Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1983, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1983, Page 16
Hjörtur Sigurðsson, gerir ekki neitt: Þetta er alveg agalegt og það á að1 refsa mönnunum almennilega fyrir þetta. Slgrún Gísladðttir póstfulltrúi: Mér finnst alveg hræðilegt að svona nokkuð' skuli geta komið fyrir. Olafur Pálsson útgefandi: Mér finnst það vera fyrir neðan allar hellur og getj ekki séð hvaða tilgangi þetta átti að þjóna. „Eftt þaö fyrsta sam farþegar á erlendum skommtffarOaMk/pum sf* mf Reykjavik er alls konar drasl, eins og tunnur mf steypubflum, " segir Etien Pétursdóttfr. DV-mynd: Einar Óisson. Ströndin við Gufunes til háborinnar skammar drasl blasir við sjófarendum Ellen Pétursdóttir hringdi: Milli Gufunesbæjarins og Aburðar- verksmiðjunnar eru gamlir öskuhaug- ar næst sjónum. Þeir höfðu verið græddir upp af smekkvísi svo þama var orðinn fagur staður. Upp á síðkastið hefur verið hrúgaö alls konar drasli á þennan gróðurreit. Það eru kofaskrifli, tunnur (síló) af steypubUum og annar ófögnuður sem eyðUeggur gjörsamlega þaö sem áður var búið að gera til fegrunar og prýði. Ströndin þama blasir við sjófar- endum á leið til Reykjavíkur. Þetta drasl er eitt það fyrsta sem gestir á er- lendum skemmtiferðaskipum sjá af höfuðborginni okkar. Mér finnst þetta til háborinnar skammar og skora á yfirvöld borg- arinnar að sjá til þess að úr verði bætt sem allra fyrst. Gréta Jóhannsdóttlr bankastarfs- maður: Mér finnst það ekki nógu gott hjá Rússum aö gera svona lagað. DV. MIÐVIKUDAGUR14. SEPTEMBER1983. Spurningin Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Hvert er álit þitt á þeim atburði er Sovétmenn skutu niður suður- kóresku farþegaþot- una? Sigurður Marteinsson, þungavélastjóri, á Keflavikurflugv.: Mér finnst það alveg hrikalegt og tel að það ætti að grípa til einhverra aðgeröa til að svona lagað gerist ekki aftur. Jónína Haraldsdóttir, starfsmaður í. mötuneyti: Ég myndi vilja fordæma hann. Ökumenn virda ekki rétt gangandi vegfarenda —þörfá gönguljósum Stella Sigurðardóttir, 8521-6694, hringdi: Nýlega fór ég með strætisvagni ofan úr Breiöholti ásamt átta ára dóttur- dóttur minni. Viö stigum út á Suöur- landsbrautinni, norðanmegin, á móts viö Laugardalshöllina. Sunnan göt- unnar er stórt skrifstofuhverfi þar sem móðir telpunnar vinnur og ætlaði ég að kenna henni að komast þangað ein i strætó eftir skola. Við þurftum aö fara smáspöl til að komast að einu göngubrautinni sem þama er á svæðinu frá Glæsibæ og ég veit ekki hvað langt niður eftir. Nú, þegar þangað kemur sé ég að hvítu strikin sem auðkenna gangbraut eru að mestu horfin nema þau sem eru fast við gangstéttina. En í miðri götunni er eyja, merkt með skilti, og við skellum okkur yfiráhana. ! Þá eigum viö eftir aö komast yfir seinni akreinina. Lítinn fólksbíl ber að. Bílstjóri hans er einn af þessum kurt- eisu og staðnæmist. En fyrir aftan hann kemur eitt af þessum sexhjóla ivörubílsferlíkjum og fer greitt. Vöru- bílstjórinn ætlar sér greinilega fram úr litla bílnum. Það er ekki fyrr en á sein- ustu stundu að hann áttar sig á að hann kemst ekki fram úr hinum nema keyra niður bæði skiltið og okkur. Þaö munaði afar litlu að svo færi. Eg hef lent í ýmsu á 63ja ára ævi en ég hika ekki við að segja að þetta var Reykjavegur Hér teiur lasandi þörf skelfilegasta augnablik lífs mins. Þama stóð ég með litlu telpuna, sem mér hafði verið trúað fyrir, og horfðist í augu viö dauðann. En vörubíllinn stöðvaðist sekúndu- broti áður en slys hefði orðið. Eg var svo stjörf af hræðslu að ég hafði ekki rænu á að taka númerið. Þaö kostulega var að áöur en við gönguljósum. lögðum af stað úr Breiðholtinu hafði dótturdóttir mín sagt: „Amma mín, þú þarft nú ekkert að vera að fylgja mér. Eg er búin að læra svo mikið í skólanum. Maöur á að horfa vel í báðar áttir áður en maður fer út á götuna.” Bömin fara út í umferðina full af DV-mynd: HJH. trausti á þeim fullorðnu — og hvemig er tekið á móti þeim? Eg mælist eindregið til þess að á þessum stað verði sett gönguljós og gatan máluö. Slík ljós kosta ekki meira en sjúkrahúsvist fyrir tvo sem slasast í umferðinni — og ómældar þjáningar sparast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.