Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1983, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1983, Blaðsíða 6
6 DV. MIÐVIKUDAGUR14. SEPTEMBER1983. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur -■ Opnunartími verslana í Reykjavík er dæmi um steinrunnið fyrirkomulag sem stjómast af miðaldahugsunar- hætti einhverra einangraöra fyrirbæra ífilabeinstumi. Hverjir dunda í þessum fílabeins- tumi við það að skammta okkur neyt- endum tíma og segja okkur hvenær við eigum að gera okkar innkaup til heimilanna, veit ég ekki, en þeim er vorkunn. Því þeir hafa ekki hugmynd um hvemig daglegt strit gengur fyrir sig utan turnsins. Hjá venjulegu fólki sem vinnur dag- langt til að afla viðurværis er helst gripiö til þess bragðs að stelast úr vinnunni til að hlaupa í verslun. Ég er ein þeirra. Þegar kemur að helgarinn- kaupum,og þau dreg ég fram á föstu- dag yfirleitt, er ég orðin úrvinda eftir langa vinnuviku — rýk samt í næstu verslun af illri nauðsyn. Eftir föstu- dagsörtröðina í versluninni, grípur mig alltaf víðáttubrjálæöi, loksins þeg- ar ég kemst út aftur með teygða hand- leggi af fimmtán plastpokum. Oft hef ég hugsað „kallinum í fíla- beinstuminum” þegjandi þörfina, hreinlega ógnaö honum og neitað aö versla á föstudögum. Síöan hef ég glottandi ekið upp í Mosfellssveit, eða suður í Kópavog eða bara út á Nes í rólegheitum á laugardegi og keypt það sem vantaði. Gefið „kallinum” langt nef, skyldi hann hafa tekið eftir því? Nú er þetta mótþróaskeið aö renna á enda eða breytast. Aðallega vegna þess að laugardagsleikurinn er nokkuö kostnaðarsamur, bensínið er orðið svo dýrt. Svo er annaö, ég vil endilega versla við „minn kaupmann” í Reykjavík, mér finnst hálfpartinn að ég sé að svíkja hann með rápi úti um nágranna- sveitir. Og þegar ég heyrði að 12 mat- vöruverslanir í Reykjavík heföu skipt um eigendur síðustu átta vikurnar, fékk ég samviskubit. Kaupmenn í Reykjavík heyja harða baráttu til að halda uppi þjónustu við okkur neytend- ur hvunndags og svo hlaupum við fyrir horn um belgar (fleiri en ég hafa farið í bíltúra). Oft hef ég „gosið” þegar opnunar- tími verslana í Reykjavík hefur verið á dagskrá þar sem fleiri en tveir hafa verið samankomnir. Allir nærstaddir hafa gosið með mér. Jafnt kaupmenn sem aðrir. Einu sinni hélt ég að búðun- um væri lokað eftir settum reglum þeirra vegna. En nú veit ég betur. Ekki eru þessar reglur settar til hagsbóta fyrir neytendur. Kannski starfsfólkið í verslunum, þaö má ekki keyra það áfram í vinnu, „gæti verið túlkað sem þrælahald” sagöi einhver. Þá sagði einn „gosfélaganna” að það væri ekkert mál að fá afleysingarfólk, til dæmis fólk af atvinnuleysisskrám eöa skólafólk til að hlaupa í skarðið. Fyrir Raddirneytenda: Afgreiðslutími verslana, úrelt fyrirkomulag Vikuleg verðkönnun: Júlla frænka er ekki par ánægð með opnunartíma verslana í Reykjavik, sem hún telur vera steinrunnið fyrirkomulag. hverja er þá afgreiöslutími verslana lögbundinn? I sumar þegar allar matvöru- verslanir áttu aö vera lokaðar á laugardagsmorgnum sagði mér einn úr „gosfélaginu” að þær hefðu margar verið opnar, þar sem kaupmennimir gátu komið því viö að vinna sjálfir ásamt búaliði. (Þetta fór framhjá mér og ég ók um sveitir.) Ástæöan er einfaldlega sú aö kaup- menn sjálfir eru engan veginn sáttir við þær reglur, sem gilda um opnunar- tíma verslana. En þaö virðist ekki vera nóg að bæði kaupmenn og neyt- endur vilja breyta núverandi reglum um opnunartíma verslana. Hverra hagsmuna er verið að gæta ? Kær kveðja, Júlla frænka. Upplýsingaseðilli til samanburðar á heimiliskostnaði j Hvað kostar heimilishaldið? , f Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- |; andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar |1 l”'“- | fjölskvldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis- tæki. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks Kostnaöur í ágúst 1983. Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö kr. Alls kr. Vorumar ivið dyran úti á landsbyggðinni Að þessu sinni ákváðum við að gera vikulegu verökönnunina úti á landi til að lesendur geti séð hver verðmunurinn er á höfuðborgar- svæðinu og landsbyggðinni. Einnig sést að töluverður verð- munur er milli staða á iandsbyggð- inni. Ef við byrjum á eplunum sjáum við að þau eru ódýrust á Akureyri og fást þar á sama verði og dýrustu epl- in fengust í verökönnuninni í Reykja- vík í síðustu viku. Dýrustu eplin er hins vegar að f á í Bolungarvík. Tómatar eru dýrastir í Bolungar- vík en ódýrastir i Hagkaupi í Njarð- vík, en á höfuðborgarsvæðinu voru þeir dýrastir á krónur 96 og ódýrastir á 60 krónur, í síðustu viku. Gúrkurnar eru ódýrastar í Njarð- vík en dýrastar í Bolungarvík. Odýrustu gúrkurnar á höfuðborgar- svæðinu í síðustu viku voru á 48 krónur en þær dýrustu á 82. Eggin eru langdýrust á Vopnafirði en ódýrust á Selfossi, og eru þar ódýrari en á höfuðborgarsvæðinu í síðustuviku. Islenskar gulrætur eru langódýr- astar í Njarðvík en eru nær helm- ingi dýrari í Bolungarvík. Erfitt er að gera samanburð við höfuöborgar- svæöið, því að þar fengust þær aðeins á einum stað í síðustu viku. Erlendar gulrætur fást einungis í Bolungarvík, en fengust hvergi í síöustu viku. Hvítkál er mjög svipað í verði, dýr- ast í Bolungarvík, en ódýrast á Sel- fossi. Einungis ein verslun á höfuð- borgarsvæöinu hafði ódýrara hvítkál í síðustu viku. Nautahakkið er ódýrast í Njarð- 'vík en dýrast á Homafirði. Ein verslun á höfuðborgarsvæðinu var með nautahakkiö jafnódýrt og í Njarðvík. Kjúklingarnir eru á nokkuö mis- jöfnu verði. Odýrastir eru beir í Njarðvík en dýrastir á Horna- firði. I könnuninni í síðustu viku var ein verslun á höfuðborgarsvæðinu með jafnlágt verð og Hagkaup i Njarðvíkum. Nýr svínabógur er á mjög svipuðu verði í öllum verslunum á lands- byggöinni, en var ódýrari í öllum verslunum, sem könnunin náði til í síðustu viku á höfuðborgarsvæðinu. Smjörvinn er sömuleiðis á svipuðu verði víðast hvar, og var það einnig í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Ef litið er á heildina sést að verslun Einars Guöfinnssonar i Bol- ungarvík er einna dýrasta verslunin, í þessari könnun. Einna ódýrast er Hagkaup í Njarðvík. , Verðkönnun þessi er gerð símleiðis og því verðum við að treysta því aö rétt verð hafi verið gefið upp. Ef les- endur verða hins vegar varir viö aö verðið passar ekki, er bara að spyrj- ast fyrir um hvernig á þvi standi. -SþS. Dagsetning: 12Í9CB3 KA Setf. KASK Höfn Hornafirði Kaupf. Vopnaf. KEA HrisaL EINARGUÐF, Bofcingarv. Kaupf. Borgarn. Hagkaup Njarðvk. Epli, rauö ! 68,60 69,90 74,75 59,- 75,85 67,10 67,10 Tómatar 96,60 94,50 82,80 89,60 102,90 94Æ0 64,- Gúrkur 75,90 81,- 85,85 79,60 88,20 81,- 59.80 Egg 65,- 73,50 105,- 72,- 81. 74Æ0 69,- Gulrætur, ísl. 96,60 90,65 99,65 102,90 96,60 54,- Gulrætur, erl. Hvítkál 48,30 57,20 58,25 54,- 130,70 58,95 55,20 51,20 Nautahakk 165,- 229,- 228,25 188,20 228,95 181,- 155,- Kjúklingar 99,- 120,- mm 154,60 109,50 125,- 89,50 Svínabógur, nýr 169,45 169,45 169,45 168,40 153,- 159,20 Smjörvi 62,05 62,05 64,10 62,- 61,- 62,10 59,45

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.