Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1983, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1983, Síða 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. JtJLl 1983. Það verða ekki allir ánægðir með þetta — segir Jónas Blöndal skrífstofustjóri um skýrslu Fiskif élagsins ,,Ég á von á því að það verði smá- söngur út af þessari skýrslu. Það eru ekki allir ánægðir meö þetta,” sagði Jónas Blöndal, skrifstofustjóri hjá Fiskifélagi Islands, er við spurðum hann um veiðiskýrsluna miklu sem Fiskifélagið sendi frá sér í fyrradag. Jónas sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem slik skýrsla væri gefin út hjá Fiskifélaginu. Hún næði yfir veiðar og gæöamat svo og aflaverðmæti frá öll- um stööum á landinu. Skýrslan hefði unnin upp úr þeim gögnum sem Fiskifélagið fengi sendar og næði hún yfir fyrstu fimm mánuði ársins — eöa vetrarvertíðina ogrúmlegaþað. „Menn eiga örugglega eftir að skipt- ast i hópa um ágæti þessarar skýrslu. Hún segir afdráttarlaust frá stað- reyndum, sem mörgum er ekkert um að sjá á prenti, svo sem misjöfnu gæðamati á fiski á hinum ýmsu ver- stöðvum og ýmsu fleiru. Verður án efa mikið fjallaö um hana meöal þeirra fjölmörgu sem þarna eiga hlut aö máli á næstudögum,” sagöi Jónas. -klp- Skrumskæling Karlsef ni var á karfaveiðum á vertíðinni - segir f ramkvæmdast jórinn „Niðurstöður þessarar skýrslu hvað varðar togarann Karlsefni eru skrum- skæling,” sagði Ragnar Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Karlsefnis hf. sem gerir togarann út, er DV ræddi við hann. I skýrslu Fiskifélags Islands um gæðaflokkun þorsks, sem landað hefur verið hér, kemur m.a. fram að aðeins 35,2% þorskafla, sem Karlsefni hefur landað er i 1. gæöaflokki, en 58,9% í 2. flokki. I skýrslunni segir ennfremur að Karlsefni hafi aðeins landað hér einu tonni á síðustu fimm mánuöum og út frá því er matið f ramkvæmt. „Skýringin á þessu er sú að togarinn var alls ekki á þorskveiðum á þessu tímabili heldur á karfa,” sagði Ragnar. „Mig minnir að það hafi verið í marsmánuöi sem hann fékk nokkra þorska í upphafi túrs. Við lönduðum þeim aö sjálfsögðu, ásamt 271 tonni af karfa, en út frá þessum 1000 kilóum er matið framkvæmt. Það kemur sér auðvitað mjög illa fyrir Karlsefni hf. að skýrsla sem þessi skuli gefin út til birtingar, enda er hún engan veginn marktæk. Þess má geta að þegar Karlsefni var siðast á þorsk- veiðum voru 80—90% aflans í 1. gæða- flokki.” -JSS. Togarinn Karlsefni var alls ekkl á þorskveiðum,seglr framkvæmdastjóri útgerðarinnar. Sjálft fiskmatið umdeilt — segir Björn Dagbjartsson, forstjóri Rannsóknastof nunar f iskiðnaðarins „Aöaigallinn á þessu er kannski sá að þegar svona skýrslur, sem unnar eru upp úr tölfræði, eru birtar almenn- ingi í fjölmiðlum er mjög vandasamt að matreiöa forsendumar svo þær komist til skila,” sagði Bjöm Dag- bjartsson, forstjóri Rannsóknastofn- unar fiskiðnaðarins, í samtali við DV í gær. „Sjálfur gmnnurinn, þ.e.a.s. fisk- matið, er mjög umdeildur og menn halda því ákveöiö fram að ekki sé nógu gott samræmi milli staða ogmatið sé ekki alls staöar framkvæmt eins og skyldi. Það kom reyndar fram í út- varpsviðtali við Hafþór Rósmundsson, framkvæmdastjóra Sjómannasam- bandsins, að það hefði verið skoðað hvernig ferskfiskmat færi fram á ýmsum stöðum og á fjölmörgum þeirra hefði því verið ábótavant. Þá má nærri geta að það gerir allar niður- stöður þessarar áiýrslu Fiskifélagsins ákaflega tortryggilegar, þvi miður. Hitt er svo annaö mál að við vildum að ailur fiskur sem á land kæmi, væri sem allra besturaögæðum.” Aðspuröur um orsök þess, að neta- fiskur flokkaðist verr en línufiskur, sagði Björn: „Meðan netaveiðar eru stundaðar á Islandi mun alltaf koma bræla og fiskur sem liggur fleiri nætur í netum án þess að bátar komist á sjó fer ekki í annað en lélegan gæðaflokk. En ef viö ætlum aö stunda netaveiðar á minni bátum er ég hræddur um að langt sé í það að við getum skipaö þeim öllum að koma með netin í land. Meðan svo er ekki gert mun eitthvað af fiski falla niður um gæðaflokk. Þetta «• eitt af því sem ruglar myndina,” sagöi Björn Dagbjartsson. -PA. Björn Dagbjartsson, forstjórl Rannsóknastofnunar flsklðnaðarlns. GÓÐIR BÍLAR TIL SÖLU Benz 200 dísil árg. '80, ek. 130.000. Benz 240 dísil árg. 79. Mazda 323 1300,5 dyra, árg. '82, ek. 20.000. Mazda 929 árg. '82. Mazda 323 árg. '81, skipti á nýrri Mözdu. Mazda 626 1600 árg. '83, ek. 4.000. Mazda 929 station árg. '81, ek. 30.000, beinskiptur. AMC Concord árg. '80,4 dyra, toppbíll. Volvo 244 árg. '82, skipti á ódýrari. S3 bilasala GUÐMUNDAR Bergþórugötu 3 — Reykjavík Simar 19032 — 20070 VORULISTI KOMINN Nær 1000 b/aðsíður troð- fullar af stórglæsilegum vörum á góðu verði. Listinn kostar kr. 130,- + burðargjald. Pantaðu Grattan listann strax og við sendum þér að auki glæsilegan nýjan tísku- lista, ókeypis, meðan birgir okkar endast! OPIÐ TIL KL. 22:00 I KVÖLD (91) 43766 til líkams- og* heilsuræktar KETTLER ÞREK HJOL viðurkenning Kettler þrekhjól eru nú fyrirliggjandi i ýmsum gerðum. Hjólin eru meö tvöföldu stýri sem hægt er aö stilla i þægilega stööu. Sætiö er einnig stillanlegt. Mælar og annar útbúnaður er breytilegur eftir tegundum. V-þýsk gæðavara. — hjóliö sem þrekið byggist á. Hagstætt verö. Hjól & Vagnar Háteigsvegi 3, 105 Reykjavik, íLS(9l}S?tQtt arfy

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.