Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1983, Blaðsíða 11
Wl frr RTTOAnil'XIVGTM .VCI
DV. MIÐVIKUDAGUR14. SEPTEMBER1983.
Septemberspyrna Kvartmíluklúbbsins
Akureyringamir stórbættu
íslandsmetið i götubílafíokki
Þriöja kvartmílukeppni sumars-
ins sem gefur stig til Islands-
meistaratitils var haldin síðastliðinn
laugardag. Var það fjórða tilraunin
sem gerð hefur verið til að halda
hana en í hin þrjú skiptin var keppn-
inni frestað sökum votviðris. Hafa
þessar frestanir sjálfsagt valdið því
hversu fáir komu á keppnina en það
á jafnt viö um áhorfendur og kepp-
endur. Var þessi keppni þó ein sú
besta sem Kvartmíluklúbburinn hef-
ur haldið frá upphafi. Höfst keppnin
stundvíslega klukkan tvö og var lok-
ið upp úr klukkan fjögur. Gekk
keppnin fljótt og vel. Voru engir
dauðir punktar í henni og allan tím-
ann var eitthvað að gerast á braut-
inni.
Standardflokkur
I standardflokknum var Gunn-
laugur Emilsson nokkuð öruggur sig-
urvegari en hann spyrnti við Ingólf
Arnarson í úrslitaþrykkjum keppn-
innar. Ingólfur átti ekki mikla mögu-
leika í 440 cid Dodge Chargerinn
hans Gunnlaugs og munaði nærri
sekúndu á tímum þeirra.
Eftir þrjár keppnir er Gunnlaugur
efstur í stigakeppninni um Islands-
meistaratitilinn í standardflokki,
ásamt Lorenz Þorgeirssyni. Eru þeir
báðir með 600 stig. I þriðja sæti er
svo Ingólfur Amarson með 300 stig.
Modified standardflokkur
Islandsmeistarabaráttan i M.S.
flokki er geysihörð en þar stendur
baráttan á milli þeirra Asmundar
Guðnasonar og Amar Jóhannesson-
ar. Ásmundur sigraöi í tveimur
fyrstu keppnum sumarsins en örn
hefur verið að síga á hann jafnt og
þétt. I keppninni á laugardaginn
varð Ásmundur að láta sér nægja
annað sætið, en 440 cid Dodge
Challangerinn hans virðist eitthvað
vera að gefa sig eftir öll átökin í sum-
ar og fyrrasumar. örn Jóhannesson
hefur hins vegar átt í erfiðleikum
með Novuna sína í fyrri keppnum
sem hann hefur tekið þátt í en hann
virðist vera búinn að yfirstíga þá.
Sigraði öm í þessari keppni og var
besti tími hans í keppninni 12,22 sek.
Street Eliminator
flokkur
Að vanda hefur götubílaflokkur-
inn verið vinsælastur meöal kepp-
enda og þar hef ur keppnin verið hvað
hörðust í sumar, á milli þeirra
Svavars Magnússonar og Haralds
Haraldssonar. I fyrri keppnum sum-
arsins hafa þeir skipst á að sigra en
í þessari keppni stóð baráttan á milli
þeirra um hvor þeirra fengi að keppa
við Stefán Finnbogason í úrslita-
spyrnunni.
Bræðurnir Bragi og Stefán Finn-
bogasynir komu frá Akureyri með
„nýjan” bíl sem segja má að verið
hafi í smíðum siöastliðin fjögur eða
fimm ár og tekið miklum breyting-
um í gegnum tíðina. Upphaflega átti
bíllinn að keppa í Street Altered
flokki en siðastliðinn vetur ákvað
Bragi að gera bílinn skoðunarhæfan
og setti hann á númer. Bíllinn er því
fullkomlega löglegur i götubila-
flokknum þótt um sé að ræða sér-
smiðaöan keppnisbíl i hágæðaflokki.
Pontiac Firebirdinn hans Braga átti
ekki í neinum erfiðleikum með að
stinga keppinauta sina af en Stefán
bætti Islandsmetið í götubílaflokkin-
um um 1,17 sek. þegar hann fór hraut-
ina á 11,09 sek. Bíllinn er á mjög háu
drifi en þeir bræður hyggjast lækka
drifið fyrir seinni keppnir sumars-
ins. Má því telja fullvíst að þeir eigi
eftir að bæta Islandsmetið enn áður
en keppnistimabilið er á enda.
Haraldur Haraldsson er nú efstur í
stigakeppni Islandsmeistarakeppn-
innar með 600 stig. Á hæla honum
kemur Svavar Magnússon með 500
stig en Valgeir Þórisson og Stefán
Finnbogason eru í þriðja sætinu með
300 stig.
Mótorhjólaflokkur
Keppendur í mótorhjólaflokknum
hafa verið mjög mismunandi margir
í hinum ýmsu keppnum í sumar.
Enginn keppandi hefur tekiö þátt i
fleiri en einni keppni svo að útilokað
er að spá nokkru um hver hljóti Is-
landsmeistaratitilinn þar í ár. Fjórir
keppendur eru efstir og jafnir með
300 stig en þeir eru Björgvin
Björgvinsson, Jón Halldórsson, Ari
Vilhjálmsson og Lúðvík Vilhelms-
son.
Mótorhjólunum var skipt í tvo
flokka í síðustu keppninni en þá var
þátttaka í mótortijólafloldmum mjög
góð. Var hjólunum skipt um 750 cc
mörkin. I flokki stærri hjólanna sigr-
aði Lúðvík Vilhelmsson. Hann ók
Kawazaki GP 1100 hjóli og vann
Oskar Eðvarðsson í úrslitaspyrn-
unni. Oskar ók Kawazaki 1000 hjóli
og var besti tími hans 12,02 sek. en
besti tími Lúðviks var 11,90 sek.
I flokki minni hjólanna sigraöi Ari
Vilhjálmsson öm Sigurhansson í
úrslitaspyrnunni. Ari ók Kawazaki
650 cc hjóli og var besti tími hans í
keppninni 13,48 sek. Besti tími Arnar
var hins vegar 13,18 sek. en hann ók
Kawazaki 550 hjóli.
Jóhann Kristjánsson.
Það er gaman að fylgjast með því hvað kvartmflubflar bera oft elnkenni eigenda sinna. Oft endurspeglast líkams-
burðir og persónueinkenni mannanna i bflnum, og stundum jafnvel svo mikið að hægt er að segja að bfllinn og mað-
urbm séu nauðalfkir. Óneitanlega mlnnti 427 cid Chevy Firebirdinn hans Braga Finnbogasonar á Braga þegar hann
birtist á brautinni samanrekinn og kraftalegur, ákveðinn og snöggur svo að hann bókstaflega sópaði hinum bflun-
um út af brautinni. Stefán, bróðir Braga, ók bflnum auðveldlega til sigurs og setti jafnframt nýtt Islandsmet í
S.E.flokki 11,09 sek.
Keppinautamir, Svavar Magnússon sem keppti á Chevrolet Camaro með 327 cid vél og Haraldur Haraldsson sem
keppti á Chevrolet Vega, einnig með 327 vél, börðust af hörku um það hvor fengi að spyma til úrslita við Stefán
Finnbogason í S.E. flokki. Haraldur hafði betur og sigraði Svavar. Besti tími Svavars í keppninni var 12,37 sek. en
besti tími Haralds var 12,27 sek.
Ásmundur Guðnason og öm Jóhannesson hafa barist grimmilega I sumar í M.S. flokki. Að þessu sinni hafði öm
betur á 350 cid Chevrolet Novunni sinni. Var besti tími hans í keppnlnni 12,22 sek. en besti tíminn á 440 cid Dodge
Challangeraum hjá Ásmundi var 13,49 sek.
I flokki stsrri mótorhjólanna sigraði Lúðvfk Vilhelmsson (nsr á myndinni).
Hann keppti á Kawazaki GP1100 hjóli og var bestl tími hans I keppninni 11,90
sek. Var það nsstbesti timinn f keppninni.
440 cid Chargerinn og Gunnlaugur Emilss. vora við sama heygarðshornið og svo oft áður. Létu þelr engan komast
upp með múður og sigruðu auðveldlega i standardflokki. Gunnlaugur varð Islandsmeistari i götubflaflokknum í
fyrra en snemma í sumar breytti hann Chargeraum svo að hann komst í standardflokkinn. Stefnir Gunnlaugur
jafnt og þétt á íslandsmeistaratitilinn þar. Besti tími Gunnlaugs í keppninni var 13,86 sek. en í úrslitaspyrnunni
keppti hann við Ingólf Araarson.