Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1983, Side 31
DV. MIÐVIKUDAGUR14. SEPTEMBER1983.
31
Sandkorn Sandkorn
eyrí
Það vekur athygU og kát-
inu þelrra sem fylgjast með
keppninni í fyrstu deild i fát-
bolta hér heima að KR-ingar
sem eru næstefstir í fyrstu
deild hafa óhagstæða marka-
tölu, hafa skorað 18 mörk i
deildinni, en fengið á sig 19.
Þetta þykir með ólikindum
og er eflaust einsdæmi í sögu
knattspyrnunnar.
Skýringin á þessu, segja
fróðir menn, er hin mikla
áhersla sem Uðið leggur á
vamartaktík. Þannig segja
gárungar að KR-ingar leggi
svo mikla áherslu á vörnina
að þeir sæki um eriendan
gjaldeyri i hvert sinn sem
þeir fara fram yfir miðju!
Heitt haust?
Ibúar á Suður- og Vestur-
landi vom sannarlega orðnir
þreyttir á suddanum, ioks
þegar sólin fór að skina. Og
nú er bara vonast eftir góðu
hausti. Því urðu menn firna-
glaðir og þrifu til stuttbuxn-
anna þegar þeir lásu fyrir-
sögnina i ÞjóðvUjanum nú
fyrir helgina: „Verður haust-
lð heitt”. Héidu margir að
þaraa væri á ferðinni visinda-
ieg úttekt Vilja þjóðarinnar á
veðurfarinu i haust. En það
var nú öðm nær. Þama var
verið að segja frá erindi um
friðarhreyfingamar í Evrópu
sem Dan nokkur Smith flutti i
tiiefni friðarvikunnar. Það
getur þvi veriö dálítið tví-
eggja á þessum siðustu og
verstu timum að spyrja hvort
haustið verðl heitt.
Ýmislegt sameig-
Þrátt fyrir að Þjóðviljinn
og Morgunblaðið séu obbolit-
ið upp á kant, svona hvurs-
dags, eiga þessi blöð ýmis-
legt sameiginlegt. Bæðl
flytja þau öflugar iþrótta-
fréttir frá útlöndunum, tii að
mynda Englandi. Og bæði
nota þau sama fréttarit-
arann i þvi kóngsins landi.
Því byrja klausumar þaðan
gjaraan á: „Frá Heimi
Bergssyni, íþróttafréttaritara
Þjóðviljans/Morgunblaðsins
í Englandi”. Blaðaheitlð er
að sjálfsögðu eftir því hvort
fréttin birtist hægra eða
vinstra megin.
Og úr því að téð blöð hafa
tekið upp samvinnu er aldrei
að vita nema hún geti orðið
á fleiri sviðum. Þau gætu til
dæmis fengið sér sameigin-
lcgan þingfréttaritara.
Það gerist ekki oft að nem-
endum, sem koma i mennta-
skóla sinn í haustbyrjun, er
vísað i hurðarlaust... Þetta
henti þó í Menntaskólanum á
isafirði nú á dögunum er
nemar gengu í heimavist
sina. Það vantaði nefnilega
hurðir á fjögur herbergjanna
á vistinni. Mun rektor, Björn
Teitsson, hafa beðið nemend-
ur að sýna þolinmæði þvi að
hurðirnar væra í viðgerð.
Verða þær væntanlega
komnar á sinn stað þegar
þetta er skrifað og nemar
geta því unað glaðir vlð sltt.
Sandkorn
þaysír í göngur.
Mannaskipti á
Vestfirska
Mannaskipti hafa nú orðið
um stundarsakir á Vest-
firska fréttabláðinu. Sigur-
jón Valdimarsson, sem að
undanfömu hefur starfað við
fréttamennsku á blaðinu,
hefur fengið sér orlof um
einhvera tíma. Því hyggst
hann verja til að þeysa um
afrétti með bændum og afla
gagna i bók um göngur og
réttir. Verður honum von-
andi vel til veiða.
í stað hans hefur nú teklð
við fréttaskrifum á Vest-
firska Jón Birgir Pétursson,
gamaireyndur fréttahaukur
og rithöfundur. Verður hann
við rltvélina fyrir vestan
fram til mánaðamóta.
Umsjón: Jóhanna S.
Sigþórsdóttir.
Kvikmyndir Kvikmyndir
Kvikmyndir Kvikmyndir
Háskólabio—Ráðgátan:
Njósnarar austurs og vesturs
leiða saman hesta sína
Enigma er dæmigerð njósnamynd
úr „kalda stríðinu” og það af betri
gerðinni, þar sem njósnarar austurs
og vesturs, ásamt andófsmönnum og
lögreglumönnum etja kappi saman
Martin Sheen og Brigitte Fossey í einu af síðustu atriðum Enigma.
og enginn f er með sigur af holmi.
Myndin segir frá Alex Hoibeck
landflótta Austur-Þjóðverja, leikinn
af Martin Sheen, sem fengið er það
verkefni af amerísku leyniþjónust-
unni að fara aftur austur fyrir múr-
inn og ræna tæki frá Austur-
Þjóðverjum er nefnist Enigma og er
nokkurs konar ruglari fyrir fjar-
skeyti.
En hann er ekki fyrr kominn
austur en hann er eltur uppi af bæði
Þjóðverjum og Rússum og virðast
þeir vita allt um hans ferðir og
stefnumót.
Rússar hafa sent sinn besta mann
til Austur-Berlínar til að komast að
því hvað Holbeck ætlar sér að góma,
en þeir halda helst aö hann ætli aö
ræna þá fullkominni orrustuþotu, og
lendir sá oft í samstuði við öryggis-
lögreglu Austur-Þjóðverja.
Holbeck hittir fyrir gamla kærustu
og fær hana til aö gerast hjákona hjá
rússneska njósnaranum til að geta
verið einu skrefi á undan honum, en
allt fer öðruvísi en ætlað var og
margt óvænt á eftir aö koma á
daginn i samskiptum þessara
þriggja aðalpersóna myndarinnar.
Þrátt fyrir nokkrar gloppur í hand-
riti hefur tekist að skapa þarna
ágætis afþreyingarmynd, sem
heldur manni við efnið allan tímann.
Leikararnir þrír í aðalhlutverkun-
um bæta upp aila minniháttar galla
sem koma fram í handriti. Martin
Sheen, með sitt þreytulega yfir-
bragð, er mjög góður í hlutverki
hugsjónamannsins og er hann að
verða nokkurs konar gæðastimpill á
kvikmynd. Þrátt fyrir að Sam Neill
sé kannski ekki beint sannfærandi
sem rússneskur njósnari þá bætir
hann það upp með sjarmerandi leik
og framkomu. Til að fullkomna svo
þennan leikaraþrihyrning höfum við
svo hina aðlaðandi frönsku leikkonu
Brigitte Fossey í hlutverki konu sem
þeir nota báðir sem tálbeitu hvor á
annan án þess þó að vilja fórna
henni.
Það eru þekktir leikarar í
aukahlutverkum, leikarar sem eru
minnisstæöir úr öðrum myndum, til
dæmis Derek Jacobi, Michael Lons-
dale og Frank Finley, en þeir hafa nú
yfirleitt gert betur, enda hlutverkin
lítill biti fyrir þá.
Enigma er alþjóðleg kvikmynd.
Leikarar eru ameriskir, breskir og
franskir. Leikstjórinn Jeannot
Szwarc er franskur og á að baki leik-
stjórn á Jaws II meöal annars.
Myndin er tekin í París og líkast til í
Helsinki, en þar viröast allar myndir
er eiga að gerast austantjalds vera
teknar þessa dagana og þrátt fyrir
þennan Kokkteil er Enigma ágætis
skemmtun, þar sem aðalleikarar
fara á kostum og gefa myndinni
aukiö líf.
Hilmar Karlsson.
Hoiti: Ráðgátan (Enigma)
Leikstjóri: Joannot Szwarc.
Handrit: John Briiey eftir skáldsögu Michael
Barak.
Kvikmyndun: Jean Louis Picaret.
Tónlist: Marc Wilkinson og Douglas Gamley.
Aflalleikendur: Martin Sheen, Brigitte Fossey,
Som Neill, Derek Jocobi, Michael Lonsdale og
Frank Finley.
| Fersk blóm d( rC/Ai miklatorgi JVJJ J >SÍMI 22822' iglega.
AFGREIÐSLU
Á AKUREYRI
vantar bilstjóra tHað keyra blaðið út.
Um erað ræða hlutastarf.
Uppl. eru veittar á afgreiðslu DV,
Skipagötu 13 Akureyri,
millikl. 13 og 19 virka daga. Sími25013.
MIGATRONIC
RAFSUÐUVÉLAR
Automatic kolsýrusufluvélar sam eru sórstaklega
hannaðar fyrir bifreiðasmiði, til suðu é þunnu efni
og eru eins fasa, 220 volt. örféar vélar til é mjög
hagstæðu verði.
Aðeins kr. 16.124,00,140 amper.
Aðeins kr. 20.133,00,180 amper.
Verð með söluskatti
ISELCO sf.
Skeifunm 11D Reykjavík.
Pósthólf 7060.
Simi 86466.