Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1983, Page 11
DV. MÐVHCUDAGUR 20. JOLI 1983.
11
Mosamir verða eins
og gamlir kunningjar
— segir Bergþór Jóhannsson mosaf ræðingur
Á íslandi mætast mosar úr norðri og suðri. Ein tagund vex hár sem ekki
fínnst nœr en í Japan. Bergþór Jóhennsson við smásjána á Náttúru-
fræðistofnun. D V-m yndir Bjarnleifur.
Dagana 1. til 9. júlí þinguðu mosa-
fræðingar á Laugarvatni. Bergþór
Jóhannsson, eini náttúrufræðingur
landsins sem fæst eingöngu við
mosarannsóknir, var á ráðstefnunni
kjörinn formaður félags norrænna
mosafræðinga. Við slógum á þráðinn
til hans.
„Hvað voruö þiö margir, mosa-
fræðingarnir? ”
„Viö vorum tuttugu, frá ýmsum
löndum, Þýskalandi, Hollandi,
Bandarikjunum og flestum Norður-
landa. Af Islendingum voru auk mín
þeir Agúst H. Bjarnason og Helgi
Hallgrímsson frá Akureyri. Frá
Bandaríkjunum kom einn frægasti
mosafræðingur sem nú er uppi í
heiminum, Rudolf Schuster. Hann
hefur ritað feiknamiklar bækur um
mosa.”
,,Er Island mosaríkt land? ”
„Það má segja það. Hér eru um 560
mosategundir og á hverju einasta ári
finnastnýjar.”
Bergþór sagði að ráðstefnan hefði
verið óvenjuleg að því leyti að nær
engir fyrirlestrar voru haldnir. Á
hverjum morgni var ekið frá Laug-
arvatni í mosaieiðangra, austur und-
ir Eyjaf jöll, upp í Landmannalaugar
og í Hvítámes við Langjökul, að
hverasvæðum og aö Kleifarvatni. A
kvöldin var svo fengur dagsins skoð-
aður í smásjá og málin rædd fram á
rauðanótt.
„Við fundum fjórar nýjar tegund-
ir. Þar á meðal eina sem vitað er að
barst til Evrópu fyrir fimmtán tutt-
ugu árum síöan. Hún hefur veriö að
færast noröur á bóginn og er nú kom-
in hingað, liklega með farangri
ferðafólks. Stéttarbróðir minn skrif-
aði mér frá Bretlandi í fyrra til að
spyrja hvort hún væri komin, en þá
svaraði ég neitandi. Nú verð ég að
skrifa honum aftur og segja að hún
séfundin.”
Hreindýramosi
er ekki mosi
„Eitt það sérkennilegasta við Is-
land sem mosaland er að hér mætast
mosar úr ýmsum áttum, sumir af
Norðurpólnum, aðrir að sunnan. Og
ein tegimd vex hér sem ekki þekkist
annars staðar nær en í Japan.”
„Ermosafræði hagnýt?”
„Það færist mjög í vöxt að nota at-
huganir á mosa sem mælistiku á
mengun. Hér á landi má greinilega
merkja afleiðingar mengunar á
mosa kringum Straumsvík og einnig
frá Heklugosum. Við Grundartanga
höfum við ákveðna skika, þar sem
við fylgjumst með mosanum, en þar
hefur ekki komið fram mengun
ennþá.”
„Hvert var mesta gagnið af ráð-
stefnunni?”
„Við erum einangraðir hér í mosa-
rannsóknum og það var ómetanlegt
að fá tækifæri til að ræða við erlenda
stéttarbræður. Um sígildar spurn-
ingar eins og hvemig mosar hafa'
borist hingað og hvort þeir hafi lifað
síðustu ísöld af eða komið hingað síð-
ar. Eins er ýmis vandi tengdur út-
gáfustarfsemi. Norræna mosafélag-
ið gefur tvisvar á ári út rit, sem heit-
ir Lindbergia, í höfuðiö á sænskum
mosafræðingi sem uppi var á síðustu
öld. Þetta er eitt af þremur virtustu
mosaritum í heiminum. En þaö er aö
verða svo hávísindalegt að hugsan-
lega þurfum við að gefa út annað
tímarit fyrir almenna félagsmenn,
sem eru 220 og fæstir þeirra hrein-
ræktaöir mosafræðingar.”
„Hreindýramosi, er þaö mosi? ”
„Nei.”
„Hver er mesta gleðin við mosa-
fræðina?”
„Er það ekki eins og með allt í lif-
andi náttúru,” svarar Bergþór,
„þegar maður fer að þekkja ein-
stakar tegundir þá verða þetta eins
og gamlir kunningjar, sem alltaf er
gaman að hitta? ”
-ihh.
Reykjavíkurborg byggir dvalarheimili fyrir aldraða:
Seljahlíð mun hýsa 80
aldraða í 70 íbúðum
Hafin er bygging nýs dvalarheimilis
fýrir aldraða í Reykjavík. Heitir það
Seljahliö og veröur að Hjallaseli 23 í
Breiðholti.
Borgarstjóm Reykjavíkur sam-
þykkti í nóvember 1982 að reisa dvalar-
heimili fyrir 80 aldraöa vistmenn við
Hjallaselið. Heimilið er ætlað þeim
sem ekki eru færir um að annast eigið
heimilishald nema með aðstoö.
Heimilið verður fyrir 80 íbúa, í 60
íbúðum fyrir einstaklinga og 10 íbúö-
um fyrir hjón. Séð verður fyrir öUum
máltíðum og um öU þrif hússins,
þvotta, umönnun, lyf, læknishjálp,
hjúkrun, endurhæfingu og félagsstarf.
HeimiUð verður einnig búið vistar-
verum til tómstundastarfa.
SeljahUð verður 3 hæðú- auk
kjaUara, samtals 5618 m2 eða 18032 m*.
Hjónaíbúðirnar verða 52 m2 hver en
einstakUngsíbúðimar 28 m2. Hverri
íbúö fylgir bað með sturtu. 1 h jónaíbúð-
unum er föst Util eldhúseining með
kæUskáp, vaski og eldavél. I einstakl-
ingsíbúðunum er hægt að koma fyrir
eldhúsinnréttingu ef þess er óskað. Þó
er gert ráð fyrir litlum kæUskáp í
öllum íbúðunum.
Sameiginlegar vistarverur eru
meðal annars matsalur fyrir um 100
manns, setustofur, föndursalur, spila-
salur, heilsuræktarsalur, hárgreiðslu-
stofa, fótsnyrtistofa og versiun.
Kostnaöur við aðalbyggingu er
áætlaður 100—110 milljónir króna. Þá
er allur búnaður hússins meðtaUnn,
svo og gerð lóðar. JarðvUmlufram-
kvæmdú- eru hafnar og lýkur þeim í
næsta mánuði. I lok júU verður lang-
stærsta útboð vegna þessarar bygg-
ingar auglýst og verða tUboð opnuð um
mánaðamótUi ágúst—september. I því
verki er uppsteypa hússUis og
frágangur að utan, emangrun,
múrverk og miUiveggir, auk allra
lagna. Því verki á að vera lokið 1. júli
1985. Stefnt er að því að húsið verði
fuUbúið þá í árslok.
JBH.
Borgarstjórinn i Reykjavik, Davfð Oddsson, kynnti ásamt fieirum bygg-
ingaráformin á fundi með fráttamönnum 6 föstudag. Hár er hann með
arkitektunum Sigurði Björgúlfssyni og Hróbjarti Hróbjartssyni. Hróbjartur
ereinn af aðalarkitektum Seljahliðar. DV-myndHelgi.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir júnímánuð 1983, hafi hann
ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvem
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en
síðan eru viðurlögin 5% til viðbótar fyrir hvem byrjaðan
mánuð, talið frá og með 16. ágúst.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ, 18. júlí 1983.
Laugavegi 1 — Sími 1-65-84.
&AiífniD
gúmmístígvél
Póstsendum
leikföng meö möguleika!
KETTLER
RARNA.
LEIK
TÆKI
Ötrúiegtvejö
fRÁKR.4800
Kettler leiktæki eru ódýr og örugg lausn a
útileikjum barnanna. Viöurkennd vara frá
V-Þýskalandi. Ymsir samsetningar möguleikar
og auövelt i uppsetningu. Grindin er úr
plasthúöuöu stáli.
Sýningartæki á staönum.
Hjól & Vagnar
Háteigsvegi 3, 105 Reykjavik,
arV