Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1983, Side 12
12
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. JOU1983.
DAGBLAÐlÐ-VÍSiR
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aðstoóarritstjóri: HAUKUR HELGASON.
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON.
Auglýsingastjó»'ar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON.
Ritstjóm: SlÐUMÚLA 12—14. SÍMI 8M11. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022.
Afgreiðsla, áskriftir, smáaugtýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022.
Sími ritstjómar: 86611.
Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA12. P rentun:
ÁRVAKUR HF., SKEIFUNNI19.
Áskriftarverð á mánuði 230 kr. Verð í lausasölu 20 kr.
Helgarblað22 kr.
Nýjar ratsjárstöðvar?
Bandaríkjamenn hafa vakið máls á því við Islendinga,
að rétt gæti verið að fjölga ratsjárstöðvum hér á landi.
Hugmyndir eru um nýjar ratsjárstöðvar á Vestf jörðum
og Norðausturlandi. Þar voru áður ratsjárstöðvar.
Tæki ratsjárstöðvanna á Keflavíkurflugvelli og við
Höfn gerast gömul og úr sér gengin.
Kunnáttumenn segja, að sovézkar flugvélar gætu hugs-
anlega flogið frá Kolaskaga í Sovétríkjunum og komið inn
yfir Island að norðan án þess að til þeirra sæist á skerm-
um stöðvanna, sem fyrir eru. Það er eðlilegt, fyrst við er-
um þáttur í vamarkerfi Atlantshafsbandalagsins, að til-
lögur séu gerðar um að „loka þessu gati”.
Illu heilli hefur vígbúnaðarkapphlaupið magnazt að
undanförnu.
Sovétríkin áttu mestan þátt í mögnun þess. Vestrænar
þjóðir hafa gert ráðstafanir til að svara stigmögnun
þeirri, sem Rússar hófu.
Herfróðir menn hér á landi segja, að fyrirhugaðar
framkvæmdir á vegum varnarliðsins séu að sumu leyti
endumýjun þess kosts, sem fyrir er, en að sumu leyti
aukning varna.
Leiðir hafa enn ekki fundizt til að draga úr vígbúnaðar-
kapphlaupinu með samkomulagi beggja aðila, Sovétveld-
isins og Atlantshafsbandalagsins. Reynslan sýnir, að
hugmyndir sumra svonefndra „friðarsinna” hér vestan
megin um einhliða afvopnun á ýmsum sviðum eru fráleit-
ar og sízt til þess fallnar að minnka ásókn Sovétmanna.
Samningar um að draga úr „ógnarjafnvæginu” geta því
aðeins náðst, að Sovétmenn telji sig ekki geta hagnazt
meðöðrumhætti.
Kjósendur hafa vísað kenningum svonefndra friðar-
hreyfinga á bug. Má þar nefna kosningar í Bretlandi og
Vestur-Þýzkalandi.
Nýjar ratsjárstöðvar hér yrðu að sjálfsögðu aukning
varnarbúnaðar, þótt slíkar stöðvar hafi verið áður á svip-
uðumslóðum.
En sem betur fer er einungis um að ræða eftirlitsstöðv-
ar, sem gera okkur og Atlantshafsbandalaginu auðveld-
ara að fylgjast með ferðum Sovétmanna og öðru flugi.
Við komumst ekki hjá að meta ástandið af raunsæi,
þannig að við ásamt öðrum þjóðum Atlantshafsbanda-
lagsins högnumst ekki á undanslætti heldur verðum að
legg ja okkar af mörkum til að trygg ja vamarkerfið.
Það er rugl að tala um litlar ratsjárstöðvar sem hugs-
anleg skotmörk fyrir kjarnorkusprengjur.
Ottinn við kjarnorkustyrjöld er einmitt hvati þess, að
Sovétmönnum sé svarað, þannig að von sé til, að þeir
gangi til samninga.
Hugmyndir hafa komið fram þess efnis, að Islendingar
önnuðust að einhverju leyti rekstur nýrra ratsjárstöðva,
ef til þeirra yrði stofnað.
Rætt var fyrir mörgum árum, að Islendingar kynnu að
geta tekið að sér í vaxandi mæli ýmis störf á vegum vamar-
liðsins, önnur en hermennsku, þannig að vamir landsins yrðu
í ríkari mæli okkar eigin.
Meö réttum tækjabúnaði gætu nýjar ratsjárstöðvar
orðið okkur ómetanlegar í öryggisgæzlu eigin flugvéla.
Þær yrðu því ekki einungis þáttur í „manntafli” ógnar-
jafnvægisins, heldur nytsamar í daglegum rekstri innan-
lands- og millilandaflugsins.
Haukur Helgason.
Með herinn
á heilanum
Hvað eiga forystumenn Alþýðu-
bandalagsins og forvígismenn ríkis-
stjómarinnar sameiginlegt? Að vilja
að umræðan snúist um flugstöðvarmúl
og olíutanka í Helguvík þegar kaup-
májttur launa er skertur um fjórðung
og margar f jölskyldur eiga ó hættu að
missa eignir sínar ó nauöungarupp-
boð. Áhugi forystumanna ríkis-
stjómarinnar á að leiða umræðuna inn
á þessar brautir, burt frá bjargræöis-
málum heimilanna, er skUjanlegur.
Áhugi forvígismanna Alþýðubanda-
lagsins á því er ekki skiljanlegur.
Fyrir launafólkið í landinu eru alvar-
legar horfur í kjara- og atvinnumálum
miklu meira mál en flugstöð og olíu-
tankar.
Að kæfa umræðu
um alvörumál
Húsmóðirin, sem ekki fær heimilis-
peningana lengur til þess að duga fyrir
hfsnauðsynjum, fær ekki séð að sú sé
alvarlegasta ávirðing rikisstjórnar-
Kjallarinn
Sighvatur Björgvinsson
innar að þiggja erlent fjórmagn tU
framkvæmda við flugstöövarbyggingu
á KeflavíkurflugvelU. Ungu hjónin,
sem ekki geta lengur staðiö í skUum
með afborganir af íbúðinni, sjó ekki að
það sé algert sáluhjálparatriði að
áfram sé haldiö að flytja eldsneyti
fýrir herinn í bUum um miðborg
Reykjavíkur. Iðnaöarmaðurinn, sem
veit ekki við hvað hann ó að vinna eftir
áramótin, sér alvarlegri ljóð á ráði
ríkisstjórnarinnar en þann að hún ætli
að selja Bandaríkjamönnum lekahjaU
suður á KeflavíkurflugvelU fyrir 20
miUjónirdollara.
Vissulega er tU fólk sem telur amer-
íska herinn og allt hans hafurtask ein-
asta meiriháttar vandamál sam-
tímans — a.m.k. málið sem yfirskygg-
ir öll önnur. Þessi sértrúarsöfnuður er
í miklum minnUiluta meöal þjóöar-
innar eins og reynslan hefur þráfald-
lega sannað. Honum er meira en
frjálst að ástunda sitt heUagsanda-
hopp eins oft og mikið og hann vUl.
Manni, sem er andvígur núverandi
ríkisstjórn vegna þeirrar andfélags-
legu kjaraskerðingarstefnu sem hún
fylgir, leyfist þó væntanlega aö láta í
Nýja Keflavíkurstöðin
800 milljóna
skuldasúpa
Ráðherrarnir segja að þjóðin verði
að færa fómir. Efnahagskerfið rambi
á barmi gjaldþrots. Erlendar skuldir
ógni efnahagslegu sjálfstæði. Kaup-
mátt almennings verði að skeröa um
þriðjung. Sérhver verði að standa skU
á sínum skuldum. Astandið sé hrika-
legt. Tími aðhalds og sparnaðar sé
runninn upp.
Fékku á fyrsta práfinu
Ráðherramir hafa notað þessar rök-
semdir til að réttlæta mestu kjara-
skerðingu í gervaUri sögu Vesturlanda
á siðari áratugum. Margir hafa því
beðið spenntir eftir að sjá hvernig rík-
isstjóminni tækist aö standa sjálf við
eigin stefnu.
Auövitið kolféll hún á prófinu. Við
fyrstu ákvöröun um stórframkvæmd
var öUum fínu röksemdunum um að-
hald í erlendri skuldasöfnun, arðsemi
og ráðdeUd varpað fyrir borð.
Með einu pennastriki voru erlendar
skuldir íslendinga auknar um 800
miUjónir króna. Ákafinn í fjármuni
Bandaríkjanna var slíkur, aö gersam-
lega gleymist að nýja flugstöðin bindur
Islendingum risavaxna skuldabagga í
framtíðinni.
Ráðherramir hafa strax í upphafi
brotiö aUar grandvaliarreglur um arö-
semi og aöhald í erlendri skuldasöfn-
un. Þeir geta aldrei framar krafist
skilnings hjó almenningi. Þeir hafa
sjálfir faUið á fyrsta prófinu.
Malbik á hálfan hringveginn
— Flugvallaframkvæmdir í
20 árl
I umræðum um nýja Keflavíkurflug-
stöð hefur græðgin í bandarískt fjár-
magn verið aUs ráðandi. Lítið hefur
farið fyrir þeirri kvöð, sem Bandaríkin
knúðu fram í samningum um flugstöð-
ina. Islendingar eiga nefnUega sjálfir
að greiöa rúmlega helming aUs kostn-
aðar við bygginguna.
Kjallarínn
Olaf ur Ragnar Grímsson
Kostnaðarhlutur okkar sjálfra er
risavaxinn á mælikvarða íslenskra
framkvæmda. Hann jafngildir hvorki
meira né minna en 20 ára framlagi til
flugvallagerðar og flugvallarmála á
Islandi. Fyrir þau erlendu lán sem rík-
isstjórnin ætlar að taka vegna flug-
stöðvar á KeflavíkurflugvelU væri
hægt að gera umbótabyltingu í flug-
málum allrar landsbyggðarinnar. Það
sýnir á sérkennUegan hátt gildisvið-
horf ráðherranna að monthöll á Kefla-
víkurflugveUi skuU hafa forgang fram
yfir brýnar úrbætur í öryggismálum
og brautargerö flugvaUa um allt Is-
land.
Ánnar mæUkvarði fæst með saman-
burði við vegaframkvæmdir. Það f jór-
magn sem Islendingar eiga sjálfir aö
leggja fram til flugstöövarinnar mundi
duga tU að malbika hálfan hringveg-
inn. Hver og einn getur metið hvort
hann viU heldur aka á góðu malbiki frá
Reykjavik og upp um allan Borgar-
fjörð, þaðan áfram norður um heiðar,
Húnavatnssýslurnar báðar, gervaUan
Skagafjörðinn og tU Akureyrar, áfram
um frægar Þingeyjarsýslur og Húsa-
vík og aUa leið út ó Langanes — hvort
hann viU heldur aka alla þessa leið á
glæsilagri malbiksbraut eða reisa
monthöU á KeflavíkurflugveUi. Ríkis-
stjómin kaus höUina en hafnaöi vega-
gerðinni. En vildir þú ekki heldur, les-
andi góður, aka á malbUcaðri glæsi-
braut frá Reykjavík vestur og norður
umalltland?
Monthöll
Á sama tíma og farþegafjöldi Flug-
leiða hefur dottið á fáeinum áram nið-
ur í tæp 300 þúsund og Atlantshafsflug-
ið berst í bökkum, þykir rflcisstjórninni
nauðsynlegt að reisa flugstöð, sem
annað getur rúmlega einni mUljón far-
þega ó ári.
Skuldabagginn, sem bundinn verður
í Keflavík, er svo risavaxinn, að nýtan-
legt rými byggingarinnar er rúmlega
2/3 af stærð aðalbyggingar de Gaulle-
A „Skuldabagginn, sem bundinn verður í
™ Keflavík, er svo risavaxinn, að nýtanlegt
rými byggingarinnar er rúmlega 2/3 a£ stærð
aðalbyggingar de Gaulle-flugvallarins í
París.”
y