá sami Magnús Pálsson,
sem áður er getið, kom nokkuö viö sögu í síðari
hluta fyrri hálfleiks er hann fékk það hlutverk
að framkvæma vítaspymu sem dæmd haföi
verið á Hafþór Sveinjónsson og var það mjög
góður dómur hjá Braga Bergmann sem,
Þeir mæta
Skotum á
Akranesi
Drengjalandsliðið í knattspymu mætir
Skotum í Evrópukeppninni á Akranesi á
sunnudaginn kl. 15. tslenska landsliðið hefur
verið vaUð og er það þannig sklpað:
Markverðir: Björgvin Pálsson úr Þrótti og
Sigurbergur Steinsson úr Víking.
Aðrir leikmenn: Bjami J. Stefánsson, Jónas
Bjömsson, Eiríkur Björgvinsson, Grétar
Jónsson og Jónas Guðjónsson úr Fram. Sig-
urður Jónsson og Guðmundur Þ. Guðmunds-
son frá Akranesi. EUas Friöriksson, Þór Ve.,
Stefán Steinsen, Víking, Kristján Gíslason,
FH, Guðmundur Magnússon, Isafirði, Skúli
Sverrisson, Fylki, Theódór Jóhannsson, Þrótti
og Snævar Hreinsson, Val.
• Þjálfari er Theódór Guðmundsson.
-sos.
dæmdi leikinn mjög vel. En Magnús fór illa að
ráði sínu því að hann brenndi skotinu af og þar
sluppu Framarar með skrekkinn.
FH-ingar komu ákveönir til leiks í síðari
hálfleik og ekki var liðinn nema stundarf jórð-
ungur af leiknum þegar þeir náðu að jafna
metin. Mikils misskilnings gætti þá milli vam-
armanna Fram sem endaði með því aö Pálmi
Jónsson komst einn að marki Fram og skaut
góðu skoti í bláhornið sem Guðmundur Bald-
ursson átti ekki möguleika á að ver ja.
Við þetta mark Pálma vöknuðu FH-ingar til
lífsins og tóku nú að berjast af krafti og
uppskám fallegt sigurmark þegar á 31. mín-
útu siöari hálf leiksins.
FH fékk hornspymu. Knötturinn var gefinn
vel fyrir markið þar sem Jón Erling Ragnars-
son (Jónssonar) stökk hærra en aðrir og skalli
hans, hnitmiðaður, hafnaði í marki Fram án
þess að nokkur bláklæddur kæmi vörnum við.
Framarar höfðu áður en þetta mark var
skorað átt tvö mjög góð marktækifæri sem
þeim tókst ekki að nýta en eftir að FH-ingar
skoruðu sigurmarkið áttu Framarar ekki nein
umtalsverð marktækifæri. FH-ingar vörðust
vel og héldu fengnu forskotl Margir gamlir og
góðir FH-ingar sáust ganga til síns heima eftir
leikinn með sigurbros á vör, nokkuð sem þeir
hafa þurft að biöa eftir í nokkuð langan tima.
Leikinn dæmdi Bragi Bergmann og dæmdi
hann sérstaklega vel. Sýndi hann tveimur leik-
mönnum gula spjaldið, Steini Guðjónssyni,
Jafnt á Sigl
— hjá KS og Reýni Sandger
Miklum baráttuleik KS frá Siglufirði og F
Sandgerði i 2. deild lauk i gærkvöldi með jafntef
eftir að staðan í leikhléi hafði verið 1—0 KS i vfl.
Leikið var á Siglufirði. Heimamenn náðu fory;
i fyrri hálfleik með marki Björns Ingimarssor
Sigurði Guðnasyni tókst að jafna metin fyrir
snemma í síðari hálfleik eftir homspyrnu.
Leikurinn þótti ágætlega leikinn og var nokki
marktækifæri hjá báðum liðum en barátU
harkan var kannski í það mesta.
íþrót
íþróttir
íþróttir