Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1983, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1983, Side 12
íu>iiv<ím .va SJ. 12 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Sfjómarformaöur og úfgáfusfjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfusfjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjóm: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 8M11. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla,áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022. Simi ritstjómar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plöiugeró: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. P rentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áksriftarveröá mánuði 230 kr. Verð í lausasölu 20 kr. Heigarblað 22 kr. Æði máttar og megins Tveimur vikum eftir fjöldamoröiö á 269 manns í kóre- anskri farþegaþotu hafa sovézk stjórnvöld ekki enn beðizt afsökunar. Það geröu þó búlgörsk stjórnvöld árið 1955, þegar þar var skotin niöur ísraelsk farþegaþota meö 58 manns. Eftirleikur fólskuverskins mikla er næstum því eins athyglisveröur og verkið sjálft. Sovézk stjómvöld hafa flutt hinar fjölbreyttustu útleggingar. Þau hafa jafnan haft nýjar á hraöbergi, þegar hinar eldri hafa verið hraktar. 1 fyrstu þóttust þau ekkert vita um málið. Næst sögðu þau, að villuráfandi þota hefði fengið aðvörun og horfið á brott út yfir Japanshaf. 1 þriðja lagi sögðu þau, að skotið hefði verið aðvörunarskotum og þotan farið í burtu. Fjórða útgáfan var, að Boeing 747 farþegaþotan hefði verið tekin í misgripum fyrir RC-135 njósnaþotu frá Bandaríkjunum. Samt er hin síðarnefnda helmingi minni og hefur ekki kryppu á bakinu eins og farþegaþotan. Síðasta útgáfan kom svo viku eftir fólskuverkið. Þá sögðu sovézk stjórnvöld, að „stöðvað” hefði verið flug kóreönsku farþegaþotunnar. Ennfremur sögðu þau, að þotan hefði verið í njósnaflugi fyrir Bandaríkin. Þannig séð hafi sovézk hermálayfirvöld aðeins verið að gera skyldu sína við að verja sovézk landamæri gegn sífelldum ágangi bandarískra heimsvaldasinna, sem bæru einnig ábyrgð á aftöku 269 manns. Svo einfalt var það. I öllu þessu flókna safni undanbragöa héldu sovézk stjórnvöld því meira að segja fram, að kóreanska þotan hefði verið ljóslaus á flugi. Hljóðupptökur sýndu þó, að sovézku flugmennirnir gátu lýst ljósum þotunnar. Augljóst er af hljóðupptökum samskipta sovézku herþotumannanna og yfirmanna þeirra á jörðu niðri, að fólskuverkið var ekki stundaræði, heldur beinlínis skipu- lagt af sjálfu kerfinu, sovézku vígvélinni. Mál þetta er jafnóþægilegt, hvort sem Andrópof og æðstu valdamenn Sovétríkjanna hafa fengið að vita um það fyrirfram eða ekki. Ef ekki, þá er sýnt, að vígvélin getur leikið lausum hala, varin af síðari undanbrögðum stjórnvalda. Komið hefur í ljós, að fjöldamorðið hefur lítil áhrif á al- menningsálitið í Sovétríkjunum. Jafnvel þeir, sem heyra sannleikann í málinu, eru svo meðteknir af innilokunar- æði kerfisins, aö þeir láta sér fátt um finnast. Fjöldamorðið er óhjákvæmileg afleiðing kerfis, sem hefur áratugum saman magnað með sér innilokunaræði, er einnig kemur fram í skipulegu ofbeldi þess út á við. Meira að segja fólkið í landinu hefur snert af þessu æði. Einnig hefur komið betur en áður í ljós, að sovézk stjórnvöld láta sér alls ekki bregða við almenningsálit á Vesturlöndum. Þau yppta öxlum, þegar allt fer á annan endann í fordæmingu á viðurstyggð þeirra. Ef sovézk stjórnvöld telja sig geta notaö vestrænt al- j menningsálit til að bæta hlutfallsstöðu sinnar vígvélar, ' eru þau ánægð og notfæra sér það. Ef þetta álit er þeim hins vegar andsnúið að öðru leyti, er þeim fjandans j sama. Þeir, sem láta myrða 269 manns í farþegaþotu til að sýna mátt sinn og megin, glotta við tönn, þegar vestrænir friðarsinnar hamla gegn viðbúnaði vestrænna stjórn- valda. Þeir sjá þá fram á að geta enn betur sýnt mátt sinn og megin. Jónas Kristjánsson. .saei Haafí3,M3?..ti huoací DV. MIÐVIKUDAGUR14. SEPTEMBER1983. H.vers vegna Islendingar eru frægir Islenska þjóöin er lánsöm ... Þetta lán megum viö þakka fyrst og fremst forfeörum vorum fyrir, allt frá fyrstu landnámsmönnum til seinni nið ja þeirra. Viö Islendingar getum hvergi verið erlendis án þess aö veröa fyrir vissri upphefö fyrir aö vera af- komendur hinna fornu og merkilegu víkinga. Viö verðum hreyknir og fyllumst von og bjartsýni þegar ein- hver okkar skarar fram úr á sviði sinu og gerir garöinn frægan. Þessi litla þjóö norður á hjara veraldar hefur svo sannarlega fengiö sinn skerf af framúrskarandi einstakling- um, í þátíö, nútíö og vonandi i framtíö. Þetta er ekki heppni, heldur eölileg útkoma ákveðinna staðreynda. Fólkiö okkar hef ur skaraö f ram úr í iþróttum, listum, vísindum, heimspeki og tækni, að skák ógleymdri. Þeir Islendingar sem hafa sest aö erlendis hafa oft skaraö fram úr í almennri lífsafkomu, svo aö þeir Islendingar sem á eftir þeim komu nutu góös af og þurftu, þótt meðalmenn væru, aö spjara sig til aö halda góöu nafni þjóðernisins flekk- lausu. Viö nútíma Islendingar megum svo sannarlega vera hreyknir af mörgum samtíðar Islendingum, en spurningin er, eru nútima Islending- ar þeir sem íslenska þjóöin er best þekkt fyrir .. . ? NEI. Þó viö séum síöur en svo eftirbátar annarra, þá erum það ekki viö, heldur forfeður okkar og afrek þeirra á öllum sviö- um sem viö erum þekktust fyrir. Það var sjómennska þeirra, landafundir þeirra, hermennska þeirra, hreysti þeirra, drengskapur þeirra, h'kamsburðir þeirra, íþróttir þeirra, gáfur og menning þeirra, sem lýsir sér best með stofnun al- þingis og lýðræðis á Islandi, Ust og sagnfræðisnilld þeirra sem lýsir sér best í fomritum Islendinga. Hugsaöu þér, lesandi góöur, forfeöur þinir voru afbragö annarra á öllum þess- um sviöum og þótt fleiri væru talin. Þetta er hægt aö staöhæfa án þess aö ýkja eitt orö. Ef það er rétt aö ávöxturinn fellur skammt frá trénu, þá er engin furða, þótt nútima Islendingar séu þeir framúrskarandi menn, sem þeir eru, viö þurfum aöeins aö athuga hverja forfeöur þeir eiga. Hvort sem nútima Islendingar vilja skilja þetta eða ekki, þá búa þeir viö þessa merkilegu þjóðernisarfleifð, erfö sem þeir eiga allt að þakka . .. Erfö sem þeir veröa aö vernda og færa niöjum sínum... Það er hægt aö líkja nútima Is- lendingum af þessum ástæöum viö börn merkilegra og frægra foreldra. Sum okkar eru svo grobbin aö þau halda aö þau geti Ufaö eingöngu á mannoröi foreldra sinna. Sum eru svo sljó aö þau telja sig ekki þurfa aö halda i heiöri minningu og kosti foreldra sinna, og telja sig ekkert geta lært af þeim. Sum hafa slika minnimáttarkennd gagnvart for- eldrum sínum að þau gera allt sem þau geta til að gera sem minnst úr þeim og verkum þeirra, í annarlegri von um að upphefja sjálf sig. Sál- fræðingar og jafnvel leikmenn þekkja þessar flækjur í fólki, en sama getur átt sér staö hjá veikgeðja mönnum gagnvart sér betri og fræg- ari mönnum í sögu þjóðarinnar. Þaö sem hlýtur að vera eðlilegast og farsælast er aö við nútíma Is- lendingar reynum að skilja hvað gaf forfeðrum okkar þá eiginleika sem geröi þá aö því sem þeir voru. Hvaö var hvatinn og orkugjafinn sem gerði þeim kleift aö áorka svo miklu viö svo erfiðar aöstæður. Hvemig getum viö lært af þeim og tryggt arf- leifð okkar og fært hana niðjum W Kjallarinn HelgiGeirsson . ,i . i — i i 4 vorum? Þetta hlýtur aö vera æðsta lögmál allra lífvera sem ekki þjást af úrkynjun, dauöadæmdri til glötunar. Þaö er óþarfi aö hafa minnimátt- arkennd eöa mikilmennskubrjálæði, vegna minningar forfeðranna og af- reka þeirra. Bara að viröa þá aö verðleikum, læra af þeim og færa niöjum vorum arfleiföina ómengaöa. Við eigum að leita inn á við þegar viö leitum lausna pólitiskra vanda- mála islensku þjóöarinnar, i staðinn fyrir aö glepjast til aö leita lausna vandamála okkar á meöal út- lendinga. Við eigum ekki aö gleypa útlenda tækni og aöferðir ómeltar, viö eigum aö velja gaumgæfilega úr og nýta þaö sem hentar Islendingum og menningu þeirra best. Viö megum ekki láta erlendar „Ustatískur” blekkja okkur og keppast við að segja að berrassaður keisarinn sé í fínum fötum. Það sem vakir fyrir mér er að við lærum og nýtum það sem best býr meö islensku þjóöinni. Að viö glötum ekki því sem er sígilt og þaulreynt, fyrir það sem er ómerkilegt eftir- hermurugl frá útlöndum og gerir Islendingum ekkert nema ógagn. Hugsum fyrst og fremst um hags- muni Islendinga, höfum engar áhyggjur af vandamálum út- lendinga, þeir munu sjá um sig án þess aö hafa áhyggjur af vanda- málum okkar. Munum aö þaö er eitt að feta í fót- spor forfeðranna og annað aö gera þaö á kostnaö þeirra. .. Helgi Geirsson, Delta, Kanada. Umferöin, slysin og úrkostimir — tillaga um 1% slysavarnaskatt fyrir sveitarfélögin Þetta er grein um aukna skatt- heimtu. Ég ætla ekki aö vera slíkur hræsnari að heimta meiri framkvæmd- ir án þess að vilja leggja eitthvað af mörkum í fyrirtækiö, eins og venja er. Og þetta er grein um meiri opinber af- skipti, meiri miöstýringu, fleiri og stærri varöhunda valdsins yfir hinni hertu skattheimtu. Og ekkert annað, næstumþví. Stærðfræðireglurnar gilda samt Eg verð nú aö játa það eins og er aö mér finnst ósköp þreytandi að hlusta í sífellu á stöðugar aövaranir og áskor- anir um allt í umferðinni. „Spenniö beltin, annars...” „Akiö varfega í hálku, annars. . .”. „Muniö aö nú fer í hönd sá tími sem.Akið með ljósin á, annars...”. Og svo frv. og svo frv. Ekki svo aö skilja að aðvaranir hafi ekki eitthvað aö segja. Og ekki síst hve fallegur hugur fylgir. Heldur hve í rauninni til lengri tíma litið máttlitil þessi orð eru. Um þaö tala sínu máli allar þessar hrópandi slysaskýrslur, sem viö erum farin að renna niður eins og föstum rétti í tilverunni. Þetta bara er svona. Þetta hefur alltaf verið svona. Þaö er ekkert hægt viö þessu að gera. Þaö er algerlega útilokað aö ætla Magnús H. Skarphéðinsson sér aö afneita stæröfræðireglunum. Líkindin segja aö þegar feröalög innan Reykjavíkur nema yfir 300.000 á sólar- hring að meðaltali, og leiðir allra sker- ast 50—100 sinnum viö leiöir annarra ferðalanga á sama tíma, á sömu stöö- um, að það geti gengið slysalaust. Um þetta á ekki aö þurfa aö deila. Og hvaö sem glamraö er yfir okkur um aö fara nú varlega og gæta sín á þessu og hinu, og passa nú þetta og hitt. En þá kom- um við einmitt að efninu. Lausnir og alvöru- orsakir slysanna Hvaöa tillögur höfum viö til úrbóta? Jú, við höfum skammtimalausnir eins og aðvörunarorð til þeirra sem eru í umferöinni. Og viö getum útbiað bæinn allan í umferöarljósum og upphækkun- um og þrengingum og þessháttar skemmtilegheitum, sem auðvitað gera „Væri ekki sniðugra að kasta þessum 200 w milljónum í umferðarbrýr, undirgöng undir götur eins og Miklubrautina, göngustíga og hjólreiðastíga og þess háttar alvöruslysa- vamir?”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.